DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Chaperon Bleu

Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með laskalínu og hettu. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-4
DROPS Design: Mynstur ee-738
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 21, blár skuggi

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hettu):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki (8 lykkjur færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp, þar til stroffi og klauf hefur verið prjónað til loka. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handvegi. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er hettan prjónuð fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-70-74-78-86-94 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff fram og til baka í 14 cm, endið með umferð frá röngu. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur af framstykki og bakstykki á sama hringprjón 8, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 100-112-120-128-144-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 50-56-60-64-72-78 lykkjur (hliðar). Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31 cm, fellið af 6-6-6-8-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) = 44-50-54-56-64-68 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu og eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 8-6-7-4-3-2 cm millibili alls 4-5-4-6-7-10 sinnum = 40-42-44-48-54-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-40-38-37-35-34 cm, fellið af 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi (fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 34-36-38-40-46-50 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 156-172-184-192-220-236 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið á bakstykki og framstykki (4 prjónamerki). Prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu.
Byrjið í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar berustykkið mælist 3-4-5-5-4-3 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 11-12-13-14-17-19 sinnum = 68-76-80-80-84-84 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Klippið þráðinn. Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan – stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt að framan. Prjónið upp 1 lykkju á bakhlið í hverri af 6 næstu lykkjum. Snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur slétt.

Í næstu umferð frá röngu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í síðasta skipti (nú hefur verið fækkað um alls 13-14-15-16-19-21 sinnum fyrir laskalínu) og það eru 58-66-70-70-74-74 lykkjur í umferð. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð, mælist berustykkið 21-23-25-27-29-31 cm.

HETTA:
Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt að aftan og 1 lykkju í hvorri hlið á hverri laskalínu frá framstykki (6 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu, alls 2 sinnum = 70-78-82-82-86-86 lykkjur. Prjónið sléttprjón og garðaprjón þar til hettan mælist 37-38-39-40-41-42 cm. Fellið af.
Brjótið uppá hettuna og saumið toppinn á hettunni saman.

I-CORD KANTUR:
Það er prjónaður kantur í kringum hettuna þannig: Notið 2 sokkaprjóna nr 8. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjón og prjónið upp 1 lykkju í ysta lykkjubogann á fyrstu umferð garðaprjón neðst í opinu á hægri hlið á hettu (séð þegar flíkin er mátuð) = 3 lykkjur á prjóni. * Færið lykkjurnar að byrjun á prjóni, þannig að þær séu prjónaðar einu sinni til viðbótar frá réttu án þess að snúa stykkinu.
Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið upp eina nýja lykkju yst í næsta garðaprjón af hettu, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð upp *, prjónið frá *-* þar til prjónaður hefur verið upp kantur meðfram öllu opinu á hettunni. ATH! Það er prjónuð upp lykkja í hvert garðaprjón frá kanti, ef þetta verður of stíft, verður að prjóna upp auka lykkju með jöfnu millibili.
Prjónið 3 síðustu lykkjur á prjóni slétt saman, klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkju og festið þráðinn.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Eli Samuelsen wrote:

Bærestykke: Jeg har strikke til Pinne 1(retten) "strikk opp 1 maske på baksiden av hver av de neste 6 maskene. Snu" Hva / hvordan gjør jeg det, menes det bakre ledd?

15.03.2024 - 22:01

DROPS Design answered:

Hei Eli, Du skal strikke rett i både front- og bakledd i hver av de 6 maskene, slik at du øker 6 masker til kanten av hetta. God fornøyelse!

18.03.2024 - 07:00

country flag Flor Sarabia wrote:

¿Cómo se teje al principio la capucha para que quede cruzada?

18.02.2024 - 00:20

DROPS Design answered:

Hola Flor, cuando estás trabajando el raglán, después de las disminuciones tenías entre 68 y 84 puntos, dependiendo de la talla. Ahora insertas 1 hilo marcador y, a partir de ahí, comenzarás a trabajar la forma para que la capucha quede cruzada.

18.02.2024 - 22:55

country flag Angela Van Bentum wrote:

Bij de raglan mindering klopt het niet, kan toch niet bij voor de mouw én na de mouw hetzelfde in mindering .Wat gaat fout?

27.01.2024 - 20:58

DROPS Design answered:

Dag Angela,

Je voegt de markeerdraden in de steken (en niet tussen de steken) en je meerdert in dit geval inderdaad op alle markeerdraden om dezelfde manier.

28.01.2024 - 18:39

country flag Sofia Araújo wrote:

Como faço a Orla I-Cord? Podem explicar de maneira mais simples ou encaminhar um vídeo que explique? Obrigada.

24.12.2023 - 13:05

DROPS Design answered:

Bom dia, Ao fundo da página com as explicações do modelo, encontra uma secção com vários tutoriais em vídeo, entre eles, um vídeo para explicar a orla I-Cord. Aqui está o vídeo; https://www.garnstudio.com/video.php?id=1727&lang=pt Bons tricôs!

09.01.2024 - 10:17

country flag Angy wrote:

Hallo, ich bin nun bei den Raglanabnahmen. Wo wandert der Markierungsfaden hin? Zwischen die zwei Abhebemaschen, nach die Abhebemaschen oder nach den Überzug? Und neigen sich bei dieser Technik nicht alle Abnahmen nach links? Theoretisch sollten sich die Abnahmen vor den Ärmeln doch nach links und nach den Ärmeln nach rechts neigen? Danke

17.12.2023 - 17:23

DROPS Design answered:

Liebe Andy, der Markierungsfaden setzen Sie vor der Abnahme, damit die abgenommene Masche immer nach dem Markierungsfaden bleibt. In diesem Video zeigen wir, wie so eine Abnahme gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2023 - 09:03

country flag Babsi wrote:

Moin, ich habe letztens eine Kapuze gestrickt, indem ich sie wie die Ferse bei einer Socke gearbeitet habe, das ginge doch bei diesem Modell sicherlich auch und man hätte nicht diese unschöne Mittelnaht! Gäbe es dafür eine Anleitung mit Maschenzahl usw? Liebe Grüße

13.12.2023 - 08:39

DROPS Design answered:

Liebe Babsi, so was haben wir bei Pullover leider nicht, aber um eine Naht zu vermeiden können Sie die Maschen am Ende nicht abketten sonder mit Maschenstich zusammennähen - siehe Video. Viel Spaß beim stricken!

13.12.2023 - 16:13

country flag LABAUDRE CATHERINE wrote:

Bonjour, je coince sur les explications à partir ou il faut mettre les marqueurs mi dos et mi devant je ne comprends pas la suite pouvez vous m'expliquer comment faire après avoir mis les marqueurs? merci

11.12.2023 - 16:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Labaudre, une fois que vos marqueurs sont placés, coupez le fil. Vous allez maintenant tricoter non plus en rond mais en allers et retours à partir de l'encolure: en commençant 3 mailles avant le marqueur du milieu devant, tricotez toutes les mailles jusqu'à ces 3 mailles, vous relevez ensuite 1 maille derrière chacune des 6 mailles suivantes (fente d'encolure), tournez et tricotez le rang suivant sur l'envers, les 6 mailles côté encolure vont ainsi se chevaucher en bas de la fente d'encolure - retrouvez cette technique dans cette vidéo. Bon tricot!

12.12.2023 - 08:45

country flag Flor S wrote:

Por favor suban un video donde se explique cómo empezar la capucha, porque para las principiantes no queda claro. Gracias.

09.12.2023 - 05:06

country flag Roosmarijn wrote:

I used the raglan ssk at each side of the sleeve, so 4 times in a round. But now I have 2 left leaning and 2 vertical decreases. Do I need twice the ssk and twice a k2tog to create the raglan sleaves? Ik heb de raglan instructie toegepast aan beide zijden van de mouwen, dus 4x per ronde. Nu heb ik 2 keer een schuine decrease en 2 keer een rechte decrease, waardoor de mouwen scheef zijn. Had ik een andere techniek moeten, gebruiken, met 2x ssk en 2x k2tog?

26.11.2023 - 10:03

DROPS Design answered:

Dear Roosmarijn, this is not an ssk nor k2tog decrease (see RAGLAN above). You decrease 2 sts in each raglan line/ transition, so 8 sts in total on the row. You can see how to work this decrease here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=736&lang=en. If you work in the same way in all of the raglan lines, the decreases should be equal in all lines. Happy knitting!

26.11.2023 - 22:45

country flag Veronika wrote:

Skal bolen kun være 31 cm i alle størrelser? Er dette inklusive vrangborden?

09.11.2023 - 07:49

DROPS Design answered:

Hei Veronika. Ja, det stemmer. Ønsker du den lengre (og har nok garn) kan du fint strikke den lengre. De 31 cm er inkl vrangborden. Se evnt. målene på målskissen lengst nederst på oppskriften. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 11:57