DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cotswolds Sweater

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með laskalínu og gatamynstri, ofan frá og niður. Stærð 0 – 2 ára.

DROPS Baby 43-1
DROPS Design: Mynstur fl-005-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-150-150 g litur 20, ferskjubleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.

LASKALÍNA:
Á framstykki og bakstykki eru útaukningarnar teiknaðar inn í mynsturteikningu. Á ermum er aukið út þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt.
Í næstu umferð er uppsláttur prjónaður í útaukningu snúinn, svo ekki myndist gat!
Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 10-12-14-16-17 sinnum.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 86-86-86-98-98 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Flora.
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón 3.

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið, aukið út og prjónið mynstur þannig:
Ermi: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju.
Framstykki: A.1, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3.
Ermi: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju.
Bakstykki: A.1, A.2 er prjónað 3-3-3-4-4 sinnum, A.3.

Haldið áfram með mynstur svona og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig:
Prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram að 2. prjónamerki, A.1, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3, prjónið sléttprjón og aukið út yfir ermi eins og áður fram að 4. prjónamerki, A.1, A.2 er prjónað 5-5-5-6-6 sinnum, A.3.
Endurtakið mynstur á hæðina. Í hvert skipti sem A.1 og A.3 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á bakstykki og á framstykki. Þegar A.1 og A.3 hefur verið endurtekið alls 2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, er útaukningu lokið á framstykki og bakstykki, haldið einungis áfram með útaukningu á ermum eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með mynstur á bakstykki og framstykki eins og áður, en án útaukningar.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 182-190-222-242-246 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig:
Byrjið að prjóna við 2. lykkju í umferð (þetta er núna byrjun á umferð), prjónið 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum, prjónið 37-41-45-49-51 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 9-9-11-12-12 sinnum (síðasta lykkjan sem var prjónuð í A.2 er fyrsta lykkjan í umferð). Þegar 5. umferð í A.2 er prjónuð, prjónið fyrstu lykkju í fyrstu mynstureiningu á framstykki/bakstykki slétt, síðasta lykkjan í síðustu mynstureiningu á framstykki/bakstykki er prjónuð yfir fyrstu lykkju á ermi.
Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16 cm frá uppfitunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Setjið fyrstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður, setjið næstu 37-41-45-49-51 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 54-54-66-72-72 lykkjur mynstur eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 120-120-144-156-156 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.2 yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 9-12-13-15-17 cm frá skiptingu, aukið út um 18-18-22-24-24 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 138-138-166-180-180 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm.
Fellið af. Peysan mælist alls ca 24-28-30-33-36 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 37-41-45-49-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-47-51-55-57 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-2-2½ cm millibili alls 3-5-6-7-8 sinnum = 37-37-39-41-41 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10-12-15-16-22 cm frá skiptingu aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir = 42-42-44-46-46 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm.
Ermin mælist ca 13-15-18-19-25 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Anna wrote:

Hallo, Ich stricke in der Größe 12/18. Wenn ich A1 und A3 insgesamt 3x in der Höhe gestrickt habe und die Zunahmen im Vorder-/Rückenteil fertig sind. Wie kann ich dann weiter stricken ohne dort weiter zuzunehmen. Stricke ich dann nur noch A2 weiter. Vielen dank

31.07.2023 - 20:22

country flag Abby Hubbard wrote:

After you have worked A.1 and A.3 and need to just work the increases on the sleeves how does the pattern on the front and back continue without increases? Are you just knitting A.2?

29.04.2023 - 03:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hubbard, note which stitch is the first one in A.1 and the last one in A.3 on front and back piece and mark it in the diagram, you will now work only the sts on the left of this first st in A.1 and only the first sts on the right of this last st in A.3. Make sure there will always be as many yarn overs as decreases in A.1/A.3 to avoid changing the number of sts. Happy knitting!

02.05.2023 - 08:07

country flag Pernille wrote:

Hei, jeg skal strikke denne genseren i str. 6/9, altså 86m halskant. Omgangen etter vrangborden skal strikkes slik: Erme: 12m (+4), Forstykke: A.1+A.2=12mx3= 36m + A.3 5m = 41m Erme: 12m (+4) Bakstykke: A.1+A.2=12mx3= 36m + A.3 5m = 41m Men 12+12+41+41= 106masker. Hva gjør jeg feil? Jeg har jo bare 86 masker

22.02.2023 - 19:58

DROPS Design answered:

Erme: sett 1.merke i første maske, strikk 12 masker glattstrikk og øk 4 masker jevnt fordelt, sett 2.merke i neste maske. = 14 Forstykke: A.1 =6, A.2=6 strikkes 3 ganger, A.3=5 = 29m. Erme: sett 1.merke i første maske, strikk 12 masker glattstrikk og øk 4 masker jevnt fordelt, sett 2.merke i neste maske. = 14 masker Bakstykke: A.1, A.2 strikkes 3 ganger, A.3= 29 masker. 14+29+14+29=86 masker + de masker du tager ud :)

24.02.2023 - 15:41

country flag Jytte Mørck wrote:

Hej Jeg strikker baby 43-1 i str 6-9 mdr Jeg har nu strikket de 3 gentagelser af mønsteret i højden og skal fortsætte for- og bagstykke uden udtagninger. Nu har jeg problemer i starten af 5 p A.1 Mønsteret forskubber sig på hele rækken når jeg gør som beskrevet. Håber i kan hjælpe mig. Har prøvet på forskellige måder, men kan ikke få det til at passe. Mvh Jytte

30.09.2022 - 20:42

DROPS Design answered:

Hei Jytte. Usikker på hvorfor det forskyver seg hos seg, men kanskje det er en økning (enten raglan økning på erme og i diagrammene) som er blitt glemt, slik at mønstret blir forskyvet? Har du riktig maskeantall på for-og bakstykket etter å ha strikket A.1, A.2 og A.3 1 gang i høyden? Og når du har strikket diagrammene 1 gang til i høyden har du da 12+12 flere masker (2 rapporter mer av A.2, både foran og bak). En god ide er å bruke maskemarkører mellom hvert diagram, slik at man enkelt skal sjekke at man har riktig maskeantall. mvh DROPS Design

10.10.2022 - 10:49

country flag Monica wrote:

Nella domanda di prima ho dimenticato di chiedere... lavorando le maniche devo sempre aumentare di 4 maglie oltre agli aumenti del raglan?

06.09.2022 - 17:58

DROPS Design answered:

Buonasera Monica, deve procedere con gli aumenti sulle maniche come indicato nelle spiegazioni. Buon lavoro!

27.09.2022 - 21:40

country flag Monica wrote:

Buongiorno, lavorando il collo, finiti i due cm, inizio con il diagramma ma alla fine del giro totale mi restano 4 maglie. E corretto? Si lavorano a dritto?

06.09.2022 - 17:56

DROPS Design answered:

Buonasera Monica, ha inserito i segnapunti NELLE maglie come indicato e non TRA le maglie? Buon lavoro!

12.09.2022 - 21:49

country flag Nat wrote:

Hi can you explain what “Continue this pattern and increase to RAGLAN” means? when do i follow what it says in the raglan section and when do i go back to what it says in the yoke section?

06.09.2022 - 06:29

DROPS Design answered:

Hi Nat, You begin to increase for raglan straight away when told to do so in the text (following the instructions under Raglan at the top of the pattern). When A.1 to A.3 are finished in height, you then follow the new increase instructions in the text. Happy knitting!

06.09.2022 - 06:52

country flag Edite wrote:

Bonjour,je me suis mal exprimée dans ma question précédente ,en fait c'est quand je commence l'empiecement avec les 12 mailles et les diagrammes à la fin du rang il me reste 4 mailles !!!Dois-je en tricoter 2 de plus avec les 12 soit 14 pour les manches.Merci pour l'aide.

10.05.2022 - 11:09

DROPS Design answered:

Bonjour Edite, attention, les marqueurs sont à insérer dans une maille, pas entre 2 mailles, autrement dit, vous aurez: 1 m avec 1 marqueur, 12 m + 4 m = 16 m, 1 m avec 1 marqueur (manche), A.1, 4xA.2 et A.3 (devant), 1 m avec 1 marqueur, 12 m + 4 m = 16 m, 1 m avec 1 marqueur (manche), A.1, 4xA.2 et A.3 (dos), soit: 1+16+1+6+24+5+1+16+1+6+24+5=106 m (et si on retire les 8 augmentations = 98 mailles). Bon tricot!

10.05.2022 - 14:04

country flag Edite wrote:

Quand je finis de tricoter l'empiecement avec les 12 mailles et les diagrammeset A1,A2 et A3 il me reste quatre mailles sur les aiguilles!!! Je tricote la taille deux ans.Merci pour l'aide

06.05.2022 - 18:50

DROPS Design answered:

Bonjour Edite, avez-vous bien 246 mailles avant la division? Si tel est le cas, vous devriez tomber juste: 51 mailles (manche) + 72 mailles (devant) + 51 mailles (manche) + 72 mailles (dos) soit 51+72+51+72=246 mailles. Bon tricot!

09.05.2022 - 07:53

country flag Susanne wrote:

Hej jag har nu stickat de tre rapportera tre ggr enligtbeskrivning för st 12-18mån. Men nu förstår jag inte. Det står fortsätt sticka med ökningarna för ärm men inte på fram och bakstycke, är det de svarta ökningarna i rapporten ni menar att jag inte ska göra? För sedan står det längre ner börja sticka på den andra maskan (antar att det är i mönstret ni syftar då och inte på arbetet) och då är det ju samma som det står högre upp när jag nu ska sticka utan ökningar?

06.04.2022 - 12:47