Sand Piper Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 133-137-143-149-155-161 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 36-38-40-44-48-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 169-175-183-193-203-211 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (í 5. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat), munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 42-44-50-56-60-66 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 211-219-233-249-263-277 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2C og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út um 42-46-50-58-62-66 lykkjur jafnt yfir = 253-265-283-307-325-343 lykkjur (nú er pláss fyrir 38-40-43-47-50-53 mynstureiningar með A.2B). Ör-2: Aukið út um 38-42-46-56-58-58 lykkjur jafnt yfir = 291-307-329-363-383-401 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu þannig: Ör-3: Aukið út um 29-38-41-47-52-54 lykkjur jafnt yfir = 320-345-370-410-435-455 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.4 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, en athugið að í sumum stærðum skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan, áður en A.4 hefur verið prjónað til loka. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá prjónamerki, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Ef ekki hefur verið búið að prjóna A.4 til loka í þinni stærð, prjónið A.4 til loka á fram- og bakstykki og ermum. Prjónið 53-57-60-66-72-75 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 94-103-110-122-131-141 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 53-57-60-66-72-75 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-237-254-278-303-323 lykkjur. Ef ekki er búið að prjóna A.4 til loka í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum mitt undir hvorri ermi, en passið uppá að mynstrið haldið áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstrið eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 221-237-255-279-303-323 lykkjur (ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka í þinni stærð er lykkjufjöldinn jafnaður út í fyrstu umferð á fram- og bakstykki). Þegar prjónaðir hafa verið 6-6½-7-7-7½-7½ cm sléttprjón eftir A.4, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (í 7. umferð í mynsturteikningu er þessi lykkja prjónuð slétt), endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni *. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið í 6-6½-7-7-7½-7½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið síðan frá *-* einu sinni til viðbótar. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-26-26-27-27-27 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-24-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 243-261-279-305-329-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-74-82-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur). Byrjið umferð við prjónamerki. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að mynstrið haldið áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstrið eins langt og hægt er inn að miðju mitt undir ermi, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn. Síðan er lykkjum fækkað mitt undir ermi og mynstrið prjónað. Lestu kaflann ÚRTAKA og MYNSTUR að neðan áður en þú prjónar áfram! ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-8-4-3-2½-2½ cm millibili alls 5-5-8-11-12-13 sinnum = 60-64-66-68-70-72 lykkjur. MYNSTUR: Þegar prjónað hefur verið alls í 7-8-7-6-5-5 cm sléttprjóni eftir A.4, prjónið þannig: * Prjónið A.3 hringinn á ermi, síðan eru prjónaðir 7 cm sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, síðan er A.3 prjónað einu sinni til viðbótar. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón. Prjónið þar til ermin mælist 39-39-37-37-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 72-76-78-80-84-86 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 47-47-45-45-43-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Diana wrote:
Wat zijn de afmetingen van dit vest in de verschillende maten? De patroontekening ontbreekt namelijk. Vriendelijke groet, Diana Labrie
12.03.2023 - 21:05DROPS Design answered:
Dag Diana,
Helemaal onderaan het patroon, onder de telpatronen, vind je de maattekening.
14.03.2023 - 20:44María Del Carmen wrote:
Arena
20.01.2023 - 16:13Marja Stoelwinder wrote:
Mooie vest
18.01.2023 - 08:59Doris wrote:
Sehr schöne Jacke, immer tragbar.
18.01.2023 - 07:58Fond wrote:
Léger et fin très délicat
17.01.2023 - 14:23