DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frosted Mountains Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-15
DROPS Design: Mynstur w-883
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-850 g litur 16, hvítur

Eða notið:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-700-750-800 g litur 01, hvítur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál þegar fækka á um 1 lykkju):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í sléttprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUM Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUM Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjurnar í sléttprjóni (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 7, 16, 26, 35 og 45 cm
M: 7, 17, 27, 37 og 47 cm
L: 7, 17, 28, 38 og 49 cm
XL: 7, 16, 25, 34, 43 og 52 cm
XXL: 7, 16, 25, 35, 44 og 53 cm
XXXL: 7, 16, 26, 35, 45 og 54 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónað fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 94-98-110-122-134-138 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem fækkað er um 10-8-10-12-14-12 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 84-90-100-110-120-126 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-8-10-10-10-11 cm frá uppfitjunarkanti.
Síðan er mynstrið prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1-0-1-1-1-1 lykkju innan við 1 lykkju í garðaprjóni = 83-90-99-109-119-125 lykkjur.

Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið áfram frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-0-0-1-2-1 lykkja sem fyrsta lykkjan í A.2, prjónið A.2 alls 10-11-12-13-14-15 sinnum, prjónið 1-0-1-2-3-2 lykkjur eins og síðasta lykkja í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-0-2-1-0-0 lykkjur sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 12-13-14-16-18-19 sinnum, A.3C, prjónið 0-1-2-1-0-0 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem aukið er út um 1-0-1-1-1-1 lykkju í fyrstu umferð innan við 1 lykkju í garðaprjóni = 84-90-100-110-120-126 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina mælist stykkið ca 26-27-29-30-30-31 cm.

Síðan er A.2 prjónað frá réttu eins og útskýrt er hér jafnframt því sem fækkað er um 1-0-1-1-1-1 lykkju í fyrstu umferð = 83-90-99-109-119-125 lykkjur. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-0-1-2-1 lykkjur eins og fyrsta lykkjan í A.2, prjónið A.2 alls 10-11-12-13-14-15 sinnum, prjónið 1-0-1-2-3-2 lykkjur eins og síðasta lykkja í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 2-3-7-9-12-11 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-84-85-91-95-103 lykkjur.

Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-1-4-1-0 lykkjur eins og fyrsta lykkjan í A.4A, A.4A, prjónið A.4B alls 6-7-7-7-8-9 sinnum, prjónið A.4C, 3-1-1-4-1-0 lykkjur eins og síðasta lykkjan í A.4C og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið A.5 alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fellið af miðju 21-22-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til þess að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 7-7-7-8-8-9 lykkjur á þráðinn 3 sinnum og setjið síðan síðustu 5-7-7-6-8-8 lykkjur á þráðinn. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráðinn. Setjið til baka þær 26-28-28-30-32-35 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að sleppa við göt þar sem snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 53-57-61-65-73-77 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið síðan frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 5-7-5-5-7-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni = 48-50-56-60-66-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 7-8-10-10-10-11 cm frá uppfitjunarkanti.

Síðan er mynstrið prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 47-49-55-59-65-67 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-1-0-2-1-2 lykkjur sem fyrsta lykkja í A.2, prjónið A.2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum, prjónið 1-2-1-3-2-3 lykkjur sem síðasta lykkja í A.2 og 5 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-2-1-1-2 lykkjur sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 5-5-6-7-8-8 sinnum, A.3C, prjónið 1-2-2-1-1-2 lykkjur sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og 5 lykkjur í sléttprjóni eins og áður við miðju að framan, jafnframt er aukið út um 1 lykkju í fyrstu umferð = 48-50-56-60-66-68 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina mælist stykkið ca 26-27-29-30-30-31 cm.
Prjónið A.2 frá réttu eins og útskýrt er hér jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju í fyrstu umferð = 47-49-55-59-65-67 lykkjur. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-1-0-2-1-2 lykkjur sem fyrsta lykkja í A.2, prjónið A.2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum, prjónið 1-2-1-3-2-3 lykkjur sem síðasta lykkja í A.2 og 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.

Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 2-3-7-9-12-11 lykkjur fyrir handveg = 45-46-48-50-53-56 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.4 frá réttu eins og útskýrt er hér jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 47-47-49-49-53-57 lykkjur í fyrstu umferð. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-1-1-3-0 lykkjur sem fyrsta lykkja í A.4A, A.4A, prjónið A.4B alls 3-3-3-3-3-4 sinnum, prjónið A.4 C, 0-0-1-1-3-0 lykkjur sem síðasta lykkja í A.4C og 5 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 45-47-48-50-53-56 lykkjur í fyrstu umferð. Endurtakið A.5 alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er framstykkið prjónað til loka í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið og 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.

Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið ystu 15-15-16-16-17-17 lykkjur á þráð við miðju að framan fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráðinn, setjið til baka þær 26-28-28-30-32-35 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 53-57-61-65-73-77 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið síðan frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og fækkið jafnframt um 5-7-5-5-7-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 48-50-56-60-66-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið þar til stykkið mælist 7-8-10-10-10-11 cm frá uppfitjunarkanti.

Síðan er mynstrið prjónað frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 47-49-55-59-65-67 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 0-1-0-2-1-2 lykkjur sem fyrsta lykkjan í A.2, prjónið A.2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum, prjónið 1-2-1-3-2-3 lykkjur sem síðasta lykkjan í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, 1-2-2-1-1-2 lykkjur sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 5-5-6-7-8-8 sinnum, A.3C, prjónið 1-2-2-1-1-2 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1 með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið, jafnframt er aukið út um 1 lykkju í fyrstu umferð = 48-50-56-60-66-68 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina mælist stykkið ca 26-27-29-30-30-31 cm.
Prjónið A.2 frá réttu eins og útskýrt er hér jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju í fyrstu umferð = 47-49-55-59-65-67 lykkjur. Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, 0-1-0-2-1-2 lykkjur sem fyrsta lykkjan í A.2, prjónið A.2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum, prjónið 1-2-1-3-2-3 lykkjur sem síðasta lykkjan í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 2-3-7-9-12-11 lykkjur fyrir handveg = 45-46-48-50-53-56 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.4 frá réttu eins og útskýrt er hér jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 47-47-49-49-53-57 lykkjur í fyrstu umferð. Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-3-0 lykkjur sem fyrsta lykkjan í A.4A, A.4A, prjónið A.4B alls 3-3-3-3-3-4 sinnum, prjónið A.4 C, 0-0-1-1-3-0 lykkjur sem síðasta lykkja í A.4C og 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 45-47-48-50-53-56 lykkjur í fyrstu umferð. Endurtakið A.5 alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er framstykkið prjónað til loka í sléttprjóni með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið.

Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið ystu 15-15-16-16-17-17 lykkjur á þráð við miðju að framan fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráðinn, setjið til baka þær 26-28-28-30-32-35 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl.

ERMI:
Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 11-9-11-9-11-9 lykkjur jafnt yfir = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 23.-24.-25.-26.-27.-28. lykkju í umferð (mitt á ermi). Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar auka á út lykkjum undir ermi og prjónamerki mitt á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja.

Nú er mynstrið prjónað og lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan:
Teljið út frá miðjulykkju hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki á ermi á að passa við miðjulykkju í mynsturteikningu. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið mynstur þannig: A.1, A.2, A.4B, A.5. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka í þessari röð, er prjónað sléttprjón að loka máli.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-12-13-14-12 cm, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-9-10-11-12 sinnum = 61-65-67-71-75-79 lykkjur (þessar útaukningar eru gerðar til loka áður en ermakúpan er prjónuð).
Þegar stykkið mælist ca 47-46-44-42-41-42 cm, skiptið stykkinu við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fellið af þegar ermin mælist 48 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju – byrjið við handveg og saumið niður að stroffi þannig að það myndist klauf í hliðum.
Saumið ermakúpuna við handveg innan við ystu lykkju á framstykki/bakstykki.
Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 88 til 106 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð mitt að framan) á stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = e er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Sylvia wrote:

I've just finished knitting the cardigan and sleeve cape is much shorter than armhole for joining and I done everything by the pattern what have I done wrong ? I increased the 65sts as stated

13.06.2023 - 12:26

DROPS Design answered:

Dear Sylvia, in this video we show how to finish such a sleeve (first worked in the round then back and forth) and how to sew the sleeve around armhole. In the 2nd size you should have 65 sts = appro. 38 cm / 2 = 19 cm just as deep as the armhole in this size (see chart). Happy assembly!

13.06.2023 - 13:40

country flag Sylvia wrote:

I’m struggling to understand left front neck shaping m size after says slip 15sts of for neck it says decrease 1st 4 times do I start that on next row or wait till measures 48cm? If I do it then will have to carry on bit longer for shoulder. After casting off for shoulder should I be left with the 15sts for neck?

01.06.2023 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Sylvia, you are working size M, right? then when piece measures 46 cm, work one row from wrong side slipping the first 15 sts on a thread (work them first), then work row to the end and continue in pattern as before and decrease for neck on next row from RS (at the end of row) as explained under DECREASE TIP. At the same time, work short rows for shoulder when piece measures 48 cm. After all stitches are decreased for neck there are 28 sts for shoulder. You will work the 15 sts from thread when working neck edge afterwards. Happy knitting!

01.06.2023 - 16:46

country flag Rey wrote:

Bonjour Je ne comprend pas pour la tete manche : Diviser l ouvrage au fil marqueur ? Il faut que je tricote separement en 2 fois au fil marqueur ? Et après faire une couture sur l épaule ? Merci pour votre réponse. Bonne journée

03.04.2023 - 08:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rey, la manche se tricote en rond jusqu'à la tête de manche, on continue ensuite en rangs, en commençant au milieu sous la manche (au niveau du marqueur du début des tours), Dans cette vidéo, nous montrons comment nous continuons la manche en rangs. Bon tricot!

11.04.2023 - 10:57

country flag Hiiroki wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment faire l'encolure. Si on prend celle du dos tailles S, j'ai 26 mailles de chaque côté en attentes, 21 mailles rabattues au milieu et 3 mailles entre chaque.... "Diminuer ensuite pour l'encolure 3 fois 1 maille tous les rangs sur l'endroit " cela me semble impossible d'autant que si je dois rabattre les mailles du milieu en premier je ne peux plus faire de diminution.... Merci d'avance de votre aide

28.03.2023 - 19:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hiiroki, vous devez former l'encolure et le biais des épaules en même temps; rabattez les 21 mailles centrales pour l'encolure et mettez les mailles de l'épaule en attente (= en début de rang sur l'envers (épaule gauche dos) / sur l'endroit (épaule droit dos), et en même temps, rabattez pour l'encolure en début de rang à partir de l'encolure (sur l'endroit, épaule gauche dos / sur l'envers, épaule droite dos). Bon tricot!

29.03.2023 - 09:46

country flag Janne wrote:

Lumi mereliival

19.01.2023 - 22:03