DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blushing Rose Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-21
DROPS Design: Mynstur sk-180
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 19, ferskja

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 622: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjón að handvegi, síðan fram- og bakstykki og ermar prjónað til loka hvert fyrir sig. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Það eru engin hnappagöt gerð, tölum er hneppt í gegnum gataröð í kanti að framan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 127-131-135-143-147-151 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur (kantur að framan), prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna slétt og prjónið A.2 yfir 7 lykkjur (kantur að framan).
Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið A.2 yfir 7 lykkjur, prjónið stroff (1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og prjónið A.1.
Prjónið kant að framan og stroff svona í 2 cm.
Aukið út aðra hverja 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING = 155-160-165-175-180-185 lykkjur. Prjónið kant að framan og stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Nú er restin af brugðnu einingunum aukið út frá 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – munið eftir ÚTAUKNING = 183-189-195-207-213-219 lykkjur.
Prjónið kant að framan og stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm og næsta umferð er frá réttu. Prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið jafnframt út um 24-26-28-24-26-28 jafnt yfir næstu 169-175-181-193-199-205 lykkjur, prjónið A.2 = 207-215-223-231-239-247 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.2, prjónið brugðnar lykkjur áfram þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið A.1, prjónið A.3 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3 og prjónið A.2.
Prjónið að 1. umferð merktri með ör í A.3. Í þessari umferð er aukið út um 32-40-48-56-56-72 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.3 = 239-255-271-287-295-319 lykkjur.

Haldið áfram með mynsturteikningu eins og áður að 2. umferð merktri með ör í A.3. Í þessari umferð er aukið út um 32-48-48-56-56-72 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.3 = 271-303-319-343-351-391 lykkjur.

Haldið áfram með mynsturteikningu eins og áður að 3. umferð merktri með ör í A.3. Í þessari umferð er aukið út um 40-40-48-48-72-72 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.3 = 311-343-367-391-423-463 lykkjur.

Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón, en A.1 og A.2 heldur áfram eins og áður að loka máli. Þegar stykkið mælist 22-23-25-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki og prjónað er frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 52-57-60-65-70-78 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki), setjið næstu 58-64-70-72-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 90-100-106-116-126-142 lykkjur slétt (bakstykki), setjið næstu 58-64-70-72-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 53-58-61-66-71-79 lykkjur eins og áður (hægra framstykki). Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 215-235-251-271-295-327 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu (þau eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf). Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 24-25-25-26-26-26 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Nú skiptist stykkið þannig að það verður klauf í hvorri hlið. Látið fyrstu 57-62-66-71-77-85 lykkjurnar vera á prjóni, setjið síðustu 58-63-67-72-78-86 lykkjurnar á þráð fyrir hægra framstykki, setjið 100-110-118-128-140-156 lykkjur sem eru á milli prjónamerkja á þráð fyrir bakstykki.
Prjónið síðan framstykkin og bakstykkið til loka hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 57-62-66-71-77-85 lykkjur.
Prjónið A.1 eins og áður, prjónið sléttar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 20-23-27-26-26-24 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 77-85-93-97-103-109 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og prjónið A.1 eins og áður yfir 7 lykkjur.
Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir 7 lykkjur, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 58-63-67-72-78-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjón 4. Prjónið frá réttu, prjónið sléttar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 19-22-26-25-25-23 lykkjur jafnt yfir fyrstu 51-56-60-65-71-79 lykkjur, prjónið A.2 eins og áður yfir 7 lykkjur = 77-85-93-97-103-109 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir 7 lykkjur, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið stroff frá réttu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt og prjónið A.2 eins og áður yfir 7 lykkjur.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 100-110-118-128-140-156 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 21-21-23-27-29-31 lykkjur jafnt yfir = 121-131-141-155-169-187 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið stroff frá réttu þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 58-64-70-72-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 10-10-12-12-14-14 lykkjur í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hlið á fram- og bakstykki = 68-74-82-84-92-96 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið hringinn í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með ca 3½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 6-8-11-10-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 31-31-29-29-28-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 12 cm að loknu máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út um 18-18-20-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-86-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan, staðsetjið þær þannig að tölum sé hneppt í gegnum gataröð sem er prjónuð í kanti að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Susana Araujo wrote:

Hi there, do you have any video to learn how to sew buttons? Thank you very much for this amazing pattern. My final product is gorgeous!

09.10.2023 - 22:24

DROPS Design answered:

Dear Susana, unfortunately we have no videos on how to sew buttons. Depending on the button type they are sewn differently. With a sewing thread, if you use the same buttons as here, pass the thread through both holes in the button and weave in the tail by twisting the thread several times right under the button, so that the button is slightly separated from the garment and the edge won't wear that easily as time goes by. Happy knitting!

15.10.2023 - 23:38

country flag Susana Araujo wrote:

Hi there. Thanks a lot for your free patterns. On the last part for the yoke it says: "cast on X stitches under the sleeve" but I am confused... If I had just place the stitches for the sleeve on a thread then I won't have a sleeve as yet done at all. Is this just to cast on X number as I would normally cast on any normal stitch but maybe put a mark or remember that that will be the under arm? Thanks for the help!

26.08.2023 - 22:38

DROPS Design answered:

Dear Susana, these new cast on stitches are for the armholes in the body and replace the sleeves' position when working the body. You cast on these stitches on the body as normal. When you start the body, you will insert a thread in the middle of these stitches, so you will know that these stitches correspond to the armholes and that you will join the sleeve to the body here. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:50

country flag Susana Araujo wrote:

On the "yoke" part when it says to continue the rib until piece measures 4cm is this to keep doing the A1 pattern on the band while we knit 1 and purl 2 on the rib? Or shall i just knit 7 on those 7 stitches from the band at all times?

12.08.2023 - 08:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Arauajo, repeat the first 2 rows from RS starting with A.1 and ending with A.2 and from WS starting with A.2 and ending with A.1, ie work diagrams on each side and rib in between. Happy knitting!

14.08.2023 - 09:08

country flag Susana wrote:

When doing A1 and A2 pattern for the band, the part where we are meant to knit 2 together and yarn over happens to be on my wrong side. Do I still do this even on the wrong side or do I have to purl instead? The subtitles don't mention to do something different depending on the side but I just want to check before I do something wrong.

08.08.2023 - 23:06

DROPS Design answered:

Dear Susanna, that's correct like this, this row will be worked from wrong side, this means you will work diagrams from WS reading from the left towards the right, ex. A.2. from WS - K1, (YO, K2 tog)x3 and A.1: (K2 tog, YO)x3, K1. Happy knitting!

09.08.2023 - 08:20

country flag Susana wrote:

Hi there, in the beginning of the yoke it says" increase every 2nd purl-1 to purl-2 - read increase tip= 155-160, etc. What is this purl-1 to purl-2??

08.08.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Hi Susana, Half-way through the rib at the top of the yoke, you change the ribbing to knit 1, purl 2 by increasing 1 stitch in each purled stitch. The easiest method is to purl 2 in each purled stitch, or you can make 1 yarn over which is then purled twisted on the next round to avoid a hole. Hope this helps and happy knitting!

09.08.2023 - 07:20

country flag Susana Araujo wrote:

Hi there, for the knitting tension do I need to wet my swatch or shall I measure with a dry swatch? Thank you very much for your help 😊

08.08.2023 - 09:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Araujo, you don't need to, except if you think it might be a good idea depending on your tension. Happy knitting!

08.08.2023 - 16:13

country flag Ina wrote:

Drops 240-21 , uważam, że schemat A3 nie zgadza się z pokazanym na zdjeciu sweterkiem. Na zdjeciu zaczyna sie schemat A3 od miejsca zaznaczonego strzałką. Robiąc według pokazanego schematu powstaje zupełnie inny wzòr.Bardzo proszę o odpowiedź. Proszę o

24.03.2023 - 19:17

DROPS Design answered:

Witaj Ino, proszę o wybieranie kraju zgodnie z używanym językiem, wtedy od razu widzę pytania i mogę szybko odpowiedzieć :) Co do schematu A.3- jest od przerabiany jak zwykle od prawego dolnego rogu do góry (nie od strzałki). W rzędach oznaczonych strzałkami (części schematu przerabiane na prawo, bez ażuru) są dodawane oczka na formowanie okrągłego karczku. Pozdrawiamy!

12.04.2023 - 08:28

country flag Carol McMillan wrote:

The decrease in the SLEEVE only gives the distance between decreases for 5 of the six sizes (see below). Decrease like this every 3½-2½-1½-1½-1 cm = 1 1/4"-1"-1/2"-1/2"-3/8" a total of 6-8-11-10-13-14 times = 56-58-60-64-66-68 stitches. What should it actually be?

21.03.2023 - 17:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs McMillan, the US pattern will be edited asap, it should be 3½-2½-1½-1½-1-1 cm. Happy knitting!

22.03.2023 - 08:39

country flag Joanna wrote:

Sweet valley

19.01.2023 - 14:14

country flag Julie wrote:

Rosy hues

19.01.2023 - 01:17