DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet History

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-44
DROPS Design: Mynstur vs-087
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 22, rósarvatn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 8. og 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna þar til axlarsætin hafa verið prjónuð til loka. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig, þar til útaukning fyrir handveg er lokið. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað í hring til loka. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru saumaðar í eins og útskýrt er í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 136-144-144-152-152-160 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu og prjónið síðan hringinn þannig: Prjónið A.1 (= 17-18-18-19-19-20 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 102-108-108-114-114-120 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm þar sem það er styst (þar sem bogarnir í kanti snúa niður í stroffi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-10-8-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 114-118-118-122-122-126 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið nú yfir á hringprjón 4.
Nú er sett 1 merkiþráður og 2 prjónamerki í stykkið. Merkiþráðurinn er settur á milli 2 lykkja og prjónamerkin eru sett í lykkju, þannig:
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði, hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), hoppið yfir næstu 56-58-58-60-60-62 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), nú eru 28-29-29-30-30-31 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í.

AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxlum (= 1 lykkja) verður sá sami.
Haldið svona áfram hringinn og aukið alveg eins út í hverri umferð alls 28-28-31-31-34-34 sinnum = 226-230-242-246-258-262 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 10-10-11-11-12-12 cm frá merkiþræði við hálsmál.

Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig:
Prjónið fyrstu 56-57-60-61-64-65 lykkjur (= hálft bakstykki), fellið af lykkju mitt á öxl, prjónið næstu 112-114-120-122-128-130 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= framstykki), fellið af lykkju mitt á öxl, prjónið síðustu 56-57-60-61-64-65 lykkjur (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

BAKSTYKKI:
= 112-114-120-122-128-130 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Nú er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar prjónaðir hafa verið 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-7-6-5-5-4 sinnum = 96-100-108-112-118-122 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-17-18-19-18-17 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-3-3-3-5-9 sinnum = 98-106-114-118-128-140 lykkjur. Stykkið á nú að mælast 18-19-20-21-22-23 cm frá prjónamerki. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykkið.

FRAMSTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 4 = 112-114-120-122-128-130 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki. Þegar útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 98-106-114-118-128-140 lykkjur í umferð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn = 204-224-240-260-284-312 lykkjur fyrir fram- og bakstykki.
Færið merkiþráðinn hingað – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Setjið prjónamerkin mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 2-3-3-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm = 196-216-232-252-276-304 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12-13-13-14-14-15 cm frá prjónamerki. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls). Til að koma í veg fyrir að stroffið dragi stykkið saman, aukið nú út um 32-36-38-42-48-50 lykkjur jafnt yfir = 228-252-270-294-324-354 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Nú er stroffið prjónað (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4½ cm. Prjónið nú frá ör í mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist alls 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl (mælt innst við kant í hálsmáli) og niður.

ERMAR:
Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður.
Fitjið upp 62-62-64-60-54-50 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle (það eru fitjaðar upp færri lykkjur í stærri stærðum vegna fleiri útaukninga hvoru megin við ermakúpu). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-1-1-1-1-1 lykkjur 1-4-4-5-8-11 sinnum, síðan í næstu umferð frá réttu, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 lykkjur = 72-76-78-82-84-88 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 4-6-6-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Í stærð M, L og XXXL, er úrtakan endurtekin þegar stykkið mælist 10 cm = 70-72-74-80-82-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 27-25-25-23-21-19 cm.
Setjið eitt nýtt prjónamerki mitt á ermi þannig að það verða 35-36-37-40-41-42 lykkjur á milli 2 prjónamerkja. Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 7-7-7-8-8-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist ca 37-35-35-34-32-30 cm – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls og það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4½ cm. Prjónið nú frá umferð með ör í A.2 umferðina hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið stroff þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = byrjið í þessari umferð í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 6 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Oriana Muñoz Bombalá wrote:

Las instrucciones para la orilla del cuello, no son correctas, ya que despues de tener 18 arcos, con 2 puntos en promedio, dan como resultado 54 puntos para el cuello, no 108, como dicen las instrucciones. Por favor CORREGIR¡.

21.04.2024 - 19:48

country flag Delphine wrote:

Bonjour, Je tricote le modèle en taille S. J’ai terminé le dos / devant qui correspond aux mesures indiquées. Le montage de la manche est problématique, 72mailles après les augmentations pour commencer à tricoter en rond ne sont pas suffisantes. Il manque une vingtaine de mailles sur le haut de manche pour correspondre à l’emmanchure. Pourriez-vous vérifier le montage de la manche? Je peux vous envoyer une photo si nécessaire ;o) en vous remerciant par avance, d.

01.01.2024 - 19:56

country flag Petra wrote:

Ich bin am verzweifeln, ich bekomme die Ärmel einfach nicht schön eingenäht . Es sind viel mehr Maschen am Schulter Teil als wie bei dem Ärmel , ich konnte einen schon annähen von weiten sah es ok aus aber bei genauen hinsehen sieht die Naht einfach nicht schön aus weil es nicht gleichmäßig ist . Ein Video wie man diesen Ärmel einnähen soll wäre hilfreich

12.11.2023 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Petra, die letzten 4-6-6-12-14-16 angeschlagenen Maschen beim Ärmel werden an den 4-6-6-12-14-16 Maschen, die zwischen Vorder- und Rückenteil angeschlagen wurden, dann die restlichen Maschen am oberen Teil vom Armkugel werden am Armausschnitt angenäht. Viel Spaß beim fertigstellen!

13.11.2023 - 08:23

country flag Petra wrote:

Ich habe jetzt die Ärmel so gestrickt wie in meiner Frage beschrieben. Die Maschen nach dem Faden haben 5 Reihen , die Maschen hinter dem Faden aber schon 6 Reihen . Denn die Masche wo ich anfangen musste in runden zu stricken haben ja mehr Reihen als die letzten zwei vierer maschen , weil die noch nicht gestrickt wurden , aber jetzt als neue Runde zählen. Wenn ich über die letzten zwei gehe wäre es wieder der normale runden Anfang und nicht der neue runden Beginn.

07.11.2023 - 16:01

DROPS Design answered:

Liebe Petra, stimmt, es wird 1 Reihe/Runde unterschied aber dies wird nicht sichtbar. Nach den neuen Maschen, legen Sie die Arbeit in Runden, dh stricken Sie die ersten Maschen von der Hinreihe bis die 2 letzten neuen Maschen, setzen Sie eine Markierung hier für den Rundbeginn. Viel Spaß beim stricken!

08.11.2023 - 07:52

country flag Petra wrote:

Ich bin jetzt bei den Ärmeln in Größe S : ich habe beidseitig 3 Maschen zugenommen, jetzt muss ich in der nächsten vier Maschen anschlagen und in runden Stricken. Verbinde ich die 4 Maschen mit der ersten Masche von den drei von vorhin , denn wie soll die Runde bei der ersten Masche nach dem Makierungsfaden sein , oder ist das egal das es eigentlich der Anfang wo anders ist und es wird ab dem Makierungsfaden das als Anfang gesehen ?

07.11.2023 - 10:36

DROPS Design answered:

Liebe Petra, am Ende einer Hin-Reihe schlagen Sie die 4 neuen Maschen an, dann stricken Sie in der Runde bis in der Mitte von diesem 4 Maschen, die Runden beginnen dann hier. Der Markierungsfaden setzen Sie in der Mitte von diesen 4 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2023 - 13:34

country flag Petra wrote:

Ich bin gerade bei dem Schritt nachdem man die letzten 56 Maschen strickt (halbes Rücken teil ) jetzt steht ich soll den Faden abscheiden . Muss ich also dann mit einem neun paar Nadeln ganz am Rand anfangen um hin und zurück zu Stricken ? Oder wo soll ich mit dem Rückenteil anfangen?

31.10.2023 - 12:29

DROPS Design answered:

Liebe Petra, jetzt stricken Sie alle Maschen von Rückenteil, so die Hälfte der Maschen (56) heben Sie ab und setzen Sie mit der anderen Hälfte vom Rückenteil, so können Sie die 112 Maschen vom Rückenteil stricken. Viel Spaß beim stricken!

31.10.2023 - 16:22

country flag Lisa Vögeding wrote:

Guten Tag, Wann schließe ich bei den Ärmeln zur Runde? Ich setze den Markierungsfaden zwischen die sechs neuen Maschen. Dort soll ich die Runde beginnen. Was ist mit den anderen 3 Maschen? Vielen Dank für Ihre Hilfe und die vielen tollen Anleitungen und Videos!

09.03.2023 - 10:19

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vögeding, wenn alle Maschen angeschlagen sind, dh wenn die letzten 6 Maschen am Ende der letzten Hinreihe angeschlagen sind stricken Sie jetzt in der Runde. Der Markierungsfaden setzen Sie in der Mitte von diesen 6 Maschen = neue Rundbeginn. Viel Spaß beim stricken!

09.03.2023 - 12:15

country flag Gerda Jersombeck wrote:

Hallo, für dieses Modell würde ich gerne das Garn " soft Tweed"verwenden, da ich davon noch Material habe. was ist dabei zu beachten? danke im voraus und liebe Grüße. Gerda

11.08.2022 - 13:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jersombeck, beide Garne gehören selbe Garngruppe, so können Sie unseren Garnumrechner benutzen , damit bekommen Sie die neue Garnmenge mit Soft Tweed. Viel Spaß beim stricken!

11.08.2022 - 14:01

country flag Gerda Jersombeck wrote:

Hallo, kann ich bei diesem hohen Maschenanschlag auch einen magicloop machen? meine Rundnadel ist nur 80 cm lang? Danke und lg, gerda

08.08.2022 - 17:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jersombeck, ja sicher können Sie hier die Maschen mit dem Magicloop stricken - Sie brauchen dann nur eine 80 cm Rundnadel. Viel Spaß beim stricken!

09.08.2022 - 08:36

country flag Undine wrote:

Kann ich bei diesem Topdown Modell die Ärmel nicht wie üblich direkt anstricken? Warum muß ich sie bei diesem Pullover getrennt arbeiten und dann extra annähen ? Die Ärmelnaht sieht gar nicht gut aus.

27.07.2022 - 16:55

DROPS Design answered:

Liebe Undine, Dies ist ein Sattelschultermodell. Die übliche Möglichkeit ist, die Ärmel nachträglich zu nähen. Sie können jedoch Maschen abketten und aufnehmen, obwohl dies etwas schwieriger als gewöhnlich ist.

31.07.2022 - 19:56