DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Crown

Prjónuð húfa / hipsterhúfa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni með uppábroti.

DROPS 234-42
DROPS Design: Mynstur wi-047
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
M/L
Höfuðmál ca: 56/58 cm.
Með uppábroti mælist stykkið ca 25 cm.
Án uppábrots mælist stykkið ca 33 cm.

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100 g litur 03, ljós grár

Eða notið:
DROPS Air frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 03 perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2728.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 2. og 4. prjónamerki.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig að hann snýr til hægri og vinstri þannig:
LEIÐBEININGAR-1 (á eftir prjónamerki):
Lyftið uppslættinum af prjóni og setjið til baka aftur á prjóninn í gagnstæða átt og prjónið síðan í fremri lykkjubogann, lykkjan snýr þá til vinstri. Það á ekki að myndast gat!
LEIÐBEININGAR-2 (á undan prjónamerki):
Prjónið uppsláttinn í aftari lykkjubogann, lykkjan snýr þá til hægri. Það á ekki að myndast gat!

AFFELLING:
Ef maður vill þá er hægt að fella af með ítalskri affellingu, þá verður að prjóna 2 síðustu umferðirnar á undan affellingu eins og útskýrt er að neðan:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Lyftið fyrstu/næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á sokkaprjóna. Skipt er yfir á hringprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 16 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
Prjónið 1 umferð stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og látið þau fylgja með í stykkinu. Setjið 1. prjónamerki í 4. lykkju (brugðin lykkja), setjið 2. prjónamerki í 6. lykkju (brugðin lykkja), setjið 3. prjónamerki í 12. lykkju (brugðin lykkja) og setjið 4. prjónamerki í 14. lykkju (brugðin lykkja).
Prjónið síðan stroff JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan og prjónið þannig:

UMFERÐ 1:
Prjónið stroff eins og áður til og með 1. prjónamerki – sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 1. prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 2. prjónamerki, prjónið stroff eins og áður frá 2. til og með 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 4. prjónamerki, prjónið stroff eins og áður frá 4. prjónamerki og út umferðina.
Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2:
Prjónið stroff eins og áður til og með 1. prjónamerki – sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 1. prjónamerki, prjónið uppsláttinn frá fyrri umferð brugðið eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR-1, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn frá fyrri umferð brugðið eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 2. prjónamerki, prjónið stroff eins og áður frá 2. til 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá uppá prjóninn á eftir 3. prjónamerki, prjónið uppsláttinn frá fyrri umferð brugðið eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR-1, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn frá fyrri umferð brugðið eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 4. prjónamerki, prjónið stroff eins og áður frá 4. prjónamerki og út umferðina. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í stroffprjóni og aukið út í hverri umferð – uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður inn í stroffprjón sem er á milli 1. og 2. prjónamerkis / 3. og 4. prjónamerkis. Endurtakið útaukningu í hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 12 sinnum og það eru 64 lykkjur í umferð. Stroffið gengur janft upp með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið alla leið hringinn og stykkið mælist ca 7 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 33 cm frá uppfitjunarkanti. Sjá AFFELLING í útskýringu að ofan, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá neðstu 8 cm á húfunni. Þræðið þráð í gegnum 16 lykkjurnar frá uppfitjunarkanti, herðið að og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2022
Leiðrétting í ÚTAUKNING.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.11.2022
Leiðrétting undir ÚTAUKNING. LEIÐBEINING-1 og LEIÐBEINING-2.
Yfirfarið á vefsvæði: 17.02.2023
Uppfært með upplýsingum um hvernig loka eigi gati efst í toppi á húfu.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Giuditta wrote:

Buonasera, vorrei sapere come mai il campione deve essere misurato in stockinette stitch se il progetto si sviluppa con un punto differente, 1x1 rib? quando lavoro le coste uso ferri molto più piccoli, non vorrei che rimanesse una maglia troppo larga…qualche suggerimento?

06.03.2024 - 21:58

DROPS Design answered:

Buonasera Giuditta, non ci sono errori nella spiegazione del campione. Buon lavoro!

11.03.2024 - 23:46

country flag Patricia G Corbett-Labatt wrote:

Hello I am curious what is mean by "rib fits knits1/purl1 the entire round , piece measures approx. 7 cm from cast on edge" and how it is different from the next line/instruction: "Then work rib (K1/P1) until piece measures 33 cm from cast on edge".

01.02.2023 - 16:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs G Corbett-Labatt, while you are increasing, the rib will not fit in the round on every round because of the increases; but when all increases are done, you can now work K1/P1 all the round. Continue working in rib until piece measures 33 cm from the cast on edge = from the stitches you cast on at the beginning of the hat. Happy knitting!

01.02.2023 - 17:09

country flag Pili Gabriella wrote:

Ho visto che su questo modello sono state fatte delle correzioni ma non riesco a trovarle . Potreste aiutarmi per favore ? Grazie

28.01.2023 - 18:01

DROPS Design answered:

Buonasera Gabriella, le correzioni vengono incorporate direttamente nel modello: le istruzioni online sono corrette. Buon lavoro!

28.01.2023 - 23:01

country flag Lene wrote:

Hei. Står det noe om hva man gjør med de 16 maskene man begynte med? Skal disse snurpes sammen til slutt? Virker mange masker å snurpe...

10.01.2023 - 19:43

DROPS Design answered:

Hej Lene, ja du snurper de 16 masker sammen, det skal vi få lagt ind i opskriften :)

12.01.2023 - 14:13

country flag Ida wrote:

Hei! Tips til forbetring: Inkludere svaret til Ola i oppskrifta. Nyttig info om korleis ein skal fullføre siste montering. Takk!

18.12.2022 - 08:53

country flag Anna wrote:

Wskazówki są opisane błędnie. Wskazówka 1 dotyczy przerabiania narzutu za markerem, a wskazówka 2 przed markerem.

10.11.2022 - 21:31

DROPS Design answered:

Witaj Anno, dziękujemy za zwrócenie uwagi. Korekta została naniesiona. Pozdrawiamy!

30.11.2022 - 19:45

country flag Catarina Fors wrote:

Enligt Tips1, är det före markören och Tips2 efter markören, men i beskrivningen varv 2 står det tvärt om. Vilket är rätt?

09.11.2022 - 18:26

DROPS Design answered:

Hej Catarina, jeg tror du har ret, se videoen nederst i opskriften hvordan vi gør, så skal vi få rettet i opskriften :)

16.11.2022 - 13:38

country flag Ola wrote:

Czy na koniec czapka na górze jest zszywana? Jakim ściegiem?

06.11.2022 - 16:54

DROPS Design answered:

Witaj Olu, końcówkę nitki (tę z początku robótki, czyli na górze czapki) nawlekasz na igłę i przeciągasz igłę z nitkę przez skrajne pętelki 16 oczek początkowych i zaciskasz nitkę. Zabezpieczasz nitkę po lewej stronie robótki i wrabiasz ją. Pozdrawiamy!

07.11.2022 - 08:56

country flag Anna wrote:

Obydwie wskazówki dotyczą przerabiania narzutów przed markerem.

21.10.2022 - 23:25

country flag Lea wrote:

Buona sera! Non riesco a capire come lavorare i gettati a rovescio per non creare il buco come scritto nei suggerimenti. C'è un tutorial? Grazie!

15.10.2022 - 00:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Lea, come indicato nelle spiegazioni, per non creare il buco, il gettato va lavorato a ritorto, cioè nel filo dietro della maglia anzichè in quello davanti. Provi a vedere se questo video le può essere di aiuto: . Buon lavoro!

15.10.2022 - 12:30