DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Swing by Spring Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð 0 - 4 ára.

DROPS Baby 43-8
DROPS Design: Mynstur bm-131-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 – 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150 (150-200) g litur 27, bleikvínrauður

DROPS TALA NR 616: 5-5-5-5 (6-6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4 (5-5) næstu hnappagötum með ca 5-5½-6-6½ (6-6½) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 77-85-89-93 (97-97) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino.
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið stroff í 2 cm.

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 alls 16-18-19-20 (21-21) sinnum á breidd og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 109-121-127-133 (139-139) lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið nú mynstur þannig:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, A.4 alls 15-17-18-19 (20-20) sinnum á breidd, A.5 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í mynstri er aukið út um 0-0-1-1 (5-17) lykkjur jafnt yfir = 203-227-240-252 (268-280) lykkjur.
Stykkið mælist ca 11-11-11-12 (12-12) cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 12-13-14-15 (16-17) cm, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 29-32-33-35 (38-40) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-44-48-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6 (6-6) lykkjur undir ermi, 57-63-66-70 (76-80) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-44-48-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6 (6-6) lykkjur undir ermi, prjónið 29-32-33-35 (38-40) lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 135-147-156-164 (176-184) lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 10-10-10-11 (14-15) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá röngu = 145-157-166-175 (190-199) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 3 cm.
Peysan mælist ca 25-29-31-34 (37-41) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 38-44-48-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-6-6 (6-6) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-48-54-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-4-6-6 (6-6) lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 1-1½-1-1½ (2-3) cm millibili alls 2-4-6-6 (6-6) sinnum = 38-40-42-44 (46-48) lykkjur.
Þegar ermin mælist 6-9-10-13 (16-21) cm frá skiptingu, aukið út um 4-5-6-4 (5-6) lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-48 (51-54) lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 3 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = prjónið 7 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Ine wrote:

Hallo, ik maak het babyvestje DROPS Baby 43-8. Nu staat er in A4 dat een steek, opgebouwd met 7 omslagen/steken, blokje met ster. Hoe doe je die samengestelde steek dan in een keer averechts breien. Ik krijg ze niet samen gepakt. Elke keer hangt er wel een lus die ik niet gepakt heb, Graag een tip of hulp. Dank je wel voor een antwoord.

14.04.2024 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Ine,

Op de volgende naald brei je die steken niet samen, maar allemaal los van elkaar. In het telpatroon kun je ook zien dat er 7 steken boven staan. Dus je breit zowel de lussen als de steken averecht aan de verkeerde kant.

15.04.2024 - 21:09

country flag Sonia wrote:

En la manga ahy q recojer x vueltas los puntos q se añaden por talla. Esq no entendí bien la explicación. Gracias

07.04.2024 - 23:26

DROPS Design answered:

Hola Sonia, en la misma vuelta, la 1ª vuelta de las mangas, recoger 1 punto en cada uno de los puntos montados bajo la manga. El número de puntos dependerá de la talla que estés trabajando. Se recogen todos los puntos en la misma vuelta.

08.04.2024 - 00:41

country flag Ingvild wrote:

Jeg strikker i størrelse 1/3. jeg har lagt opp 85 masker å skal nå begynne på A.1,A.2. Men Jeg får det bare til å gå opp 14 ganger i bredden, ikke 18 som det står. Hva gjør jeg galt?

30.03.2024 - 22:34

country flag Sonia wrote:

En la parte del A3 A4 y A5 primero ago el A3 1 vez el A4 lo repito,hasta que queden 6 puntos antes de la cenefa

19.03.2024 - 14:03

DROPS Design answered:

Hola Sonia, en el canesú trabajas: 6 puntos de la cenefa, A.3 1 vez, A.4 el número de veces indicado para tu talla (p.e 15 para la talla más pequeña), A.5 1 vez y 6 puntos de la cenefa.

24.03.2024 - 22:54

country flag Tauriel wrote:

Ola buenas el A 1 cómo debo d hacerlo y lo mismo con el A2 esq me ago un poco de lío y creo q no compréndo bien el diagrama del dibujo.

09.03.2024 - 16:42

DROPS Design answered:

Hola Sonia, puedes leer aquí cómo leer diagramas:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23. A.1 se trabaja de derecho por el lado derecho y revés por el lado revés. Para A.2, las cruces se trabajan de revés por el lado derecho y de derecho por el lado revés. En las filas 1 y 3 de A.2 tienes 1 hebra en cada repetición del diagrama. Como tienes 21 repeticiones aumentas 21 puntos en la fila 1 y 21 en la fila 3 = 42 puntos en total.97 puntos iniciales + 42 aumentos = 139 puntos. Las primeras 2 filas de A.2: Fila 1=revés, derecho, revés, hebra, derecho. Fila 2= revés, 2 derechos, revés, derecho. No olvidar elegir el diagrama correcto para tu talla.

10.03.2024 - 23:30

country flag Sonia wrote:

Ola estoy siguiendo el patrón como me dijeron y la lectura del esquema como lo esplica pero el dibujo no me sale bien. Nose si esq yo lo ago male podéis decir con hacer el dibujo de la chaqueta. Gracias

09.03.2024 - 16:40

DROPS Design answered:

Hola Sonia, puedes leer aquí cómo leer diagramas:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23. A.1 se trabaja de derecho por el lado derecho y revés por el lado revés. Para A.2, las cruces se trabajan de revés por el lado derecho y de derecho por el lado revés. En las filas 1 y 3 de A.2 tienes 1 hebra en cada repetición del diagrama. Como tienes 21 repeticiones aumentas 21 puntos en la fila 1 y 21 en la fila 3 = 42 puntos en total.97 puntos iniciales + 42 aumentos = 139 puntos. Las primeras 2 filas de A.2: Fila 1=revés, derecho, revés, hebra, derecho. Fila 2= revés, 2 derechos, revés, derecho. No olvidar elegir el diagrama correcto para tu talla.

10.03.2024 - 23:30

country flag Sonia wrote:

En la talla 3/4 a la hara de hacer el canesu es un poco confuso que diagramas debes seguir. Me gustaria q me orientaran como seguirlo porque es un poco lioso y asi poder avanzar con la chaqueta. Gracias

28.01.2024 - 09:50

DROPS Design answered:

Hola Sonia, al empezar el canesú trabajas como sigue: 6 puntos de la cenefa en punto musgo, trabajar A.1 1 vez , trabajar A.2 21 veces y 6 puntos de la cenefa en punto musgo. Recordar que para A.2 tienes que trabajar el diagrama para tu talla, el que pone 12/18 (2-4). Continuar hasta haber trabajado todas las filas de A.1 y A.2 (es decir, 6 filas de A.1 + A.2). Ahora trabajar como sigue: 6 puntos en punto musgo, trabajar A.3 1 vez, trabajar A.4 20 veces, trabajar A.5 1 vez y 6 puntos de la cenefa en punto musgo.

30.01.2024 - 00:10

country flag Alice wrote:

Hei! Teen neuletta 2-vuotiaan koossa. Neulonko myös piirroksen A.1 silmukat, joita on vain neljä kerrosta vai kuuluuko A.1. piirros neuloa vain kokoihin 0/1-1/3-6/9? Eli neulonko suoraan vain piirroksen A.2. 12/18 (2-4) mukaisesti? Kerroksiahan tässä A.2 12/18 (2-4) -piirroksessa on enemmän kuin pienemmässä koossa ja A.1 piirroksessa, jos olen ymmärtänyt oikein. Kiitos jo etukäteen!

18.01.2024 - 08:54

DROPS Design answered:

Hei, sinun tulee neuloa myös piirroksen A.1 4 kerrosta. Eli neulot seuraavasti: 6 ainaoikeinneulottua reunasilmukkaa, A.1, toista piirroksen A.2 mallikertaa yhteensä 16-18-19-20 (21-21) kertaa kerroksella, ja neulo lopuksi 6 ainaoikeinneulottua reunasilmukkaa.

23.01.2024 - 17:06

country flag Hélène wrote:

Le diagramme A1 apparaît uniquement comme 4 rangs de jersey. est-ce un problème d'affichage sur le site en français? merci

21.12.2023 - 19:23

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, le diagramme A.1 est juste, il permet au motif d'être symétrique car A.2 commence par 2 mailles envers et se termine par 1 maille endroit, ainsi, la 1ère maille sur l'endroit (dernière sur l'envers) avant/après la bordure du devant gauche se tricote en jersey. Bon tricot!

22.12.2023 - 08:26

country flag Ann-Marie Atkinson wrote:

Hi I am new to knitting diagrams of this kind, I have read the instructions, and I think I work across diagrams A.3 A.4 and A5 but there appears to be two extra rows on A3, or have I completely misunderstood the instructions. Your help would be very welcome. Many Thanks Ann-Marie

17.12.2023 - 22:06

DROPS Design answered:

Dear Ann-Marie, the number of stitches in each diagram will vary to make the leaves, this means you will increase to begin each leaf (see symbol star, black square and triangle) and at the same time decrease to "end" the leaves. Do not hesitate to add markers between each diagram, it can be then easier to follow diagrams row after row making sure you get the correct number of sts each time. Happy knitting!

18.12.2023 - 09:38