DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 231-31
DROPS Design: Mynstur e-340
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL/XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150-200 g litur 18, natur
50-50-50-50-50 g litur 50, mynta
50-50-50-50-50 g litur 59, rauður leir
50-50-50-50-50 g litur 56, daufbleikur
50-50-50-50-50 g litur 63, sægrænn
50-50-50-50-50 g litur 68, kaffi

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
1 ferningur mælist ca 7½ cm x 7½ cm. Það jafngildir ca 22 stuðlum á breidd og 12 umferðum á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITASAMSETNING:
FERNINGUR 1:
UMFERÐ 1 litur mynta,
UMFERÐ 2 litur kaffi,
UMFERÐ 3 litur sægrænn,
UMFERÐ 4 litur natur.

FERNINGUR 2:
UMFERÐ 1 litur sægrænn,
UMFERÐ 2 litur natur,
UMFERÐ 3 litur rauður leir,
UMFERÐ 4 litur natur.

FERNINGUR 3:
UMFERÐ 1 litur kaffi,
UMFERÐ 2 litur rauður leir,
UMFERÐ 3 litur mynta,
UMFERÐ 4 litur natur.

FERNINGUR 4:
UMFERÐ 1 litur daufbleikur,
UMFERÐ 2 litur mynta,
UMFERÐ 3 litur kaffi,
UMFERÐ 4 litur natur.

FERNINGUR 5:
UMFERÐ 1 litur rauður leir,
UMFERÐ 2 litur daufbleikur,
UMFERÐ 3 litur natur,
UMFERÐ 4 litur natur.

FERNINGUR 6:
UMFERÐ 1 litur natur,
UMFERÐ 2 litur sægrænn,
UMFERÐ 3 litur daufbleikur,
UMFERÐ 4 litur natur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit í byrjun á umferð, heklið keðjulykkju í lok umferðar með nýja litnum.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið samanstendur af nokkrum ömmuferningum sem heklaðir eru saman í lokin.

ÖMMUFERNINGUR:
Ferningar eru heklaðir í mismundandi litum – sjá LITASAMSETNING. Festið þræðina jafnóðum (heklið eða saumið þá inn).
Ferningarnir eru heklaðir eftir mynsturteikningu A.1 á heklunál 3,5 – sjá LITASKIPTI í útskýringu að ofan.

Heklið 5-6-9-10-12 ferninga í hverri litasamsetningu, í stærð L eru heklaðir 2 ferningar til viðbótar (eins og ferningur 1 og 2), í stærð XL/XXL eru heklaðir 4 ferningar til viðbótar (eins og ferningur 1, 2, 3 og 4) = 30-36-56-64-72 ferningar fyrir framstykki og bakstykki.

Síðan eru heklaðir minni ferningar sem eiga að vera bönd á öxlum / hlýrar. Heklið síðan 3 fyrstu umferðir í A.1, 4. umferð er ekki hekluð.
Heklið 1-1-1-1-2 ferninga í hverri litasamsetningu, en heklið einungis fyrstu 2 umferðir með litum, heklið síðan 3. umferð með litnum natur.
Stærð XS/S - M : Heklið 2 ferninga til viðbótar alveg eins (heklið eins og ferningur 1 og ferningur 2).
Stærð L-XL/XXL: Heklið 4 ferninga til viðbótar alveg eins (heklið eins og ferningur 1, 2, 3 og 4) = 8-8-10-10-12 litlir ferningar.

FRÁGANGUR:
Nú á að hekla stóru ferningana saman í einn rétthyrning sem verður framstykki og bakstykki á toppnum. Skipu ferningunum niður út á við eins og þig langar til að hafa þá, það eiga að vera 3-3-4-4-4 ferninga á hæðina og 10-12-14-16-18 ferninga á breiddina – sjá mynd fyrir innblástur. Ferningarnir eru heklaðir saman, fyrst á lengdina síðan á hæðina. Byrjið í hægri hlið, með fyrsta ferning á efstu og miðju röð.

Leggið ferningana að hvorum öðrum með röngu á móti röngu. Heklað er í gegnum báða ferningana með litnum natur þannig, frá réttu: Heklið 1 fastalykkju um 3 loftlykkju í hornið, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðlahóp, heklið 1 fastalykkju á milli 2 næstu stuðlahópa *, heklið frá *-* 3 sinnum, endið með 3 loftlykkjur, hoppið yfir stuðlahóp, heklið 1 fastalykkju um hornið og 3 loftlykkjur. Leggið næstu 2 ferninga í efstu og annarri röð að hvorum öðrum með röngu á móti röngu.
Haldið áfram að hekla saman alveg eins og fyrstu 2 ferningana.
Haldið svona áfram alveg eins þar til allir ferningarnir í 2 efstu röðunum hafa verið heklaðir saman á lengdina.
Stærð XS/S - M: Heklið neðstu röðina með ferningum saman við 2 efstu alveg eins.
Stærð L - XL/XXL og XXXL: Heklið 2 neðstu raðirnar með ferningum saman við 2 efstu alveg eins.
Nú eru ferningarnir heklaðir saman á hæðina, heklið alveg eins og útskýrt er að ofan. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á hæðina og á breiddina, heklið skammhliðar saman. Klippið þræðina og festið.

Heklið 4-4-5-5-6 ferninga fyrir bönd á öxlum / hlýra saman 2 og 2 alveg eins og útskýrt er að ofan. Endurtakið á hinu bandinu á öxl / hlýra.

Leggið toppin flatan, þannig að það verður annað hvort heill eða hálfur ferningur í hvorri hlið, samskeyti þar sem rétthyrningurinn er heklaður saman er mitt að aftan.
Staðsetjið böndin tvö fyrir öxl / hlýra í efri kanti á toppnum, ca 5½-8½-12-15-19 cm inn frá hvorri hlið, það eru ca 15-16-17-18-19 cm á milli banda á öxl mitt á toppnum. Saumið böndin á framhlið og á bakhlið á toppnum. Mátið e.t.v. toppinn og stillið fjölda á ferningum til á böndum / hlýra.

HEKLAÐUR KANTUR:
Það á að hekla kant í kringum neðri kant á toppnum með litnum natur þannig: Heklið fastalykkju um 3 loftlykkjur í einu horni á ferningi, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðlahóp, heklið 1 fastalykkju á milli 2 næstu stuðlahópa *, heklið frá *-* 3 sinnum, endið með 3 loftlykkjur, hoppið yfir stuðlahóp og heklið 1 fastalykkju um hornið, heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um 3 loftlykkjur í hornið á næsta ferningi.
Haldið svona áfram í kringum allan neðri kantinn á toppnum.

Heklið kant í kringum handveg og opi við hálsmál á toppnum á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.04.2023
FRÁGANGUR: Heklið 4-4-5-5-6 ferninga fyrir bönd á öxlum saman 2 og 2 alveg eins og útskýrt er að ofan. Endurtakið á hinu bandinu.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2023
ÖMMUFERNINGUR: Stærð XS/S - M : Heklið 2 ferninga til viðbótar alveg eins (heklið eins og ferningur 1 og ferningur 2). Stærð L-XL/XXL: Heklið 4 ferninga til viðbótar alveg eins (heklið eins og ferningur 1, 2, 3 og 4) = 8-8-10-10-12 litlir ferningar.

Mynstur

symbols = byrjið hér! Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = punktur á hring
symbols = loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = stuðull um loftlykkjuhring / loftlykkjuboga / á milli stuðla frá fyrri umferð
symbols = stuðull um 3 loftlykkjur sem koma upp frá fyrri umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Woodstock Weekend

Tiia, Finland

Woodstock Weekend

Janne, Norway

Woodstock Weekend

Krista, United States

Woodstock Weekend

Martine, Belgium

Woodstock Weekend

Fabienne Fenart, France

Woodstock Weekend

Sofie, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Laurie A wrote:

Could you please share a diagram showing the layout arrangement of the different squares?

28.03.2024 - 04:51

DROPS Design answered:

Dear Laurie, the pattern does not contain such a diagramm, you should arrange the squares to your personal preference. Happy Crafting!

28.03.2024 - 09:06

country flag Jan Low wrote:

How much should I allow for any shrinkage in the Safran yarn on washing? Thanks

14.03.2024 - 17:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Low, cotton can shring between 3-5%, but when washing Safran correctly, I don't think Safran should shrink much. But it is easy to wash it in 40`C and not gentel 40`C, then it can shrink. Always make first a swatch and wash it to be sure.

15.03.2024 - 13:01

country flag Johanna wrote:

Leuk patroon, waarvan ik een foto wilde meesturen, maar ik zie geen mogelijkheid. Mvg, Johanna

22.08.2023 - 11:03

country flag Sana wrote:

When it says to make 9 squares does that mean 9 squares per color combination or just 9 squares. Also it says for size large to make 2 extra squares. Does that mean make 11 squares in total or is that included in the 9 squares.

17.08.2023 - 03:10

DROPS Design answered:

Hi Sana, For size L you work 9 squares in each colour combination, apart from squares 1 and 2 where you work 10 squares (an extra square in each colour combination). Happy crocheting!

17.08.2023 - 09:03

country flag Tina Hamlet wrote:

Please can you tell me if this is in UK terms or US terms

22.07.2023 - 17:59

DROPS Design answered:

Hi Tina, this information can be found in the pink box just above the pattern instructions (you write from Brittish web-page, so probably you see the Brittish (UK) terms). Happy crocheting!

23.07.2023 - 07:13

country flag Jayde wrote:

How many squares are needing for a xxxl? :)

11.07.2023 - 01:45

DROPS Design answered:

Hi Jade, For size xxxl you always use the last number in each series. Happy crocheting!

11.07.2023 - 07:03

country flag Sana wrote:

Hi I’m very confused what the 5-6-9-10-12 squares mean? Is that the number of squares or the measurement in cm or pertaining to the square category?

09.07.2023 - 04:57

DROPS Design answered:

Hi Sana, The different numbers refer to the different sizes. So if you are working size XS/S you work 5 squares, size M you work 6 squares, etc. Happy crocheting!

10.07.2023 - 07:45

country flag Dana Valdez wrote:

Acabo de terminar mi prenda. Es una perfecta pieza en talla M. El patrón es simplemente increíble. ¡Muchas gracias!

06.07.2023 - 09:46

country flag Sandrine wrote:

Pouvez vous afficher le schéma des granny assemblés du top ?

23.06.2023 - 11:53

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, nous n'avons pas de diagramme pour l'assemblage des carrés, mais cette vidéo peut vous aider à comprendre comment faire, attention, suivez bien les indications de ce modèle, car on utilise des carrés différents dans la vidéo. Bon crochet!

23.06.2023 - 15:47

country flag Khushi wrote:

How many inches is a single granny square? Both for the larger one and the smaller one

05.06.2023 - 23:26

DROPS Design answered:

Hi Khushi, 1 square measures approx. 7½ cm x 7½ cm = 2 7/8" x 2 7/8". Happy crocheting!

06.06.2023 - 06:43