DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evening Walk Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum ermum og pífukanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-48
DROPS Design: Mynstur cm-140
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 28, púður

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (ljós bleik) NR 607: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR (á við um framstykki):
Til að pífukanturinn (A.2) komi til með að leggjast fallega, eru prjónaðar stuttar umferðir yfir framstykkin.
Hægra framstykki:
Byrjið í 7. umferð með mynstri og prjónið frá röngu þannig: Prjónið eins og áður fram að sléttu lykkjunni á undan A.2 (= uppábrot), snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu eins og áður. Endurtakið í 12. hverri umferð upp þar sem v-hálsmálið byrjar.
Vinstra framstykki:
Byrjið í 7. umferð með mynstri og prjónið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að brugðnu lykkjunni á undan A.2 (= uppábrot), snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Endurtakið í 12. hverri umferð upp þar sem v-hálsmálið byrjar.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 117 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 115 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 6.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka í stykkjum, á hringprjóna.
Pífukanturinn er prjónaður jafnóðum með framstykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Frágangur á stykki er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru kantar að framan prjónaðir fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 117-126-138-150-165-183 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 19-20-22-24-27-31 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 98-106-116-126-138-152 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 0-0-0-3-5-8 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 3-6-9-6-6-5 sinnum og 1 lykkja í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) alls 2-2-2-2-2-2 sinnum = 80-82-84-86-88-90 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið nú af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 21-22-22-23-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 66-72-78-84-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja að hlið og lykkjur fyrir pífukant við miðju að framan) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino.
Prjónið stroff þannig: 7 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 57-63-69-75-81-90 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt (= uppábrot og þessi lykkja er nú prjónuð brugðið frá réttu og slétt frá röngu), prjónið A.2 yfir síðustu 7 lykkjur í umferð (= pífukantur).
Fjöldi lykkja í A.2 kemur til með að breytast eftir því hvaða umferð er prjónuð í mynsturteikningu.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt 9-11-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 57-61-66-71-77-84 lykkjur (þegar það eru 7 lykkjur í A.2).
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur fram að uppábroti, prjónið 1 lykkju slétt (= uppábrot), prjónið lykkjur í A.2 eins og áður.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni að hlið og uppábrot og A.2 við miðju að framan eins og áður, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir – sjá STUTTAR UMFERÐIR.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Lykkjum er fækkað í stykkinu fyrir handveg, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli. Lestu því ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI og ÚRTAKA FYRIR HANDVEG áður en þú prjónar áfram.

ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið kantinn í hægra framstykki, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinni, annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og 4. hverri umferð 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 18-18-19-19-20-20 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli).

ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu (= frá hlið). Prjónið út umferðina. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í lok umferðar alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. lykkjum er fækkað frá réttu og það er fækkað um 5-8-11-14-18-23 lykkjur + 4-4-5-6-7-8 lykkjur sem felldar voru af undir ermi).
Þegar allar úrtökur fyrir handveg og V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur eftir fyrir öxl + 8 lykkjur í kanti (= uppábrot + A.2). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 66-72-78-84-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja að hlið og lykkjur fyrir pífukanti við miðju að framan) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino.
Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið síðustu 2 lykkjur í A.1, A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 lykkja brugðið (= uppábrot og þessi lykkja er prjónuð brugðið frá réttu og slétt frá röngu), A.2 yfir síðustu 7 lykkjur.
Fjöldi lykkja í A.2 kemur til með að breytast eftir því hvaða umferð er prjónuð í mynsturteikningu.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur fram að uppábroti og fækkið jafnframt 9-11-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið A.2 eins og áður = 57-61-66-71-77-84 lykkjur (þegar það eru 7 lykkjur í A.2).
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð til baka þannig: A.2, 1 lykkja slétt (= uppábrot), brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og uppábroti og A.2 að framhlið eins og áður, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir – sjá STUTTAR UMFERÐIR.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Lykkjum er fækkað í stykkinu fyrir handveg, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli. Lestu því ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI og ÚRTAKA FYRIR HANDVEG áður en þú prjónar áfram.

ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI:
Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan uppábroti, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinni, annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og 4. hverri umferð 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 18-18-19-19-20-20 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli).

ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu (= frá hlið), síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun á umferð frá réttu (lykkjum er fækkað frá réttu og fækkað er um 5-8-11-14-18-23 lykkjur + 4-4-5-6-7-8 lykkjur sem felldar voru af undir ermi).
Þegar allar úrtökur fyrir handveg og V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur eftir fyrir öxl + 8 lykkjur í kanti (= uppábrot + A.2). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af.

ERMAR:
Fitjið upp 72-78-87-93-99-108 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið A.1 umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-14-15-15-15-17 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 59-64-72-78-84-91 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með ca 1½-1½-2-2-1½-2 cm millibili alls 6-6-5-4-4-3 sinnum = 71-76-82-86-92-97 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 19-18-18-17-15-14 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Nú eru felldar af 8-8-10-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi = 63-68-72-74-78-81 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjóna, jafnframt sem lykkjur eru felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-3-4-3-2-1 sinnum, 1 lykkja 2-7-6-11-16-20 sinnum og 2 lykkjur 5-4-4-3-2-1 sinnum = 23-26-28-28-30-33 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 28-29-29-30-30-30 cm. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Brjótið inn pífukantinn að framstykki meðfram uppábroti, þannig að réttan liggi að réttu og saumið inn pífukantinn í axlasauminnaxlasaumar eru saumaðir innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónamerkið er notað síðar þegar kantar að framan eru prjónaðir.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Passið uppá að pífukanturinn sé brotinn inn að framstykki þannig að réttan liggi að réttu og prjónið upp lykkjur fyrir kant að framan þannig:
Byrjið neðst á hægra framstykki og prjónið upp lykkjur í slétta lykkju (= uppábrot á röngu á stykki) þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju upp að axlasaumi (= ca 132-137-143-148-154-160 lykkjur), prjónið upp 23-23-24-24-25-25 lykkjur innan við 1 lykkju fram að prjónamerki mitt að aftan.
Nú er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið byrjar þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 3 sinnum (= 3 lykkjur fleiri hér) og lykkjufjöldinn er jafnaður út þannig að það verða alls 141-147-153-159-165-171 lykkjur fyrir kant að framan (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í lok umferðar).
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm, nú er fellt af fyrir hnappagötum þannig:
Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum þegar prjónaðar eru 2 lykkjur brugðið.
1 hnappagat: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði. Þau 2 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með ca 7½-8-8-8½-9-9 cm millibili.
Prjónið stroff þar til það mælist alls 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Passið uppá að pífukanturinn sé brotinn inn að framstykki þannig að réttan liggi að réttu og prjónið upp lykkjur fyrir kant að framan þannig:
Byrjið mitt aftan í hnakka við prjónamerki og prjónið upp lykkjur meðfram kanti í hálsmáli, síðan í slétta lykkju (= uppábrot á röngu á stykki) þannig: Prjónið upp 23-23-24-24-25-25 lykkjur innan við 1 lykkju fram að axlasaumi, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja lykkju í uppábroti niður yfir vinstra framstykki (= ca 132-137-143-148-154-160 lykkjur).
Nú er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið byrjar þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 3 sinnum (= 3 lykkjur fleiri hér) og lykkjufjöldinn er jafnaður út þannig að það verða alls 141-147-153-159-165-171 lykkjur fyrir kant að framan (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í lok umferðar).
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm,
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan saman mitt að aftan með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu (þannig að það verður garðaprjón í A.2)
symbols = 1 lykkja snúin slétt
symbols = 1 lykkja snúin slétt frá réttu, 1 lykkja snúin brugðið frá röngu
symbols = 1 lykkja brugðið frá réttu, 1 lykkja slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið 1 lykkju brugðið í 2. uppslátt (1. uppsláttur hefur nú þegar verið prjónaður slétt)
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = fellið af þessa lykkju
symbols = byrjið í þessari umferð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Sandra Ring wrote:

Oh, danke, Sie haben aber schnell geantwortet. Es steht doch geschrieben, dass sich der Rüschen Rand sauber legt, müssen verkürzte Reihen gestrickt werden. Steht ganz oben in der Beschreibung. Rechtes Vorderteil: 7. Reihe des Musters. Danke für Ihre Bemühungen, kann man irgendwo was spenden für Ihren Aufwand? Ich habe Erfahrungen im Ayourstricken. Verstehe das nicht wo es hapert.

04.01.2024 - 17:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ring, oh ja sicher sorry; bei den verkürzten Reihen stricken Sie dann bei der 7. Reihe nur die Maschen von A.2 genauso wie bei der 7. Reihe im Diagram, und die 8. Reihe auch genauso, dh A.2 wird einfach wie zuvor gestrickt, als es keine verkürzten Reihe gäbe. Viel Spaß beim stricken!

05.01.2024 - 08:12

country flag Sandra Ring wrote:

Beim rechten Vorderteil fehlt mir in der 4. Reihe immer eine Masche (im Diagramm ist das eine rechts verschränkte Masche, genau da wo meine Bruchkante ist. Ignoriere ich dann diese rechts verschränkte und stricke diese Masche links, dass es eine Bruchkante bleibt? Mein Rüschen sieht auch nicht so aus, wie auf dem Bild. Wie genau sollten die beiden Maschen in der 4. Und 7. Reihe abgekettet werden? Das sieht so unordentlich aus. Habe schon X mal probiert.

04.01.2024 - 17:47

country flag Sandra Ring wrote:

Noch eine Frage zu der verkürzten Reihe. Ich stricke somit A1 bis zur Bruchkante Masche, drehe um und stricke A1 zurück und dann wieder zurück und dann stricke ich A2. Dh in der 7. Runde von A2, stricke ich zusätzlich zwei Reihen A1 und lasse A2 aus. Tut, mir leid, ist mein Debut mit verkürzten Reihen. Vielen Dank für Ihre Bemühungen.

04.01.2024 - 14:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ring, es gibt keine verkürzte Reihe, die Maschenanzahl in A.2 wechselt je nach den Zunahmen und die abgekettenen Maschen. Es kann vielleicht helfen, A.2 mit einer anderen Wolle extra zu stricken, um zu trainieren. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2024 - 16:03

country flag Sandra Ring wrote:

Hallo, ich habe es gefunden, die erste Frage, bezüglich A2, in der Beschreibung. 🙄❣️ Ich hätte aber noch einige Fragen zu A2. Ich stricke gerade das rechte Vorderteil. Bei der 4. Reihe fehlt mir dann eine Masche (im Diagramm ist das eine rechts verschränkte Masche, genau da wo meine Bruchkante ist. Ignoriere ich dann diese rechts verschränkte und stricke diese Masche links, dass es eine Bruchkante bleibt?

04.01.2024 - 14:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ring, es wird bei der 1. Reihe A.2 2 Maschen zugenommen, so sind es 9 Maschen bei der 2. und 3. Reihe, bei der 4. Reihe ketten Sie die 2 ersten Maschen ab, dann stricken Sie die letzten Maschen wie beschrieben. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2024 - 16:01

country flag Sandra Ring wrote:

Hallo, ich habe es gefunden, on der Beschreibung. 🙄❣️

03.01.2024 - 19:43

country flag Sandra Ring wrote:

Hallo, liebes Drops Team, Ich bin beim rechten Vorderteil am Anfang/Bund. Erste Reihe ist gestrickt und Rückrunde habe ich auch. (A2 in Pfeilrichtung??? Ist das korrekt??? Und die nächste Reihe darüber wird das Diagramm von links nach rechts gelesen und gestrickt? Vielen herzlichen Dank für Ihre Bemühungen.

03.01.2024 - 19:26

country flag Lone wrote:

I opskrift drops 232-48, ser det ud til at der er en hækletkant, men jeg kan ikke læse mig frem til det, eller er mig som ser forkert ??. H. Lone

19.06.2023 - 19:53

DROPS Design answered:

Hej Lone, Flæsekanten strikkes på ifølge diagrammet, som du finder til højre for måleskitsen nederst i opskriften :)

22.06.2023 - 14:10

country flag Ingrid Ehret wrote:

Liebes Drops Team, dannke für diew schnelle dAntwort. Das heißt ich beginne beim rechten Vorderteil mit dem Ende der 1. Reihe (Reihe mit dem Pfeil). und beim linke fange ich die Reihe am Pfeil an. Habe ich es verstanden. Vielen Dank

09.01.2023 - 10:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, A.2 beginnen Sie bei dem Pfeil an beiden Vorderteile, den die Maschen von A.2 am Ende der 1. Reihe (egal ob Hin- oder Rückreihe ist) gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

09.01.2023 - 11:13

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo, beim Vorderteil mit A 2 beginnen, laut Strickschrift (Pfeil) ist der Beginn auf der rechten Seite, im Textbeschriebe beginnt das Musgter auf der linken Seite. Was ist jetzt richtig. Bitte um baldige Antwort, komme so nicht weiter. Danke.

07.01.2023 - 17:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, A.2 beginnen Sie am Ende der 1. Reihe, mit einer Rückreihe beim rechten und mit einer Hinreihe beim linken Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!

09.01.2023 - 09:16

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo, die Mascshen nach dem Umschlag auch rechts verschränkt zusammenstricken oder normal. Ich glaube dann habe ich alles verstanden. Danke

03.01.2023 - 12:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, ja die 2 Maschen nach dem Umschlag stricken Sie rechts verschränkt zusammen (= siehe 9. Symbol). Viel Spaß beim stricken!

03.01.2023 - 16:44