DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hortense Top

Heklaður bolur / peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-36
DROPS Design: Mynstur cm-142
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-400-450-500-550 g litur 05, púðurbleikur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta stuðulinn), þ.e.a.s. hoppið yfir síðustu lykkju frá fyrri umferð. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðulinn), hoppið yfir síðustu lykkjuna frá fyrri umferð. Síðasti tvíbrugðni stuðullinn í umferð er heklaður í 4. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. Útauknar lykkjur halda áfram í stuðlum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum. Stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru heklaðar fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Heklið 75-83-89-99-107-119 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 71-79-85-95-103-115 loftlykkjur = 73-81-87-97-105-117 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið síðan mynstur þannig:
1 stuðull í hvern af fyrstu 4-3-6-6-5-6 stuðlum, A.1 alls 6-7-7-8-9-10 sinnum, A.2 og 1 stuðull í hvern af síðustu 4-3-6-6-5-6 stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstrið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA = 71-79-85-95-103-115 lykkjur.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 69-77-83-93-101-113 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 6-6½-4½-7½-5-5 cm millibili alls 3-3-4-3-4-4 sinnum = 75-83-91-99-109-121 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og heklið mynstrið þannig:

Hoppið yfir fyrstu 4-5-5-6-7-9 stuðla fyrir handveg, festið þráðinn með 1 fastalykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman, 1 stuðull í hvern af næstu 8-6-9-7-16-15 stuðlum, A.1 alls 4-5-5-6-5-6 sinnum, A.2, 1 stuðull í hvern af næstu 8-6-9-7-16-15 stuðlum, heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman og 1 stuðul í síðustu lykkju, snúið (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 4-5-5-6-7-9 stuðla í umferð að neðan) = 65-71-77-83-91-99 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og heklið 2-2-3-3-3-3 stuðla saman í hvorri hlið í hverri umferð alls 2-4-2-3-5-7 sinnum (meðtalin fyrsta úrtaka sem var gerð þegar hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg), síðan 0-0-2-2-2-2 stuðlar saman í hvorri hlið í hverri umferð alls 0-0-3-3-2-1 sinnum = 63-65-67-69-71-73 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur yfir miðju lykkjur og 1 stuðul í hvern af ystu stuðlum í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, heklið stykkið áfram í stuðlum, endið e.t.v. gatamynstrið sem byrjað.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, heklið hálsmál þannig:
1 stuðull í hvern og einn af fyrstu 16-17-17-18-18-19 stuðla, heklið 2 stuðla saman, snúið = = 17-18-18-19-19-20 stuðlar fyrir öxl.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.
Hin öxlin er hekluð þannig:
Hoppið yfir miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 2 stuðla saman, 1 stuðull í hverja af síðustu 16-17-17-18-18-19 stuðlum. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm = 63-65-67-69-71-73 lykkjur. Nú er heklað hálsmál þannig:
Heklið mynstur og stuðla eins og áður yfir fyrstu 19-20-21-22-23-24 lykkjur (einungis er heklað gatamynstur sem gengur jafnt upp á breiddina, aðrar lykkjur eru heklaðar í stuðlum), heklið 2 stuðla saman (= fyrsta úrtaka fyrir hálsmáli) = 20-21-22-23-24-25 lykkjur.
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 17-18-18-19-19-20 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, heklið stykkið í stuðlum, endið e.t.v. gatamynstur sem er byrjað.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn frá og festið.
Heklið hina öxlina á sama hátt, en heklið þá yfir síðustu 21-22-23-24-25-26 lykkjur frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og hliðarsauma fallega saman.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju um fyrstu umferð á eftir axlasauminn, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið og stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í síðustu umferð fá öxl.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga.
Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið hinn axlasauminn.

ERMI:
Heklið kant í kringum op fyrir ermar þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju í lykkjuna við hliðarsauminn, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir lykkjur undir ermi, heklið síðan upp meðfram handvegi þannig: * Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um næstu umferð *, heklið frá *-* um alla umferðina aftur niður að lykkjum undir ermi og heklið yfir þessar lykkjur alveg eins og í byrjun á umferð. Stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í síðustu lykkju undir ermi. Passið uppá að þessi umferð dragi ekki opið fyrir ermi saman, heklið e.t.v. fleiri loftlykkjur á milli hverra fastalykkja. Klippið þráðinn frá = ca 38-41-43-46-49-53 loftlykkjubogar.

Heklið frá réttu þannig:
Ermakúpan er hekluð fram og til baka yfir fleiri og fleiri loftlykkjuboga, þar til heklað hefur verið yfir alla loftlykkjubogana.
Byrjið í 5. loftlykkju niður frá axlasaumi séð frá réttu. Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann, heklið 2 stuðla um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. upp að axlasaumi), heklið 2 stuðla um hverja af næstu 7 loftlykkjum og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga = 16 stuðlar. Snúið og heklið frá röngu þannig:
Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 stuðlar í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga í hinni hlið á stykkinu = 32 stuðlar.
Snúið.
Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 stuðlar í fyrsta stuðul, 1 stuðull í hvern stuðul þar til eftir er 1 stuðull, 2 stuðlar í næsta stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga = 34 stuðlar.
Haldið svona áfram að auka út um 1 stuðul í hvorri hlið alls 5-6-8-9-10-12 sinnum = 42-44-48-50-52-56 lykkjur. Þ.e.a.s. nú eru eftir ca 16-17-15-16-17-17 loftlykkjubogar.
Í næstu umferð er heklað til skiptis 1 stuðull og 2 stuðlar um hvern af síðustu loftlykkjubogum niður að hliðarsaum. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðul og 2 stuðla um þá loftlykkjuboga sem eftir eru í hinni hliðinni á stykkinu = ca 66-69-70-74-77-81 stuðlar. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 62-65-68-74-77-81 lykkjur.
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul.
Þegar ermin mælist 3 cm þar sem stykkið er styst, fækkið um 1-1-1-1-0-0 stuðul í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum svona með 3-4-7-0-0-0 cm millibili alls 4-3-2-1-0-0 sinnum = 54-59-64-72-77-81 stuðlar.
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 15-15-14-14-13-12 cm þar sem stykkið er styst. Klippið þráðinn og festið.

Heklið hina ermina á sama hátt. Saumið ermasauma.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.06.2022
BAKSTYKKI:..Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, heklið hálsmál þannig:
1 stuðull í hvern og einn af fyrstu 16-17-17-18-18-19 stuðla, heklið 2 stuðla saman, snúið = = 17-18-18-19-19-20 stuðlar fyrir öxl.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.
Hin öxlin er hekluð þannig:
Hoppið yfir miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 2 stuðla saman, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 16-17-17-18-18-19 stuðlum. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = þríbrugðinn stuðull um 2 loftlykkjur 2 umferðum fyrir neðan, þ.e.a.s. heklað er um 2 loftlykkjur og um 6 loftlykkjur í umferðinni fyrir neðan
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, je ne comprends pas l'explication du premier rang de brides pour les manches. Vous expliquez que ce premier rang commence dans la 5 ème maille avant la couture d'épaule, mais ainsi le travail n'est pas équilibré ( 2 brides d'un côté et 14 brides de l'autre côté de la couture) . Est ce normal ?

12.03.2024 - 23:15

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, vérifiez que vous avez bien 1 maille serrée au niveau de la couture d'épaules, en commençant dans le 5ème arceau avant cette mailles serrée, vous aurez 1 ms dans cet arceau, puis 2 brides dans les 4 arceaux suivants avant la couture + 2 brides dans les 4 arceaux après la couture = 8 arceaux de 2 brides chacun = 16 brides (8 de chaque côté), terminez par 1 maille coulée dans l'arceau suivant. Bon crochet!

13.03.2024 - 08:22

country flag Marlies wrote:

Is het mogelijk om het patroon rond te haken van beneden naar boven?

01.02.2024 - 14:47

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Helaas is het voor ons niet mogelijk om een patroon aan te passen naar persoonlijke wensen. Je zou inderdaad in de rondte kunnen haken, maar houd er dan wel rekening mee dat het de steken elke toer een beetje verschuiven, waardoor het werk scheef kan trekken. Je zou ook het werk elke toer kunnen keren, en terug haken.

04.02.2024 - 19:15

country flag Marlies wrote:

Hoe kan ik een patroon langer maken als ik van onder naar boven werk? bijvoorbeeld van de hortense top. Ik wil deze graag 10 cm. langer maken. Hoeveel extra garen heb ik dan nodig?

28.01.2024 - 19:24

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Hoeveel extra garen je nodig hebt, hangt ook af van je maat. Je kunt een paar extra bollen bestellen en aan de winkel waar je het garen koopt vragen wat de regels zijn voor het retourneren van overgebleven bollen.

28.01.2024 - 19:31

country flag LE GOFF wrote:

J ai beaucoup de mal à comprendre pour le démarrage du dos. soit 1bride dans chacune des premières brides, 4,3,6,6,5,6. 6.7.8.9.10 fois A1 et 1 bride dans chacune des 4.3.6.6.5.6 dernières brides. Merci de m'aider

05.01.2024 - 17:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Goff, chacun de ses chiffres correspond à la taille, autrement dit, en S, vous crochetez 4 brides, 6 xA.1, 1 x A.2 et 4 brides (et ainsi de suite pour chaque taille). Bon crochet!

08.01.2024 - 09:29

country flag Lai wrote:

Hi, I have question for the back piece starting from the armholes. Since it said make sure the next row is dc, so I started with skipped 5 stitches then double crochet for the whole row and confirmed it ended with 77 stitches. For the next row, when I decrease on each end, how many double crochet do I do before I continue A1?

05.07.2023 - 19:58

DROPS Design answered:

Dear Lai, on 2nd row you will crochet 3 ch (1st dc), then 3 dc tog, 7 dc, A.2, A.1x5, 7 dc, 3 dc tog, 1 dc. Insert a marker before starting A.1 and after A.2 (from 1st row) so that you are sure to work A.1 and A.2 over the correct number of stitches. Happy crocheting!

06.07.2023 - 10:19

country flag Lai wrote:

Hi, I have question for the back piece starting from the armholes. Since it said make sure the next row is dc, so I started with skipped 5 stitches then double crochet for the whole row and confirmed it ended with 77 stitches. For the next row, when I decrease on each end, how many double crochet do I do before I continue A1?

05.07.2023 - 19:56

country flag Claudia wrote:

Hola, buenas tardes: Tengo problemas con las mangas. No sé cómo trabajar el punto enano, 3 cadenetas y punto enano de la copa. ¿Tendrán algún video tutorial o algunas fotos? Muchas gracias.

13.02.2023 - 19:01

DROPS Design answered:

Hola Claudia, puedes ver todos los videos que tenemos disponibles para esta labor después de las instrucciones del patrón. No disponemos de vídeos específicos para realizar esta labor.

16.02.2023 - 20:42

country flag Claudia wrote:

Hola. Tengo problemas al llegar a la sisa. Entiendo que el nuevo patrón aplica desde la siguiente fila de puntos altos. Luego dice: continuar con el patrón de ida y vuelta, con tres puntos altos juntos a cada lado. Esto es en la fila con los dos puntos de cadeneta? Se refiere al nuevo patrón o al primero? Los puntos a cada lado de la labor no me quedan parejos. No sé si me habré expliacado bien. Muchas gracias.

10.09.2022 - 15:23

DROPS Design answered:

Hola Claudia, el patrón se refiere a la estructura establecida en la primera fila explicada. Posteriormente, tienes que trabajar con A.1 sobre A.1 y A.2 sobre A.2 (y trabajar o saltar puntos altos como se explica). Cada fila empieza con 3 cadenetas (si es 1 punto alto). Después trabajas la disminución justo depués de esto O antes del último punto alto.

12.09.2022 - 23:11

country flag Anne wrote:

Jeg skjønner ikke starten på 2. rad på ermet (og de neste radene). Det står «Hekle 3 luftmasker, 1 kjedemaske om neste luftmaskebue» - hvor er neste luftmaskebue? Det er jo ingen luftmaskebuer når man skal hekle tilbake over stavene fra forrige rad.

02.09.2022 - 19:35

DROPS Design answered:

Hei Anne. Du skal hekle en kant rundt ermåpningen med fastmasker og luftmasker, avpass at det avsluttes med 1 fastmaske i siste maske under ermet. Klipp tråden, det skal nå være ca 38-53 luftmaskebuer. Luftmaskebuene er luftmaskene som er blitt heklet rundt ermåpningen. Nå skal det startes i den 5.luftmaske ned fra skuldersømmen. Hekle 1 fastmaske om luftmasken/luftmaskebuen, hekle 2 staver om neste luftmaske /luftmaskebue (dvs opp mot skuldersømmen), hekle 2 staver om hver av de neste 7 luftmaskene / luftmaskebuene, og avslutt med 1 kjedemaske om neste luftmaskebue = 16 staver. mvh DROPS Design

05.09.2022 - 10:56

country flag Paula wrote:

Mitä tarkoittaa piilosilmukka ktjs-kaareen hihapyöriön kerroksen alussa? Työ on käännetty, joten vastassa on 1. kerroksen 16 pylvästä eikä ketjusilmukkakaaria. Käännä työ ja virkkaa seuraava kerros (= nurja puoli) näin: Virkkaa 3 ketjusilmukkaa, 1 piilosilmukka seuraavaan ketjusilmukkakaareen... Onko hihapyöriön virkkauksesta mahdollista saada ohjevideo?

04.08.2022 - 15:44