DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fabled Harbour Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-10
DROPS Design: Mynstur z-983
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 4010, ljós lavender
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 09, ljós lavender

TÖLUR:
DROPS TALA NR 608: 4-4-4-4-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Þegar lykkjufjöldinn er endurtekinn í uppskrift A.1a og A.5a alltaf talið sem 5 lykkjur, þó að lykkjufjöldinn í nokkrum umferðum í mynstri sé 6 lykkjur (vegna úrtöku/útaukningu í mynstri).

PRJÓNAÐ SAMAN:
FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt.
FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

SLÉTTPRJÓN:
Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri).

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 14, 22 og 30 cm.
M: 6, 14, 22 og 30 cm.
L: 6, 14, 23 og 32 cm.
XL: 7, 16, 25 og 34 cm.
XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm.
XXXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Fram- og bakstykki skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handvegi, síðan er afgangur af ermi prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 272-284-296-320-344-368 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229-239-249-269-289-309 lykkjur í umferð. Nú er prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, endurtakið A.2a þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.1a, aukið út um 1 lykkju, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, endurtakið A.2a þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.2a hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, A.3a, prjónið A.3b þar til 28 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 33 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.3c, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 197-207-217-237-257-277 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 21 cm.
Síðan er mynstur prjónað þannig (fyrsta umferð er frá réttu): 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 0-1-2-0-2-0 lykkjur sléttprjón, A.4 þar til 19-20-21-19-21-19 lykkjur eru eftir, prjónið 1-2-3-1-3-1 lykkjur sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 25 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttprjón þar til 18 lykkjur eru eftir, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir garðaprjón.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið A.5 þar til 19 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Endurtakið fyrstu 2 umferðir af A.5 þar til á að prjóna fyrstu umferð í A.1a (þetta er gert til að mynstri í A.5 verði alveg eins í sömu umferð og í mynstri A.1a). Prjónið A.5 yfir lykkjur í A.5 og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm.

Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki í næstu umferð frá réttu:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 34-36-37-44-46-48 lykkjur slétt (hægra framstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-4-6-6-12-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið 89-91-95-101-105-109 lykkjur slétt (bakstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-4-6-6-12-18 lykkjur fyrir handveg, 34-36-37-44-46-48 lykkjur slétt, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 52-54-55-62-64-66 lykkjur.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Prjónið 3 sléttar umferðir (A.1a og A.2a heldur áfram eins og áður). Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 lykkja garðaprjón, 0-2-3-2-4-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 þar til 19 lykkjur eru eftir, 1 lykkja sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, 0-1-1-1-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til 19-20-21-20-21-22 lykkjur eru eftir, 1-2-3-2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 9-9-9-10-10-11 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til eftir eru 17-18-18-22-23-23 lykkjur, setjið síðustu 17-18-18-22-23-23 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
* Prjónið 1 lykkju SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur.

SJALKRAGI:
Setjið 17-18-18-22-23-23 lykkjur frá þræði á hringprjón 5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1a og A.2a eins og áður og garðaprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 52-54-55-62-64-66 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 3 umferðir slétt (A.1a og A.2a heldur áfram eins og áður).
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið A.6 þar til 2-4-5-4-6-8 lykkjur eru eftir, 1-3-4-3-5-7 lykkjur sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón.
Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 0-1-2-1-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til eftir eru 2-3-3-3-4-5 lykkjur, 1-2-2-2-3-4 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón.
Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 9-9-9-10-10-11 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til eftir eru 17-18-18-22-23-23 lykkjur, setjið síðustu 17-18-18-22-23-23 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
* Prjónið 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur.

SJALKRAGI:
Setjið 17-18-18-22-23-23 lykkjur frá þræði á hringprjón 5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1a og A.2a eins og áður og garðaprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 89-91-95-101-105-109 lykkjur.
Prjónið 3 umferðir slétt (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 lykkja garðaprjón, 3-0-2-1-3-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 þar til eftir eru 5-2-4-3-5-3 lykkjur, 4-1-3-2-4-2 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm.
Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
1 lykkja garðaprjón, 3-0-2-1-3-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til eftir eru 5-2-4-3-5-3 lykkjur, 4-1-3-2-4-2 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (36-37-38-41-42-44 lykkjur eftir á hvorri öxl). Haldið áfram með mynstur yfir lykkjur sem ganga upp í mynstri, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 35-36-37-40-41-43 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig:
* Prjónið mynstur eins og áður þar til 9-9-9-10-10-11 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur.
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
* Prjónið 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
* Prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 50-50-50-60-60-60 lykkjur í umferð. Nú er endurtekið A.1a og A.2a þar til A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina (A.1a = 4 sinnum). Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5.
Prjónið A.7 hringinn yfir allar lykkjur. Endurtakið A.7 á hæðina að loka máli.
Þegar stykkið mælist 14-14-13-13-13-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5½-4-3-4½-3-2½ cm millibili alls 6-8-10-7-9-11 sinnum = 60-64-68-70-74-78 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Þegar ermin mælist 45-45-44-43-41-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá prjónamerki mitt undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Fellið af þegar ermin mælist ca 46-46-46-45-45-45 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í I-cord kanti. Saumið saman sjalkragann mitt að aftan (passið uppá að saumurinn snúi í rétta átt þegar flíkin er mátuð). Saumið sjalkragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju yfir á prjóninn eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = lyftu 1 lykkju yfir á prjóninn eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Grit wrote:

Hallo, die abgebildete Jacke (Foto) hat weder Schalkragen noch Armkugeln (wie in der Anleitung beschrieben). Auch im Diagramm gibt es keine Armkugel. Das irritiert.... LG

14.12.2023 - 20:14

DROPS Design answered:

Liebe Grit, diese Jacke hat einen einfachen Schalkragen, der wie in Video (aber mit mehr Maschen) gestrickt wird. Es sind keine richtige Armkugel, aber die letzten cm werden in Hin- und Rückreihen gestrickt - siehe Maßskizze und passende Video. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2023 - 08:18

country flag Katie Miller wrote:

Help please! I can’t find a video for “sew shoulder seams inside 1 stitch on I-cord edge”. I’m so excited to have completed this and can’t wait to wear it.

06.12.2023 - 06:14

DROPS Design answered:

Dear Katie! All the relevant videos for every pattern can be found below the instructions and diagrams. Do not forget that you van roll down the list, if you click within the frame itself- I hope this helps. Happy Knitting!

10.12.2023 - 21:01

country flag Grit wrote:

Die vorletzte und letzte Reihe von A1a gehen nicht auf. Die vorletzte Reihe von A1a ergeben 4 Maschen, darüber soll man aber 5 Maschen stricken. ich denke, da müssen ZWEI BLINDFELDER in die letzte Reihe von A1a.

05.12.2023 - 10:00

DROPS Design answered:

Liebe Grit, beachten Sie, daß bei der 3. Reihe in A.1a nur 1 Masche abgenommen wird: 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 2 Maschen rechts, die abgehobene Masche über die gestrickten ziehen, die 3 rechte Maschen sind jetzt nur noch 2, so A.1a ist nach dieser Reihe und bei der letzten Reihe nur 5 Maschen, und bei der 1. Reihe wieder 6 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

05.12.2023 - 15:59

country flag Kathrin wrote:

Ich bin beim linken Vorderteil und frage mich, was ich mit den 9 Maschen machen soll, die ich laut Anleitung 3x weniger stricken muss. Ich finde leider nicht, was ich am Ende mit diesen 9 Maschen machen soll. Soll ich sie abketten? Danke

02.10.2023 - 23:55

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, hier werden verkürzten Reihen gestrickt, dh die letzten 9 Maschen der Reihe (für den Schulter) nicht stricken, wenden und die nächste Reihe stricken, wenden, diese 2 Reihen stricken Sie insgesamt 3 Mal - schauen Sie mal dieses Video, wir zeigen, wie man solche verkürzten Reihen strickt, und wie die Maschen für den Schulter abgekettet werden. Viel Spaß beim stricken!

03.10.2023 - 08:13

country flag Isabelle Mallet wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les explications. Faut il tricoter A1et ensuite A2 pendant 9 rangs don on retrouve avec 2 m endroit, 2 m envers 4 m endroits et 2 m envers et 2 m endroit et le 10 eme rang on effectue les diminutions…et ensuite on tricote en suivant A1a et A2 a? Merci pour votre reponse

22.09.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mallet, vous tricotez d'abord alternativement (A.1 et A.2) en entier (vous allez diminuer au 10ème rang), puis vous tricotez A.1a après les mailles de bordure devant comme avant, vous répétez ensuite A.2a jusqu'au dernier A.1 du rang, avant la bordure devant, et vous terminez par A.1a et la bordure devant. Bon tricot!

25.09.2023 - 08:16

country flag Hazel wrote:

For the shawl collar, are the short rows worked over the garter stitch edge or the inner A.2a section?

07.09.2023 - 09:18

DROPS Design answered:

Dear Hazel, the short rows for shawl collar are worked starting from WS (with 7 sts in garter stitch) on left front piece / from RS (with 7 sts in garter stitch) on right front piece. Happy knitting!

07.09.2023 - 09:26

country flag Giada wrote:

Hi, I have a question related to the last comment. The instructions says “7 band stitches, A1a, repeat A2a untill 13 stitches, work A1a, purl 1, 7 band stitches”. A 1a is shorter then A 2a, so my question is, once I reached the end of A1a do I just work A2a all the way right after the 7 band?

19.08.2023 - 08:55

DROPS Design answered:

Dear Giada, once you finish a vertical repeat of A.1a, you will restart the repeat, that is, you will start working row 1 of A.1a again and continue upwards. You will repeat A.2a and A.7 in the same way later on, if you need to repeat them several times vertically before reaching the final length. Happy knitting!

20.08.2023 - 17:32

country flag Julia wrote:

At the beguiling of the “BODY” : «When A2a has been worked 2 times vertically…” does it mean that at the end of A1a I work just A2a, and then start again with A1a-A2a and then only A2a again untill the end? I’m so confused..😵‍💫

18.08.2023 - 11:55

DROPS Design answered:

Dear Julia, A.1a and A.2a are worked over a different number of rows (4 rows for A.1a and 8 rows for A.2a), so that when you have worked A.2a a total of 2 times (= 16 rows), you have worked A.1a a total of 4 times. Happy knitting!

18.08.2023 - 16:12

country flag Shelley Bilodeau wrote:

Is the bottom rib 4p, 2k? If you run A1 then A2 that’s what I see… pls clarify

13.08.2023 - 04:42

DROPS Design answered:

Hi Shelley, Yes, that is correct, the rib is purl 4, knit 2. Happy knitting!

14.08.2023 - 06:49

country flag Päivi Hoivala wrote:

Kuuluuko A3a, A3b ja A3c neuloa koko rivi vai vain yhtä näistä?. Mielestä silmukat ei riitä. Ohjeessa sanotaan, kun olet neulonut piirroksen 3A loppuun, työn pituus on 21 cm. Pusero-ohjeessa ei ole kuin yksi A3.

25.07.2023 - 10:07

DROPS Design answered:

Piirroksen A.3 mallineule neulotaan seuraavasti: Neulo 7 ainaoikeinneulottua silmukkaa (etureuna), A.1a, A.2a, 1 silmukka nurin, A.3a, neulo mallineuletta piirroksen A.3b mukaisesti, kunnes jäljellä on 28 silmukkaa, ja kavenna SAMALLA tasavälein näiden silmukoiden kohdalla 33 silmukkaa, A.3c, A.2a, A.1a, 1 silmukka nurin, 7 ainaoikeinneulottua silmukkaa (etureuna) = 197-207-217-237-257-277 silmukkaa. Eli piirroksen A.3a mallikerta neulotaan kerran, piirroksen A.3b mallikertaa toistetaan ja piirroksen A.3c mallikerta neulotaan kerran kerroksella.

21.08.2023 - 16:55