DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lila Mist

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-24
DROPS Design: Mynstur as-166
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-175-200-225-225 g litur 17, ljós lavender

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
18 lykkjur í mynstri = 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið, framstykkið og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Frágangur á stykkjum er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 87-99-99-111-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 72-84-84-96-108-120 lykkjur (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í A.1 til A.3 hafa verið prjónaðar til loka á hæðina.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið nú mynstur frá umferð með ör. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt frá þar sem mynstrið sveigist niður á móti – þetta á við í gegnum alla uppskriftina). Nú eru felldar af 6-6-6-6-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 75-87-87-99-99-111 lykkjur.
Nú er mynstrið prjónað í mismunandi stærðum þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður:

Stærð S, M, L og XL:
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 60-72-72-84 lykkjur (= 5-6-6-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan.

Stærð XXL og XXXL:
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 84-96 lykkjur (= 7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan.

Allar stærðir:
Fellið nú af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-30-29-35-34-40 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2 er prjónað sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. Fellið af – sjá AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki. Prjónið mynstur og fellið lykkjur af fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist ca 46-48-49-51-52-54 cm – nú eru eftir ca 8-8-9-9-10-10 cm að loka máli, setjið miðju 13 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið nú hvora öxl til loka hvora fyrir sig og mynstur er prjónað og úrtaka eins og útskýrt er að neðan - lestu því kaflann MYNSTUR og ÚRTAKA áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2, prjónið sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka.

ÚRTAKA:
Fellið af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-5-5 sinnum = 24-30-29-35-34-40 lykkjur eftir fyrir öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 53-55-57-57-59-61 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1-2-3-3-4-5 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka á hæðina.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið áfram með mynstri frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör.
Þegar stykkið mælist 10-10-10-8-7-4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin á ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-11-13-14-15 sinnum = 73-77-79-83-87-91 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 50-48-49-47-44-41 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkir hvar botninn á handveg byrjar.
Prjónið mynstur eins og áður þar til ermin mælist alls 53-51-52-50-51-48 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.
Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með hringprjón 4,5 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp 68 til 80 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum kant í hálsmáli. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið af – sjá AFFELLING.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt/brugðið (sjá næstu umferð í mynsturteikningu), þannig að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
symbols = endurtakið mynstur frá þessari umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Dominique wrote:

Bonsoir, Combien faut-il commander de pelotes de 25 gr pour une taille L en sachant que pour ce modèle je vais faire des côtes 1/1 sur 6 cm pour le dos et devant ainsi que les manches dans une autre laine Merci

25.08.2023 - 22:15

country flag Hilary Knight wrote:

How much of the yarn do I need to purchase for a size 14 jumper

27.12.2022 - 16:12

DROPS Design answered:

Hi Hilary, You will find a size-chart at the bottom of the pattern giving all the measurements in the different sizes. Happy festive season!

28.12.2022 - 12:00

country flag Jane Milliken wrote:

Please disregard the question I just sent you. I have realized that I am no supposed to be using A.4 yet. Apologies.

07.08.2022 - 01:44

country flag Jane Milliken wrote:

In the pattern diagrams, rows 11, 13, 15, 17, and 19 begin with a knit 2 together. Where does the extra stitch come from?

07.08.2022 - 01:37

country flag Pia Kampp Sørensen wrote:

Jeg har ingen kommentar, for opskriften er god til mig😊

14.06.2022 - 09:41

country flag Jenny wrote:

1.Bij de stekenverhouding staat niet gespecifieerd welk nr van breinaald hier gebruikt wordt. Ik veronderstel voor de tricotsteek 4,5 en voor patroon 5? 2. Bij de benodigdheden staan enkel rondbreinaalden, maar aangezien hier vanonder naar boven en elk stuk apart gebreid wordt, kan dit toch even goed met de gewone breinaalden? Rondbreinaalden zijn niet zo handig als je het niet gewoon bent.

28.04.2022 - 12:10

DROPS Design answered:

Dag Jenny,

Voor de stekenverhouding gebruik je de dikste naald. (De dunne naald wordt alleen voor de randen gebruikt) De stekenverhouding wordt uitgedrukt in tricotsteek. Bij het breinen in patroon is hier rekening mee gehouden. Als het niet echt nodig is, kun je inderdaad de betreffende delen met rechte naalden breien in plaats van met de rondbreinaald. Houd er wel rekening mee dat je spanning /stekenverhouding verschillend kan zijn omdat je met rechte naalden misschien meer ontspannen breit. Dit zie je mogelijk in het breiwerk.

04.05.2022 - 08:53

country flag Inge Knudsen wrote:

Kan jeg strikke denne model rundt i stedet for frem og tilbage?

20.04.2022 - 14:39

country flag Malin wrote:

Endless Summer Nights

15.01.2022 - 11:34

country flag Leonor wrote:

Roaring 20s

14.01.2022 - 19:15