DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tidal Treasures Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-7
DROPS Design: Mynstur ai-433
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 18, morgunþoka

DROPS TALA NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffið. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½-8-8½ cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 89-93-95-101-105-111 lykkjur með DROPS Air yfir hringprjóna 5 og hringprjóna 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið eftir hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroffið þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar = 97-101-103-109-113-119 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 8 cm.
Setjið 1 prjónamerki innan við 5 ystu lykkju í umferð. Berustykkið mælist frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-7-12-20-23-24 lykkjur jafnt yfir = 101-108-115-129-136-143 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, A.1 alls 13-14-15-17-18-19 sinnum, endið með 5 lykkjur garðaprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 alls 0-0-1-1-2-2 sinnum á hæðina, síðan er prjónað A.3 (kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 257-276-295-333-352-371 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-6-4-1-2 lykkjur jafnt yfir = 265-285-301-337-353-373 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:

SKIPTIÐ STYKKINU FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG:
Prjónið 43-47-49-54-58-62 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-97-105-113 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 43-47-49-54-58-62 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 173-189-201-221-241-261 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 46-50-53-58-63-68 lykkjum frá réttu á prjóni (vinstra framstykki). Setjið næstu lykkjur á þráð eða hjálparprjón.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) = 56-60-64-70-76-82 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið ystu 46-50-53-58-63-68 lykkjur í annarri hliðinni á stykki á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) = 56-60-64-70-76-82 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Setjið þær 81-89-95-105-115-125 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 99-107-115-127-139-151 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu):
UMFERÐ 1 (ranga): 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Fellið af, aðeins laust.

ERMI:
Setjið 52-54-58-66-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-66-74-76-80 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 4-4-6-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið kant í hálsmáli niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum í hvorri hlið á hálsmáli (að öxlum).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Bettina wrote:

Ich habe das Problem gelöst: der Rapport ist okay. Bei der Fortführung habe ich die zusammen gestrickten Maschen nicht 2x hintereinander gestrickt. Alles gut .

01.04.2024 - 17:22

country flag Bettina wrote:

Mit Beginn A1 erhöht sich die Anzahl der Maschen stetig. Nach der 2 . Musterfolgein Reihe 9 habe ich am Ende immer was über. Mit wieviel Maschen mehr beginne ich dann nach den 5 Blendmaschen und schließe zum Ende ? . Gut wäre das setzen eines Maschenmakierers vor dem ersten Umschlag,. Auf den Fotos ist es zu erkennen, aber nicht im Diagramm

01.04.2024 - 14:09

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, A.1 fängt mit 7 Maschen und endet mit 21 Maschen, es wird bei den 3., 9., 15., 19., 25., 31., und 35. Reihe jeweils 2 Maschen in jedem A.1 zugenommen (so hat man: 7 + (2 x 7) = 21 Maschen in jedem A.1 nach der letzten Reihe A.1. Gerne können Sie jeweils 1 Markierung zwischen jedem Rapport einsetzen, so können Sie die Maschenanzahl besser prüfen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 15:13

country flag Gerda wrote:

Er staat boven aan in het patroon dat de telpatronen alle naalden in het patroon aan de goede kant laten zien. Als ik me daar aan houd komt het veel te lang uit en klopt het niet met de foto. Worden ook de teruggaande naalden afgebeeld in het telpatroon?

21.03.2024 - 20:51

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

Ja, zowel de heengaande als de teruggaande naalden zijn weergegeven in het telpatroon.

24.03.2024 - 19:04

country flag Tina Haagh wrote:

Jeg vil gerne undgå slids i siderne. Hvor mange masker skal jeg så bruge til ribkanten?

01.01.2024 - 12:08

DROPS Design answered:

Hej Tina, det er samme maskeantal, du skal bare justere så du får ribben til at stemme :)

02.01.2024 - 14:53

country flag Live Tenstad wrote:

Hei! Strikker M i cardigan. Det står at A1 skal strikkes totalt 14 ganger rundt bolen, og i neste setning står det at A1 skal strikkes 1 gang i høyden - dette samsvarer ikke i mitt hode. Hvor mange runder skal jeg strikke A1?

04.11.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Hei Liv, Du skal strikke A.1 fjorten ganger i bredden (14 rapporter) på hver pinne, og 1 gang i høyden. God fornøyelse!

06.11.2023 - 06:44

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, je suis étonnée du nombre de pelotes nécessaires si je compare aux autres modèles de gilets avec la même laine AIR . N'y a-t-il pas une erreur sur la quantité? Merci pour votre réponse.

10.08.2023 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, nous n'avons pas de retour de ce type actuellement, mais j'ai quand même transmis votre question à nos stylistes. Essayez de vous organiser avec votre magasin en attendant (la prochaine collection est en cours et la réponse pourrait tarder). Bon tricot!

11.08.2023 - 09:34

country flag Ingrid wrote:

Skal begynne på bærestykket nå og A1 - skal jeg øke masker etterhvert når jeg strikker mønsteret?

23.07.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Hei Ingrid, Ja, diagram A.1 har økningene inkludert i rad 3, 9, 15 osv. God fornøyelse!

24.07.2023 - 06:37

country flag Marja Stravers wrote:

Bedankt voor uw antwoord. De stekenverhouding klopt. En in het telpatroon worden de teruggaande pennen toch niet getoond? Er staat: alleen de heengaande pennen staan in het telpatroon. Ik kom zo tot 98 pennen bij xl voor het totale patroon. Een proeflapje geeft aan: 10 cm in de hoogte zijn 22 pennen, dus dat zou een nog grotere pas geven. Wat doe ik niet goed? Mvg, Marja Stravers

18.06.2023 - 09:41

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Er staat dat het telpatroon alle naalden laat zien zoals ze er aan de goede kant uitzien. Alle naalden zijn dus weergegeven in het telpatroon, dus ook de naalden die je aan de verkeerde kant breit. Bij lege hokjes brei je de steken averecht aan de verkeerde kant en de hokjes met de kruisjes brei je recht aan de verkeerde kant.

18.06.2023 - 11:47

country flag Marja Stravers wrote:

Ik heb het telpatroon gevolgd. gebreid met pen 4 omdat 5 voor mij te losgebreid was. . maar de lengte van de pas is nu bijna 38 cm. Hoe kan dit? Het is zeker niet los gebreid.

10.06.2023 - 13:37

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Komt de stekenverhouding in de hoogte overeen met die van het patroon? En heb je er rekening mee gehouden dat alle naalden in het telpatroon zijn verwerkt? Dus zowel de naalden aan de goede kant als aan de verkeerde kant.

10.06.2023 - 18:21

country flag Dahuron Chantal wrote:

Bonjour Je ne comprends pas comment on doit repeter 14 fois a1 et avoir 22cm et 276 mailles après avoir terminer a3 Merci pour votre reponse

31.05.2023 - 13:32

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, A.1 se commence sur 7 mailles soit (5 m de bordure devant + 14x7 m de A.1 + 5 m de bordure devant au point mousse = 108 mailles) ; en tricotant A.1 vous allez augmenter comme le montre le diagramme (ex au 3ème rang, on fait 4 jetés mais on diminue 2 m = on augmente ainsi 2 m dans chaque A.1). Lorsque A.1 est terminé, vous avez 19 mailles dans chaque A.1, et ainsi: 5 m point mousse + 14x 19 m + 5 m point mousse = 276 mailles. Tricotez ensuite A.3 et diminuez au tour suivant sur l'endroit. Continuez en jersey avec les 5 m de bordure devant au point mousse jusqu') 22 cm à partir du marqueur. Bon tricot!

31.05.2023 - 16:36