DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Gardener

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með I-cord kanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-8
DROPS Design: Mynstur w-885
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-300-350 g litur 72, páfagaukagrænn

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 5.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur eins og útskýrt er að neðan:
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið A.2, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið A.2, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (2 lykkjur færri).

FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp, hvort fyrir sig.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin er prjónaður I-cord kantur með bandi / hlýra á öxl í snúruprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 78-86-94-106-118-130 lykkjur á prjón 3,5 með DROPS Paris.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10-10-10-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir fyrstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 62-70-78-82-94-106 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12-12-16-18-20 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með A.1 eins og áður yfir síðustu 8-8-8-12-12-12 lykkjur = 68-74-82-90-100-110 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með A.1 í hvorri hlið eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir ystu 5-5-5-9-9-9 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Eftir 4 umferðirnar í garðaprjón, eru felldar af 3-3-3-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 62-68-76-76-86-96 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón (brugðin lykkja frá röngu) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.2, fækkið um 1 lykkju fyrir handvegi í byrjun á umferð - lesið ÚRTAKA, prjónið sléttprjón þar til 8 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju fyrir handvegi í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA, prjónið A.3.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handvegi á sama hátt, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-15-13-11 sinnum. Fækkið síðan um 2 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3-4-5-3-6-9 sinnum – sjá ÚRTAKA = 28-30-32-34-36-38 lykkjur.
Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 35-37-39-41-43-45 cm frá uppfitjunarkanti.
Haldið lykkjunum eftir á prjóni. Nú á að fella af með I-cord kanti eins og útskýrt er að neðan.

I-CORD KANTUR:
Fitið upp 3 lykkjur á 1 sokkaprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið prjóni, * prjónið 2 fyrstu lykkjurnar slétt, prjónið síðustu lykkjuna snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á bakstykki (frá réttu), lyftið lykkjunum sem voru prjónaðar til baka yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á bakstykki hafa verið felldar af og það eru 3 lykkjur eftir á hægri prjóni. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til framstykkið hefur verið prjónað til loka. Haldið lykkjunum eftir á prjóni. Nú á að prjóna band á öxl / hlýra með snúruprjóni jafnframt því sem fellt er af með I-cord kanti meðfram hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL / HLÝRI OG I-CORD KANTUR:
Fitjið upp lykkjur á 1 sokkaprjón 3,5 með DROPS Paris og prjónið snúruprjón þannig:
* Færið lykkjur að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til band / hlýri á öxl mælist ca 7 cm (bandið / hlýrinn á að liggja yfir öxlina á milli framstykkis og bakstykkis, mátið e.t.v. flíkina og stillið lengdina af).
Nú eru 2 síðustu lykkjur prjónaðar slétt saman = 3 lykkjur eftir.
Færið lykkjur að byrjun á umferð og herðið á þræði, ekki klippa þráðinn frá.
Fellið síðan af með I-cord kanti meðfram réttu á framstykki þannig: * prjónið 2 fyrstu lykkjur frá bandi / hlýra á öxl slétt, prjónið síðustu lykkju snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á framstykki, lyftið lykkjum sem voru prjónaðar til baka yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á framstykki hafa verið felldar af og það eru 3 lykkjur eftir á hægri prjóni, fitjið síðan upp 1 lykkju í lok þessarar umferðar = 4 lykkjur. Prjónið snúruprjón yfir þessar 4 lykkjur þar til bandið / hlýri á öxl mælist ca 7 cm (stillið lengdina af eftir hinu bandinu / hlýra).
Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saummið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði flatur.
Saumið bönd á öxlum / hlýra við bakstykkið yst í hvorri hlið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2023
BAKSTYKKI:...Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Clara Sofie wrote:

Hej. Findes der et billede af ryggen?

15.04.2024 - 22:02

DROPS Design answered:

Hej Clara, det har vi desværre ikke, men det strikkes som forstykket, så det skal se ud som det du ser :)

16.04.2024 - 07:25

country flag Fayet Edith wrote:

Bonsoir, Je ne vois pas comment faire à partir de : 2cotes mousse ..... reste 62 mailles Comment décaler le dessin et où faire les 3 diminutions ? Merci cordialement Edith

09.04.2024 - 21:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fayet, vous aviez 68 mailles sur l'aiguille et vous avez tricoté les 5 mailles de chaque côté au point mousse pendant 4 rangs (= 2 côtes mousse), vous allez maintenant rabattre (et non diminuer) les mailles des emmanchures autrement dit: rabattez 3 mailles au début du rang suivant sur l'endroit et tricotez les mailles restantes comme avant (il reste 65 mailles), tournez. Rabattez les 3 premières mailles au début du rang suivant sur l'envers et terminez le rang comme avant = il reste 62 mailles sur l'aiguille. Diminuez maintenant pour les emmanchures après A.2 et avant A.3. Bon tricot!

10.04.2024 - 07:47

country flag Fayet Edith wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment continuer après les 2 cotes mousse puisque A1 est sur 8 mailles. 2cotes mousse et 5 font 7 et ou placez vous les 3 diminutions par rapport au motif ? Merci Cordialement

08.04.2024 - 22:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fayet, pouvez-vous nous indiquer à quel niveau vous en êtes exactement? Je ne suis pas bien sûre de le situer, merci pour votre compréhension. Bon tricot!

09.04.2024 - 08:51

country flag Benedetta wrote:

Ciao! Non mi è chiaro il passaggio tra davanti/dietro e bordo/spalline. Quando dice "tenere le maglie sui ferri e lavorare le spalline e un bordo ad I-cord lungo il collo" significa che faccio bordo e spalline separati dal resto? O solo le spalline e poi le cucio al davanti e al dietro? Grazie mille in anticipo

08.03.2024 - 08:42

DROPS Design answered:

Buonasera Benedetta, deve lavorare un bordo ad I-cord di 7 cm e poi procedere come indicato. Buon lavoro!

17.03.2024 - 19:32

country flag Jayne Baak wrote:

Would it be possible to make this on a circular needle to avoid seeing up the sides?? Thank you Jayne 🙂

04.03.2024 - 22:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baak, probably, you then just have to adjust the number of stitches and how to read diagrams as they would be worked from RS on every row. Happy knitting!

05.03.2024 - 09:19

country flag Esther wrote:

Ik denk dat de beschrijving onder "schouderbandjes en punnikrand" niet helemaal klopt?! Er staat "* Brei de eerste 2 steken van het bandje gedraaid recht samen met de laatste steek en de eerste steek op het voorpand". Volgens mij moet dat zijn: Brei de eerste 2 steken van het bandje, brei daarna de laatste steek op de rechter naald met de eerste steek op het voorpand gedraaid recht". Vr.gr., Esther

19.06.2023 - 15:15

country flag Mia wrote:

Hello, thank you for this beautiful pattern. I have knitted the front and back piece and the icord edging. I do not understand how to do the straps. Do I start with the double pointed needle with separate yarn? Do I join the 4 stitches to the neck edge and do an icord strap? I am totally lost. Please help. Thank you, Mia

16.06.2023 - 07:27

DROPS Design answered:

Dear MIa, you first work an I-cord for 7 cm then work the I-cord together with the stitches from front piece casting off these stitches as shown in this video (in the video the I-cord is worked over 3 sts, just work as explained in the pattern with the 4 sts, the video shows the technique). .Happy knitting!

16.06.2023 - 07:51

country flag Lisa wrote:

Hi, I was wondering for the back piece after the 2 ridges you cast off 3 stitches (size M) do we continue like before following what’s left of the A1 pattern?

08.06.2023 - 16:48

DROPS Design answered:

Dear Lisa, the first row of the 2 ridges should be worked from WS (pattern fixed), then you cast off 3 sts on each side working remaining stitches as before. Happy knitting!

16.06.2023 - 15:05

country flag Märta wrote:

Hur ser toppen ut bakifrån?

08.06.2023 - 09:52

country flag Jannie wrote:

Er ribben ikke ret over ret og vrang over vrang?

18.05.2023 - 12:09

DROPS Design answered:

Hej Jannie, ja det stemmer :)

19.05.2023 - 10:59