DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Morgenbris Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-12
DROPS Design: Mynstur ai-438
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og á bakstykki og inn í mynstur á ermum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður og aukið er út fyrir laskalínu.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm, í síðustu umferð í stroffi er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-110-114-118 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja.

Teljið 15-16-17-18-19-20 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 30-32-34-36-38-40 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 19 lykkjur (ermi), setið 1 prjónamerki, það eru 15-16-17-18-19-20 lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki).

Prjónið síðan sléttprjón yfir lykkjur á framstykki og á bakstykki og 1 lykkju slétt, A.1, A.2, A.3, 1 lykkja slétt yfir lykkjur á hvorri ermi, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan.
Í hvert skipti sem A.1 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á breiddina. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-23-25-28-31-33 sinnum = 274-286-306-334-362-382 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 23-24-25-28-31-33 cm frá prjónamerki.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 38-40-43-47-51-54 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 61-63-67-73-79-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-80-86-94-102-108 lykkjur (framstykki), setjið næstu 61-63-67-73-79-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-40-43-47-51-54 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-17-18-17-16-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-48-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 212-224-244-268-288-312 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 61-63-67-73-79-83 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 71-75-79-87-95-103 lykkjur. Haldið áfram með A.2 eins og áður, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 31-31-30-27-25-23 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Tonje Dahlgren wrote:

Tenker på diagrammet selvfølgelig. Hvordan man leser A1, A2 og A3. Tror det kan være her missforståelsen kommer. Jeg leste diagram oven fra og ned, men det er vel motsatt?

07.03.2024 - 18:55

country flag Tonje Dahlgren wrote:

Hei. Jeg har gjort nøyaktig slik det står til og med inndeling til arbeid i fire deler. Jeg har strikket første omg i mønster. Men tallene går ikke opp. Skal man begynne nederst på mønster, eller øverst og ned. Jeg ser andre har kommentert med samme spørsmål. Når jeg tenker meg om er det vanlig å lese nede i fra og opp. Kanskje lurt å spesifisere i mønster hvordan man leser mønsteret Hilsen Tonje

07.03.2024 - 18:51

DROPS Design answered:

Hei Tonje, Ja, diagrammene er lest fra bunnen oppover og fra høyre til venstre (fra retten). God fornøyelse!

08.03.2024 - 06:44

country flag Ursula CHEVALLIER wrote:

Bonjour, après d'avoir tricoté A1,A2 et A3 en hauteur, vous dites de continuer à tricoter 2 x plus A2 , mais où exactement ? au debut du rang , au milieu ou à la fin du rang...désolée, c'est pas très clair pour moi. Merci de m'éclairer sur ce sujet..

21.11.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chevalier, lorsque vous tricotez les diagrammes, vous augmentez dans A.1 (début du motif ajouré) et dans A.3 (fin du motif ajouré), et vous augmentez 6 mailles à chaque fois que vous tricotez les diagrammes, autrement dit, la 2ème fois, vous tricotez A.1 (= 5 m) + A.2 au-dessus des 11 mailles du A.1 précédent, tricotez A.2 comme avant et terminez par A.2 (=6 m) + A.3 (= 6 m) au-dessus du A.3 précédent; vous avez ainsi suffisamment de mailles pour tricoter 2 fois A.2 en plus, entre A.1 et A.3. Bon tricot!

22.11.2023 - 08:56

country flag Loccufier Veerle wrote:

Begriijp niet die A 2 waar komen die steken vandaan en in de breedte breien

14.10.2023 - 16:51

country flag Mette Landen wrote:

Gjelder avsnitt med BOL. Før det strikkes vrangbord står det at det skal ØKES en del masker før det strikkes vrangforestillinger, er det riktig?

25.09.2023 - 10:16

DROPS Design answered:

Hei Mette, Ja, vi anbefaler økte maskene for at vrangborden ikke skal være stram. God fornøyelse!

26.09.2023 - 06:58

country flag Smann wrote:

Hallo Drops-Team, ich habe alle Raglanz-Zunahmen gestrickt (286 M). Jetzt soll ich ohne Zunahmen weiterstricken aber im Digramm werden jede 2. Runde 2 M mehr durch die Zunahme angezeigt. Der Ärmel soll ja aber nicht breiter werden, wie sieht also das Diagramm ohne Zunahmen aus? Es bleibt bei 65 M aber wie geht das Muster weiter? Viele Grüße

23.09.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Smann, wenn Sie die gewünschte 286 Maschen auf der Nadel haben, sollen Sie wie zuvor weiterstricken, bis die Arbeit 23 cm misst, aber jetzt wird aber nicht mehr zugenommen, LochMuster stricken Sie wie zuvor mit A.2 (wenn Sie nicht genügend Maschen haben, um das Lochmuster zu stricken, dann stricken Sie diese Maschen glatt rechts). Viel Spaß beim stricken!

25.09.2023 - 16:02

country flag Hilde Brackman, wrote:

Beste Kan ik dit patroon aub bekomen met gewone breinaalden ? Ik wil er desnoods voor betalen. Ik vind dit super mooi en heb mijn wol (Drops Air) reeds gekocht . Ik hoop zo dat jullie me kunnen helpen. Groetjes Hilde

01.08.2023 - 19:55

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Misschien zou je kunnen kijken of je hulp kunt krijgen bij het breien met de rondbreinaald. Het is eerst enorm oefenen, maar na verloop van tijd voelt het natuurlijk aan.

01.08.2023 - 21:00

country flag Elke wrote:

Beste Ik heb een eerste maal A.1, A.2, A.3 gemeerderd. Wat moet ik nu doen bij de volgende herhaling? Snap ik het goed als ik nu A.1, A.2, A.2, A.3 doe? Groetjes, Elke

25.07.2023 - 21:04

DROPS Design answered:

Dag Elke,

Ja, je kunt dan opnieuw A.1, A.2 en A.3 breien, maar nu brei je een herhaling meer van A.2

01.08.2023 - 20:26

country flag Caroline wrote:

Jeg synes ikke mit mønster ligner det på billedet. Har tjekket at strikkefastheden er opfyldt, men har bare en masse huller og ikke rigtig det der gør det til et mønster

19.07.2023 - 23:25

DROPS Design answered:

Hei Caroline Litt vanskelig å si om du har strikket riktig eller feil uten å se det du har strikket. Når man strikker etter diagram og diagrammer gjentar seg kan det være en ide å bruke maskemarkører etter hvert diagram. Da har du en bedre oversikt at det blir riktig og ikke at mønstret forskyver seg. Du kan også strikke en prøvelapp med bare mønsteret og se om du da ser noen likheter, evnt oppsøk en DROPS butikk og vis frem plagget. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 14:15

country flag Gitte wrote:

Hej igen, jeg svarer på beskeden nedenfor (og tak for hurtigt svar): Jeg forstår ikke at du siger at man ikke behøver at tage ud for at mønsteret skal gå op. Diagrammet viser to ekstra masker på hver anden omgang. Så hvis jeg fortsætter med diagrammet, så mangler jeg + 2 masker hver anden omgang..? Mvh Gitte

19.06.2023 - 18:03

DROPS Design answered:

Hej Gitte, i det tilfælde du ikke har nok masker til mønster, så strikker du glatstrik :)

22.06.2023 - 14:08