Eliška wrote:
Dobrý den, chtěla jsem se zeptat na rukávy. Pletu je v řadách nebo na kruhové jehlici dokola? A v podpaží nahazuji oka navíc, či nabírám oka z podpaží trupu, abych se vyhla zašívání na konci? Předem mnohokrát děkuji za pomoc.
15.10.2023 - 10:23DROPS Design answered:
Dobrý den, Eliško, u tohoto svetříku pleteme rukávy sice na kruhové jehlici, ale v řadách (tj. střídáme lícovou a rubovou řadu). Nakonec dolní stranu rukávu vč. podpaží sešijeme. Hodně zdaru! Hana
18.10.2023 - 11:26Carine wrote:
Bonjour, Quel diamètre font les boutons ? Merci
23.05.2023 - 21:49DROPS Design answered:
Bonjour Carine, vous retrouverez tous nos boutons ici avec leur descriptif respectif; ceux-ci font 15 mm de diamètre. Bon tricot!
24.05.2023 - 08:18Geeta Fry wrote:
BODY: = 118-134-142-154 (162-178) stitches. Continue with garter stitch and English rib as before, working the new stitches under each sleeve in English rib (on the first row these stitches do not have yarn overs). With reference to the above instruction, for the Enlish rib section, I would now knit row 2 of the English Rib pattern. However, as you state, there are no yarn overs for the new stitches - how do I knit these with the correct pattern? Help!
20.03.2023 - 15:27DROPS Design answered:
Dear Mrs Fry, on row 2 in English rib you repeat (YO, slip 1 as if to P, K tog YO and next stitch) - when working the new stitches mid under sleeve, you will just have to knit the stitches since they don't have been slipped with a YO on previous row, this means you just knit them. Happy knitting!
20.03.2023 - 15:39Christiane wrote:
M.E. sollten deutlich weniger Knopflöcher eingestrickt werden. Der Abstand ist doch recht klein. Ich habe z.B. bei 68/104 alle 9,5 cm ein Knopfloch gearbeitet. 5 Knöpfe sind völlig ausreichend.
04.12.2022 - 19:47Chantal Prud'homme wrote:
Où puis-je acheter vos produits au Québec ou au Canada?
27.09.2022 - 22:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Prud'homme, retrouvez ici la liste des magasins DROPS au Canada (contactez Nordic Yarn pour connaître la liste des magasins) ou expédiant au Canada. Bon tricot!
28.09.2022 - 08:50Piera wrote:
Buongiorno, riguardo alla domanda posta in precedenza vorrei per favore una delucidazione: dopo le 29 maglie a legaccio (taglia 6/9 mesi) le 5 maglie successive a costa inglese si lavorano dal ferro nr 1 o 2 o 3 della costa inglese? Grazie
26.07.2022 - 09:22DROPS Design answered:
Buonasera Piera, deve proseguire la lavorazione precedente. Buon lavoro!
26.07.2022 - 16:21Elisabeth ROULEAU wrote:
Je réalise régulièrement des modèles de votre site, ils sont originaux et je prends plaisir à les réaliser. Sur ce modèle j'ai appris que l'on pouvait rabattre en faisant une i-cord ce que je ne savais pas (je tricote depuis plus de 60 ans pourtant!!!). Je suis contente du résultat et je pourrai refaire cette fermeture de mailles sur un autre modèle.
20.07.2022 - 15:23Piera wrote:
Buongiorno, Sto dividendo il lavoro per il corpo e le maniche per taglia 6/9 mesi. Lavorando le 29 maglie a legaccio dello sprone, l'ultima maglia è il gettato della costa inglese. Come faccio a lavrorare la costa inglese senza questo gettato? Grazie Cordiali saluti
18.07.2022 - 16:12DROPS Design answered:
Buonasera Piera, deve lavorare 29 maglie a maglia legaccio e le 5 maglie successive a coste inglesi. Buon lavoro!
20.07.2022 - 21:28Natascha Sander wrote:
Hallo liebes Drops Team, ich stricke die Jacke in Größe 80/86. Nach allen Zunahmen (7 Maschen) unter dem Arm und Ärmel (48 Maschen) stilllegen komme ich nach allen Berechnungen immer wieder nur auf 154 Maschen statt auf 158 Maschen für den Rumpfteil. Fehlen mir jetzt 4 Maschen oder ist da ein Fehler in der Anleitung. Vielen Dank
26.06.2022 - 22:41DROPS Design answered:
Liebe Frau Sander, danke für Ihren Geduld, Sie sind ja recht, 154 Maschen soll man haben; eine Korrektur erfolgt. Danke für den Hinweis, viel Spaß beim stricken!
29.06.2022 - 16:07
Happy Sunflower Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, klukkuprjóni, garðaprjóni og i-cord kanti. Stærð 0 til 4 ára.
DROPS Baby 43-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1 (rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (ranga): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næsta uppslátt og lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 3 (rétta): * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna sem lyft var af prjóni slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman. Endurtakið umferð 2 og 3. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út um 8 lykkjur í umferð þannig: Prjónið garðaprjón fram að prjónamerki á undan klukkuprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið klukkuprjón yfir 5 lykkjur, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við öll prjónamerkin umferðina hringinn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við hverja einingu með klukkuprjóni = 8 lykkjur fleiri alls í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í garðaprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón (= alls 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm, fellið síðan af fyrir 3-3-4-4 (5-5) næstu hnappagötum með ca 5-6-5-6 (5-6) cm millibili. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð) frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. I-CORD AFFELLING: * Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman, setjið 3 lykkjur af hægri prjóni yfir á vinstri prjón (setjið þær í sömu röð og þær voru á hægri prjóni) *. Prjónið frá *-* þar til einungis 3 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni. Prjónið þessar 3 lykkjur slétt saman, klippið þráðinn frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið þráðinn vel. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og þær eru saumaðar saman í lokin. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-80-84 (90-94) lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með DROPS Nord. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 8-8-8-8 (6-6) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 80-84-88-92 (96-100) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru sett prjónamerki sem fylgja eiga stykkinu: Prjónið 11-12-13-14 (15-16) lykkjur í garðaprjóni (vinstra framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið 5 lykkjur KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið eitt prjónamerki, prjónið 12 lykkjur í garðaprjóni (ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið 5 lykkjur klukkuprjón, setjið eitt prjónamerki, prjónið 14-16-18-20 (22-24) lykkjur í garðaprjóni (bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið 5 lykkjur klukkuprjón, setjið eitt prjónamerki, prjónið 12 lykkjur í garðaprjóni (ermi), setið eitt prjónamerki, prjónið 5 lykkjur klukkuprjón, setjið eitt prjónamerki, prjónið 11-12-13-14 (15-16) lykkjur í garðaprjóni og fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan (hægra framstykki). Nú hafa verið sett 8 prjónamerki í stykki sem merkja hvar prjóna á klukkuprjón og hvar auka á út fyrir laskalínu. Frá röngu eru sléttar lykkjur prjónaðar yfir allar lykkjur nema 4 einingar með klukkuprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA hvoru megin við hverja einingu með klukkuprjóni: Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð 4-6-7-10 (11-14) sinnum, síðan 1 lykkju í 4. hverri umferð 8-9-9-8 (8-8) sinnum = 176-204-216-236 (248-276) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist ca 9-10-11-12 (13-14) cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er stykkinu skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar, prjónað er þannig: Prjónið 23-27-29-32 (34-38) lykkjur garðaprjón og 5 lykkjur klukkuprjón. Setjið næstu 36-42-44-48 (50-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið 5 lykkjur klukkuprjón, 38-46-50-56 (60-68) lykkjur garðaprjón, 5 lykkjur klukkuprjón, setjið næstu 36-42-44-48 (50-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið 5 lykkjur klukkuprjón og 23-27-29-32 (34-38) lykkjur garðaprjón. Nú er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 118-134-142-154 (162-178) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni og klukkuprjóni eins og áður, að auki eru nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi inn í klukkuprjónsmynstri (í fyrstu umferð eru lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi inn í klukkuprjónsmynstri (í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar undir hvorri ermi án þess að prjóna þær með uppslætti). Prjónið þar til stykkið mælist 12-15-16-18 (20-23) cm. Sjá I-CORD AFFELLING og fellið af frá réttu. Stykkið mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl. ERMI: Setjið til baka 36-42-44-48 (50-56) lykkjur frá öðrum þræðinum á hringprjón 3. Nú er prjónað fram og til baka í garðaprjóni, í fyrstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 4 lykkjur í lok hverrar umferðar = 44-50-52-56 (58-64) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-6.-6. (8.- 8.) hverri umferð alls 4-7-8-9 (8-10) sinnum = 36-36-36-38 (42-44) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 13-15-17-19 (23-27) cm. Fellið af með i-cord affelling frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Christaclemens wrote:
Die Zunahmen an der Raglanlinie sollen ja als Umschlag gemacht werden, das werden bei mir aber Löcher, sieht nicht gut aus. gibt es eine andere Möglichkeit der Zunahme ?
03.01.2023 - 17:00