DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Jewels Tide Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, röndum og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.

DROPS 239-21
DROPS Design: Mynstur r-812
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 83, perla
100-150-150-150-150-150 g litur 76, ljós gallabuxnablár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 1 stykki í allar stærðir.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
17 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á öllum umferðum með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (eftir því hvort fyrri umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum).
Í byrjun á öllum umferðum með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Lykkjum er fækkað í umferð með stuðlum. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman, þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn og dragið í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðull færri).

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið með litnum perla þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm. Heklið síðan rendur þannig: Heklið 5 umferðir með litnum perla með 1. umferð frá röngu, heklið 1 umferð með litnum ljós gallabuxnablár (umferð með litnum ljós gallabuxnablár er alltaf hekluð frá réttu). Endurtakið þessar 6 umferðir að loknu máli. Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá í litnum perla í hvert skipti sem heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er heklað þannig: Þegar heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er þráðurinn með litnum perla lagður yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, það er heklað utan um þráðinn þannig að hann sést ekki og fylgir með yfir umferðina.

RENDUR ERMI:
Það eru heklaðar rendur þannig: Heklið 5 umferðir með litnum perla með 1. Umferð frá röngu, heklið 1 umferð með litnum ljós gallabuxnablár (umferð með litnum ljós gallabuxnablár er alltaf hekluð frá réttu). Endurtakið þessar 6 umferðir að loknu máli.
Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá í litnum perla í hvert skipti sem heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er heklað þannig: Þegar heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er þráðurinn með litnum perla lagður yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, það er heklað utan um þráðinn þannig að hann sést ekki og fylgir með yfir umferðina.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en kantur í hálsmáli er heklaður í lokin. Peysan er hekluð í röndum.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Það eru heklaðar RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-24 lykkjur, endið með A.1C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið með A.2A, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm, í lok næstu umferða frá réttu, heklið 20-26-26-20-26-26 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Síðan er heklað þannig (frá röngu): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 16-22-22-16-22-22 loftlykkjum, A.2C, A.2B þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið A.2A. Heklið síðan þannig (séð frá réttu): A.2A, A.2B þar til 7 stuðlar eru eftir, heklið A.2C = 39-45-45-45-51-57 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar frá röngu fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýju loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 45-51-51-51-57-63 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er hekluð 1 mynstureining fleiri af A.2B á breiddina.

Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm.
Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðla í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-24 lykkjur, endið með A.1C. haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið með A.2A, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm, í lok næstu umferðar frá röngu, heklið 20-26-26-20-26-26 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Síðan er heklað þannig (frá réttu): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 16-22-22-16-22-22 loftlykkjum, A.2A eins og áður, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. Síðan er heklað þannig: A.2C, A.2B þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið A.2A = 39-45-45-45-51-57 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. Það eru heklaðar rendur eins og á hægra framstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar frá réttu fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýju loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 45-51-51-51-57-63 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er hekluð 1 mynstureining fleiri af A.2B.

Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm.
Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla.
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Í lok þessarar umferðar eru heklaðar 27-33-33-27-33-33 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á vinstri öxl að aftan (frá röngu). Klippið þráðinn og festið. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Það eru heklaðar rendur eins og á framstykkjum.

BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu með vinstri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.1C = 69-75-75-81-87-99 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið þannig:
Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.2C. A.2 er endurtekið á hæðina. Fyrsta stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur eins og áður.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 81-87-87-93-99-111 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú eru heklar 2 mynstureiningar fleiri af A.2B.

Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm.
Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Bakstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Heklið 65-65-65-71-77-77 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 63-63-63-69-75-75 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkja), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar á undan næsta stuðli (heklast á milli stuðla), 1 loftlykkja, hoppið yfir 3 stuðla *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 stuðla á unda næsta stuðli, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 63-63-63-69-75-75 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 54-54-54-60-66-66 lykkjur og endið með A.2C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. Heklið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 6-6-6-5-4½-4½ cm millibili alls 8-8-8-9-11-10 sinnum í hvorri hlið = 47-47-47-51-53-55 lykkjur í umferð. Klippið þræðina og festið þegar ermin mælist 55-55-56-55-54-52 cm ofan frá og niður.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana. Saumið saman ermasauminn, en skiljið eftir klauf ca 4 cm efst á ermi. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.
Saumið hliðarsauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 10 cm fyrir klauf í hvorri hlið. Saumið tölu efst í hálsmál á vinstra framstykki, tölunni er hneppt í gegnum gat í mynstri á hægra framstykki.

KANTUR:
Byrjið neðst í hægra framstykki og heklið með heklunál 4 með litnum perla þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loftlykkjubogi *, heklið frá *-* í kringum allt opið á peysunni. Klippið þráðinn og festið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.05.2023
Ný mynsturteikning A.2A, A.2B og A.2C.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.03.2024
Teikning með máli hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju / loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkjuna
symbols = 1 stuðull um loftlykkju / loftlykkjuboga
symbols = 3 STUÐLAR HEKLAÐIR Í SÖMU LYKKJU:
Heklið 2 stuðla í næstu fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = 3 STUÐLAR HEKLAÐIR UM LOFTLYKKJU/LOFTLYKKJUBOGA:
Heklið 2 stuðla um loftlykkju / loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul um sömu loftlykkju / loftlykkjuboga og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = fyrsta umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B

diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Britta wrote:

Drogs 239-21 När jag virkar framstycken så ska man utöka med 20 maskor för hals och sedan virka 18 stolpar i de 20 maskorna. Min fråga är om det ska stämma med mönsterdiagrammen A2c osv. Jag får det inte att stämma med mönstret i övrigt

13.02.2024 - 10:49

DROPS Design answered:

Hej Britta, jo mønsteret skal stemme, du hækler de 3 masker i rapporten 6 gange over de nye 18 masker :)

23.02.2024 - 10:51

country flag Iseult wrote:

Liebe Drops-Team, wunderschönes Jäckchen, bitte weiter so bei den Häkelanleitungen! Allerdings verstehe ich die Längenangabe "ab der Schulter" nicht ganz: Damit ich bei der Gesamtlänge auf 54 cm komme, müsste das Vorderteil ab dem Halsausschnitt (und nicht ab der Schulter, wie es in der Anleitung steht?) schlussendlich 44 cm messen. Stimmt das so?

11.01.2024 - 15:19

country flag Yvonne wrote:

Hallo, waarschijnlijk doe ik iets fout, maar snap niet wat. Blijf scheef uitkomen bij de hals v.h.voorpand. R. Voorpand. L.voorpand Recht +26 lossen. Recht Averecht averecht + 26 lossen Dit sluit niet aan op elkaar, wat doe ik fout? Vr.gr. Yvonne

19.04.2023 - 11:07

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Na het haken van de 26 lossen keer je het werk en haak je een stokje in de 4e losse van de haaknaald. Dan haak je 1 stokje in elk van de volgende 22 lossen en dan pak je het telpatroon weer op.

27.04.2023 - 08:29

country flag Yvonne wrote:

Hallo, als ik bij het linker voorpand moet meerderen voor de hals aan de verkeerde kant kom ik een toer lager uit als bij het rechter voorpand. Vr.gr. Yvonne

16.04.2023 - 09:44

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Je haakt de voorpanden precies op dezelfde manier, alleen bij het rechter voorpand ben je op de goede kant wanneer je lossen haakt voor de hals en bij het linker voorpand ben je op de verkeerde kant als je lossen haakt voor de hals. Je bent dus dan wel op dezelfde toer.

17.04.2023 - 20:59

country flag Yvonne wrote:

Als ik patroon a2 verder haak tot een bepaalde lengte, hoe tel ik dan de toeren. Ik begin de 1ste toer op de rechte kant en eindig met de laatste toer ook op de rechte kant (zijn 17 toeren) hoe begin ik het patroon in de volgende toer? Volgens het patroon zou ik weer op de rechte kant moeten beginnen maar ik zit dan weer op de averechtse kant. Vr.gr. Yvonne

02.04.2023 - 12:57

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Je begint A.2 weer opnieuw vanaf de eerste toer en het eerste stokje wordt vervangen door 3 lossen. Aan het eind haak je 1 stokje. Het maakt daarbij niet uit of je aan de goede of de verkeerde kant bent.

05.04.2023 - 10:06

country flag Julia wrote:

Al terminar la secuencia A2, se vuelve a comenzar por la primera fila? Si es así donde se hacen los puntos alto que no van envueltos?

28.03.2023 - 11:25

DROPS Design answered:

Hola Julia, sí, se comienza en la primera fila de nuevo. El primer punto alto alrededor del arco de cadeneta se trabaja en la primera cadeneta (arco de 1 cadeneta) y el segundo punto alto alrededor del arco se trabaja en la tercera cadeneta (en una repetición hay 3 arcos de 1 cadeneta).

02.04.2023 - 16:15

country flag Helle wrote:

Hej Synes ikke rigtig jeg kan få mønstret til at passe nå jeg skal starte op igen efter at have strikket hele A2a A2b og A2c engang eller kan jeg bare ikke se det.

09.03.2023 - 12:20

DROPS Design answered:

Hei Helle Litt vanskelig å vite uten å se arbeidet ditt. Gjelder det en av forstykkene, bakstykket eller erme? Hvilken str. hekler du etter? Har du heklet A.2a+b+c 1 gang i høyden? Når A.2a+b+c hekles flere ganger i høyden skal diagrammene passe over hverandre. mvh DROPS Design

13.03.2023 - 09:33

country flag Akane wrote:

Sandy beach

22.01.2023 - 11:18

country flag Miranda Davies wrote:

Garden Rows

21.01.2023 - 20:43

country flag Monica wrote:

Spa sablé

20.01.2023 - 08:55