DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nautical Melody

Hekluð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 239-9
DROPS Design: Mynstur ml-097
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
350-400-400-450-500-550 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 21, ljós blár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 7.

HEKLFESTA:
6 stuðlahópar á breidd og 6 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
* 1 umferð með litnum ljós blár, 4-4-4-5-5-5 umferðir með litnum natur *, heklið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina, endið með 1 umferð með litnum ljós blár. Síðan er heklað að loknu máli með litnum natur.

RENDUR ERMI:
* 1 umferð með litnum ljós blár, 4-4-4-5-5-5 umferðir með litnum natur *, heklið frá *-* alls 2 sinnum á hæðina, endið með 1 umferð með litnum ljós blár. Síðan er heklað að loknu máli með litnum natur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál.

FRAMSTYKKI:
Heklið 59-67-71-75-83-87 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 7 með litnum natur í DROPS Melody.
Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 58-66-70-74-82-86 fastalykkjur og 1 loftlykkja.
Næsta umferð er hekluð frá réttu eins og mynsturteikning A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 28-32-34-36-40-42 stuðlahópar + 1 stuðull í hvorri hlið.
Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.2, þ.e.a.s. A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2C í síðasta stuðul. Haldið svona áfram með mynstur – A.2 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-16-16 cm, heklið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið heklaðar til loka, heklið með litnum natur að loka máli. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð, heklið 1 keðjulykkju efst í fyrsta stuðlahóp, 3 loftlykkjur (= A.2A), heklið A.2B þar til 1 stuðlahópur er eftir og 1 stuðull í lok umferðar, heklið A.2C í stuðlahópinn, snúið.
Heklið síðan fram og til baka eins og áður með 26-30-32-34-38-40 stuðlahópa og 1 stuðul í hvorri hlið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-54-56-58 cm, heklið A.3 yfir fyrstu axlalykkjur frá réttu þannig: Heklið A.3A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 7-9-10-10-12-13 sinnum, heklið A.3C = 9-11-12-12-14-15 stuðlahópa með 1 stuðul í hvorri hlið. Haldið svona áfram með A.3 fram og til baka. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 7-9-10-10-12-13 stuðlahópa fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hvorri hlið þar til framstykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið.
Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Heklið bakstykkið alveg eins og framstykkið þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Byrjið frá réttu í hlið og heklið öxl þannig: Heklið A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 7-9-10-10-12-13 sinnum, heklið A.2C efst í næsta stuðlahóp, snúið. Heklið 7-9-10-10-12-13 stuðlahópa til baka með 1 stuðul í hvora hlið. Klippið þráðinn og festið. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti. Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Heklið 43-45-49-51-53-55 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 7 með litnum natur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 42-44-48-50-52-54 fastalykkjur og 1 loftlykkja.
Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 20-21-23-24-25-26 stuðlahópar + 1 stuðull í hvorri hlið.
Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.2, þ.e.a.s. heklið A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2C í síðasta stuðul. Haldið svona áfram með mynstur – A.2 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist 22-19-19-15-13-12 cm, heklið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið heklaðar til loka, heklið með litnum natur þar til ermin mælist 47-44-44-43-41-40 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant þannig að saumurinn verði flatur.
Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið kant í kant að byrjun á klauf neðst ca 20 til 22 cm í hvorri hlið.
Saumið ermasauma saman, en skiljið eftir klauf ca 2 cm efst á ermi. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn, heklið 1 keðjulykkju með heklunál 7 með litnum natur, heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið síðan ca 36-36-36-42-42-42 stuðlahópa jafnt yfir í kringum hálsmál – stillið e.t.v. fjölda stuðlahópa þannig að kanturinn í hálsmáli leggist fallega, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Heklið 1 umferð til viðbótar með 1 stuðlahóp á milli hverra stuðlahópa frá fyrri umferð (umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju). Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli)
symbols = 1 stuðull í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð / 1 stuðull efst á stuðlahópi
symbols = 3 stuðlar saman (1 stuðlahópur) í fastalykkju, þ.e.a.s. heklið 2 stuðla í fastalykkju að neðan, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum stuðlunum, heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu fastalykkju, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 3 stuðlar saman (1 stuðlahópur), á milli 2 stuðlahópa, þ.e.a.s. heklið 2 stuðla um bilið á milli næsta stuðlahóps, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum stuðlunum, heklið 1 stuðul til viðbótar um sama bilið, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig A.1/A.3 heklast í lykkjurnar fyrir neðan
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Annika B wrote:

Hej ! Har svårt att förstå halskants diagrammet behöver hjälp . kan ni hjälpa mig ?

06.03.2024 - 17:39

country flag Kinga wrote:

I ci chodzi w momencie A3 przy przerabianiu dekoltu? Czy robiąc A3C mam po każdej grupie słupków robić dodatkowy słupek? I ile grup słupków powinnam mieć dla rozmiaru S po skończeniu przerabiania deliktu? Jest opcja dodania zdjęcia przodu sweterka żeby można było zobaczyć jak to powinno wyglądać? 😅

19.07.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Witaj Kingo, niestety nie posiadam innego zdjęcia, ale przy przerabianiu dekoltu ten skos, który powstaje, jest to podkrój dekoltu (wykonujesz każde ramię osobno). Przerabiając schemat A.3 po ostatniej grupie słupków przerabiasz 1 słupek w górę pęczka słupków poprzedniego rzędu. Obracasz robótkę i przerabiasz 3 oczka łańcuszka i pęczek słupków w otwór za pęczkiem słupków poprzedniego rzędu (w każdym kolejnym rzędzie będzie coraz mniej pęczków słupków). Po przerobieniu schematu A.3 będziesz mieć 9 pęczków słupków z 1 słupkiem z każdej strony. Pozdrawiamy!

20.07.2023 - 09:25

country flag Leeuwerink wrote:

Dag,\r\n\r\nIk kom toch echt op haaknaald 10 uit en dat vond ik een beetje vreemd omdat ik altijd een haaknaald kleiner moet hebben. Nu heb ik naar het patroon in het Noors gekeken en zij hebben het over stavgrupper. Ik vermoed nu dat bij het proeflapje geen 6 stokjes in de breedte moet doen maar 6 x een stokjesgroep van 3. Is dit mogelijk een foutje in de vertaling?\r\nMet vriendelijke groet, J. Leeuwerink

27.05.2023 - 12:51

country flag Leeuwerink wrote:

Dag, Met de naalddikte 7 bereik ik wel de hoogte maar bij lange na niet de breedte. Als ik dan een naalddikte 8 gebruik wordt de hoogte 12cm maar de breedte wordt dan nog maar 7 cm. Hoe los ik dit op? Normaal gesproken haak ik bij jullie patronen met een naalddikte die 1 punt minder is. Hoor graag van u. Met vriendelijke groet, J. Leeuwerink

21.05.2023 - 12:09

DROPS Design answered:

Dag Leeuwerink,

Bij dit patroon is de breedte maatgevend, dus de stekenverhouding moet in de breedte kloppen. De hoogte kun je aanpassen door meer of minder toeren te haken.

23.05.2023 - 09:51

country flag Cath wrote:

Quelle longueur doit faire la manche pour la taille S ? L’ordre des longueurs semble inversé dans l’explication : « Quand l'ouvrage mesure 22-19-19-15-13-12 cm, crocheter les RAYURES MANCHES - voir ci-dessus. Quand les rayures sont faites, continuer en coloris naturel jusqu'à ce que la manche mesure 47-44-44-43-41-40 cm depuis la chaînette de base« . Faut-il bien lire qu’en taille S on commence les rayures à 13 cm et on arrête l’ouvrage à 41 cm ? Merci

13.05.2023 - 21:57

DROPS Design answered:

Bonjour Cath, en taille S, on commence les rayures quand la manche mesure 22 cm, on continue ensuite en naturel jusqu'à ce que la manche mesure 47 cm de hauteur totale (cf schéma); les 2 derniers cm forment la tête de la manche. Bon crochet!

15.05.2023 - 09:18

country flag Kinga wrote:

Czy jak robię przód na 67 łańcuszków, to znaczy, że powinien on mieć 67cm? Kiedy robię według naprężenia z próbki wychodzi, że dół przodu (tam gdzie są oczka ścisłe) miałby ponad 100cm, kiedy robię słupki łączone mam już normalny rozmiar. :/

23.03.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Witaj Kingo, łańcuszek początkowy jest zwykle szerszy niż pozostała część robótki, ale nie jest to później widoczne. Jeżeli wykonując podstawowy ścieg (słupki) rozmiar wychodzi jak trzeba, to wszystko jest ok. Nic tylko działać dalej :) Pozdrawiamy!

24.03.2023 - 08:33

country flag Marja Stoelwinder wrote:

Deze maat gaat tot xxl maar ik wil het in maat xxxl haken hoeveel lossen moet ik dan hebben

07.03.2023 - 08:27

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Op basis van de stekenverhouding (aantal steken per 10 cm) zou je uit kunnen rekenen hoeveel steken je extra moet opzetten. A.1 herhaalt zich over 4 steken, dus het aantal extra steken dat je opzet moet deelbaar zijn door 4.

08.03.2023 - 12:39

country flag Chantal Dionne wrote:

Partly cloudy sky

21.01.2023 - 04:03

country flag Paulina wrote:

Cloudy Day or just Beautiful Day

20.01.2023 - 12:32

country flag Marja Stoelwinder wrote:

Mooie trui

18.01.2023 - 08:55