DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Early Moorning Mist

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 233-6
DROPS Design: Mynstur ai-423
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð á undan/eftir 1 lykkju sléttprjón (lykkja með prjónamerki Í).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka aftur yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið i fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka aftur yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm.
Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykki, þetta er gert samtímis sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð sem er útskýrð að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu:
Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
= 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ S, M, L og XL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningar fyrir laskaínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú einungis á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XXL og XXXL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur.
Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermar (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur.
Haldið nú áfram í sléttprjóni og útaukningar fyrir laskalínu, en í annarri hverri umferð sem aukið er út, aukið nú einungis á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 248-280-296-320-340-368 lykkjur.
Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 9-5-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónað að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu.
Prjóni hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið niður með 4 punktum með því að sauma það niður með einu spori í hverja laskalínu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Pesenti wrote:

Bonjour, Au sujet des rangs raccourcis vous répondez à un commentaire précédent : augmenter 4 mailles à chacun des rangs raccourcis hors il me semble qu’il n’y a que 4 rangs raccourcis dans l’explication ENCOLURE (avec chacun 8 augmentations par rang). Merci pour votre réponse

18.03.2024 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pesenti, on ne tricote que 4 rangs pour les rangs raccourcis (2 rangs sur l'endroit, 2 rangs sur l'envers), et on va augmenter 8 mailles à chaque fois soit 32 mailles au total. Il doit y avoir une faute de frappe dans la réponse précédente entre le nombre de fois et le nombre d'augmentations. Bon tricot!

18.03.2024 - 15:43

country flag Lejeune Nicole wrote:

Après l’encolure vous dites qu’il faut pour la taille L augmenter 10 fois et ensuite 14 fois pour les dos et devant Pour moi je compte 24 fois et vous dites qu’il s’agit de 28 fois Pouvez vous me dire d’où viennent les 4 fois supplémentaires ? Merci Nicole

14.03.2024 - 09:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lejeune, à la fin de l'encolure, vous avez 132 mailles, vous augmentez ensuite pour le raglan 10 fois 8 mailles au total (1 pour chaque demi-dos + 2 par manche + 2 pour le devant) soit 80 = 132 = 212 mailles. Vous augmentez ensuite tous les 2 rangs pour le dos/le devant et tous les 4 rangs pour les manches (alternativement 4 et 8 m), soit 14 x 4 + 7x4= 84 + 212=296 mailles quand toutes les augmentations sont faites. Vous aurez augmenté 4 fois pour l'encolure + 10 fois tous les 2 tours + 14 tous les 2 tours = 28 fois au total. Bon tricot!

14.03.2024 - 16:41

country flag Lejeune wrote:

Bonjour Je comprends les tours raccourcis, on laisse en attente les mailles du devant. Mais pour le raglan il faut faire 8 augmentations chaque tour. Si j’ai réalisé a l’endroit 1 jeté avant et après le marqueur je tricote les jetés au tour suivant sur l’envers. Comment faire en même temps des augmentations lorsque je tricote le second rang ? Il en est de même pour le 4 rangs. Comment avoir 32 points supplémentaires ? Merci pour l’information. Nicole

09.03.2024 - 08:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lejeune, vous augmentez sur l'envers comme indiqué sous RAGLAN, autrement dit, vous tricotez les jetés faits sur l'endroit comme indiqué sur l'envers, puis vous augmentez avant/après les marqueurs comme expliqué = avant/après la maille jersey du raglan. Vous augmentez ainsi 4 mailles à chacun des 8 rangs raccourcis = 32 augmentations au total (4 pour chaque demi-devant, 8 pour chaque manche et 8 pour le dos. Bon tricot!

11.03.2024 - 07:48

country flag SP wrote:

Hello! Thank you for the wonderful pattern. I am confused about the raglan increase. I understand it’s in short row, going back and forth. But what happens to the 23 stitches (L size) between stitch 3 and 2? If it’s beginning at 2 stitches before marker 3; and turning at 2 stitches after marker 2; there are 23 stitches of the front part not knitted on. Did I understand the instruction correctly? Is this how we shape the sweater?

01.03.2024 - 00:38

DROPS Design answered:

Hi SP, Yes, the short rows at the back of the neck shape the neck and make it a little higher at the back. The other stitches on the round will be incorporated when the short rows are finished. Happy knitting!

01.03.2024 - 08:09

country flag Viki wrote:

Megnéztem a 280 felosztását a német leírásban. Úgy már jó. 42+57+83+57+41

27.01.2024 - 20:39

country flag Viki wrote:

M-es méretben a raglán végén 280 szem van. A felosztás leírása 42 szem a fél háta 42 szem a keze 83 szem az eleje 42 szem a keze 41 szem a fél háta Ez összeadva 250 szem. Így maradt még 30 szemem.... Azt hova osszam fel? Köszönöm!

27.01.2024 - 20:33

DROPS Design answered:

Kedves Viki, köszönjük a megjegyzését, a minta javításra került, az M-es méretben mindkét oldalon 57 szemet kell az ujjához félretenni. Sikeres kézimunkázást.

11.03.2024 - 16:46

country flag Mariarosaria Bello wrote:

Dove dice tutte le taglie cosa si intende continuare a lavorare a strisce? Grazie

16.01.2024 - 21:05

DROPS Design answered:

Buonasera MariaRosaria, non ci sono strisce in questo modello. Buon lavoro!

17.01.2024 - 16:56

country flag Mariarosaria Bello wrote:

Un ultima domanda, per lo sprone non capisco il calcolo prima dice aumentare 15 volte sul corpo e 7 volte sulle maniche e poi dice per un totale di 27 volte sul corpo e 19 sulle maniche non capìsco il secondo calcolo ( 27/19)

09.01.2024 - 19:56

DROPS Design answered:

Buonasera Mariarosa, nel calcolo sono inclusi anche gli aumenti precedenti in cui si aumentava contemporaneamente sia sul corpo che sulle maniche: i totali degli aumenti sono corretti. Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:33

country flag Mariarosaria Bello wrote:

Buongiorno per lo sprone non capisco come aumentare,cosa significa aumentare ogni secondo aumento e per le maniche ? Come devo procedere? Grazie

09.01.2024 - 13:13

DROPS Design answered:

Buongiormo Mariarosaria, in questo modello gli aumenti non sono uguali per il corpo e le maniche, ma in alcuni punti si aumenta ogni 2 ferri per il corpo e ogni 4 ferri per le maniche: deve seguire le indicazioni riportate via via nel modello. Buon lavoro!

09.01.2024 - 16:17

country flag Mariarosaria Bello wrote:

Buongiorno non riesco a capire come aumentare le maglie dal punto in cui spiega, ogni secondo aumento, aumentare solo sul corpo per lo sprone.

09.01.2024 - 13:09

DROPS Design answered:

Buonasera Mariarosaria, deve lavorare gli aumenti in modo diverso sulle maniche e sul corpo, come indicato. Buon lavoro!

09.01.2024 - 16:18