DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10340.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Morning Dawn Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, með v-hálsmáli, picot og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-28
DROPS Design: Mynstur fa-487
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 623, bleik þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-175-175-200 g litur 38, krít

DROPS PERLUTALA, Blóm (bleik) NR 603: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10340.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 3,2.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni.

V-HÁLSMÁL:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

PICOT:
Fellið af með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið hægri prjóni inn á milli 2 næstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn inn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýir uppslættir á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið af 7 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 3 lykkjur). Haldið nú áfram með að prjóna frá *-* og fellið af 7 lykkjur alveg eins meðfram öllum affellingarkantinum.
Þegar það eru ekki nægilega margar lykkjur eftir til að gera nýjan picot þá eru þær lykkjur felldar af sem eftir eru. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkjur. Festið enda.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-128-140-152-168 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 104-112-120-132-144-160 lykkjur (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar með 4 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 113-121-129-141-153-169 lykkjur í umferð.
Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 33-35-37-41-43-49 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 81-87-93-101-111-121 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 82-88-94-102-112-122 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 35-39-40-41-42-43 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 78-82-88-94-102-110 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að ofan í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið af miðju 32-32-32-34-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl.
Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-70-74-82 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 48-52-56-64-68-76 lykkjur (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar með 4 lykkjum), 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 55-59-63-71-75-83 lykkjur í umferð.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 15-16-17-20-20-23 lykkjur jafnt yfir, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-56-61 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmál, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg – lestið því V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram:

V-HÁLSMÁL:
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni og í annarri hverri umferð 15-14-13-15-14-13 sinnum og í 4. hverri umferð 1-2-3-2-3-4 sinnum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-70-74-82 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
3 kantlykkjur í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 48-52-56-64-68-76 lykkjur (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar með 4 lykkjum), 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 55-59-63-71-75-83 lykkjur í umferð.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-16-17-20-20-23 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-56-61 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg – lesið því V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram.

V-HÁLSMÁL:
Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL - sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni og í annarri hverri umferð 15-14-13-15-14-13 sinnum og í 4. hverri umferð 1-2-3-2-3-4 sinnum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu, síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) hringinn í 5 cm.
Prjónið nú mynstur A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-13-16-15-16-16 lykkjur jafnt yfir = 46-47-48-49-52-52 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 11-12-12-9-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 8½-8½-6½-5½-4½-3½ cm millibili alls 5-5-6-7-8-9 sinnum = 56-57-60-63-68-70 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 48-47-46-45-42-40 cm. Í næstu umferð eru felldar af 4-6-6-8-10-12 lykkjur mitt undir ermi (= 2-3-3-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-2-2-1-1-1 lykkjur 1-2-3-4-7-10 sinnum og 6-5-4-5-3-0 lykkjur 1-1-1-1-1-0 sinni = 32-33-34-37-38-38 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið hliðarsauma niður þar til 5 cm eru eftir á framstykki og 10 cm á bakstykki (= klauf). Setjið eitt prjónamerki mitt að aftan í hálsmáli.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið með hringprjón 4,5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Byrjið neðst á fram- og bakstykki og frá réttu og prjónið upp 144 til 168 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón upp að prjónamerki mitt aftan í hálsmáli.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 3 cm. Fellið nú af fyrir 2 hnappagötum.
1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjurnar sem felldar voru af – ATH: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum í einingu með brugðnum lykkjum (séð frá réttu).
Neðsta hnappagatið er staðsett ca 6 cm að neðan þar sem V-hálsmálið byrjar og efsta hnappagatið ca þar sem V-hálsmálið byrjar.
Haldið áfram með stroff í 3 cm (6 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Nú er fellt af með PICOT – sjá útskýringu að ofan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið með hringprjón 4,5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Byrjið við prjónamerki mitt aftan í hálsmáli og prjónið upp frá réttu jafnmargar lykkjur og í hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Fellið nú af með picot.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt.
Þegar prjónað er í hring (á ermi), prjónið uppsláttinn slétt í næstu umferð – það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkið. Þ.e.a.s. bakstykkið er 56-58-60-62-64-66 cm (með 10 cm stroffi neðst) og framstykkið er 51-53-55-57-59-61 cm (með 5 cm stroffi neðst)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Anna wrote:

Vielen Dank für die Hilfe. Jetzt habe ich das Video auch auf dieser Seite aufgeführt gefunden. Ich hatte geschaut, aber komischerweise übersehen. Ich glaube ohne Video hätte ich es nicht so schnell verstanden. Mich hat der Ausdruck "Umschlag" irritiert. Im Grunde ist es für mich eine Masche, die man da aufnimmt. Ich war ein wenig begriffstutzig.

28.02.2024 - 23:25

country flag Anna wrote:

Hallo, gibt es ein Video für das Abstricken mit Pikots?

25.02.2024 - 10:50

DROPS Design answered:

Liebe Anna, gerne, dieses Video zeigt, wie man so einen Picorant strickt, vergessen Sie aber nicht, das Video zeigt die Technik, Maschenanzahl stricken Sie wie bei der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2024 - 09:18

country flag Wilma wrote:

Het is mij niet helemaal duidelijk hoe het zit met de afwerking van de voorbiezen. Maak ik de linker- en de rechtervoorbies bij de markeerdraad achteraf aan elkaar? (In het midden bij de nek.) Dat staat niet vermeld namelijk.

06.02.2024 - 08:20

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

Ja, de maak je inderdaad midden achter aan elkaar vast . Je hebt gelijk dat dat niet aangegeven staat.

07.02.2024 - 19:24

country flag Maggie wrote:

Ovatko tässä silmukkamäärät tosiaan oikeat.?Jopa S-koosta ( takakappale 112 silmukkaa) joustinneuleestakin tulee yli 60 cm leveä.

12.09.2023 - 22:24

DROPS Design answered:

Hei, silmukkamäärät ovat oikeat. Joustinneuletta varten luodaan paljon silmukoita, jotta siitä tulisi riittävän joustava.

18.09.2023 - 17:26

country flag Irene wrote:

Work the next row from the RIGHT SIDE as follows: 3 edge stitches in garter stitch, A.1 over the next 2 stitches, A.2 over the next 48-52-56-64-68-76 stitches ..... Work the next row from the RIGHT SIDE as follows... Sorry, but it is confusing - why it is right side again? what should be knitted on a wrong side? Thank you in advance. Irene

29.01.2023 - 02:18

DROPS Design answered:

Dear Irene, after working the first row from the right side, you need to continue working until A.1 and A.2 have been completed ("When A.1 and A.2 have been completed in height there are 55-59-63-71-75-83 stitches."). Since the last row of A.1 and A.2 is a row from the wrong side, the next row AFTER A.1 and A.2 should be a row from the right side, which is explained there: "Work the next row from the right side as follows...." Happy knitting!

29.01.2023 - 22:42

country flag Grace wrote:

Wait do i keep decreasing on this part? Continue working until the piece measures 53-55-57-59-61-63 cm = 21"-21 5/8"-22 1/2"-23 1/4"-24"-24 3/4".

30.10.2022 - 15:40

DROPS Design answered:

Dear Grace, after decreasing every 4th row a total of 2-3-4-5-8-10 times (as stated over your indicated sentence) you don't need to continue decreasing; work straight without decreases until you reached the necessary measurements. Happy knitting!

30.10.2022 - 20:32

country flag Grace wrote:

Hello! I'm working on size L and apparently this part says, "At the beginning of the next 2 rows bind off 2-3-3-4-5-6 stitches for the armholes = 78-82-88-94-102-110 stitches." I should end up with 88 stiches only but got 90 instead. How do i fix this? Thank youu

30.10.2022 - 14:23

DROPS Design answered:

Dear Grace, you had 94 stitches initially, after changing needles and casting on 1 stitch. You cast off 3 stitches at the beginning of the next 2 rows, so you cast off 6 stitches in total. 94-6 = 88 stitches. Happy knitting!

30.10.2022 - 20:27

country flag Lola wrote:

I have a question again 😅 I'm working on a large size and I got 129/37=3.48 So do I need to decrease alternatively every 3rd amd 4th stiches? am i correct? Thank youu

25.07.2022 - 12:48

DROPS Design answered:

Hi Lola, the calculation is like in DECREASE TIP (evenly spaced): (129-6)/37= 3,32. In this example decrease by knitting together approx. each 2nd and 3rd stitch. Happy knitting!

25.07.2022 - 21:18

country flag Lola wrote:

Hello! How many time do I have to repeat this part? Work the next row from the right side as follows: 3 edge stitches in garter stitch, A.1 over the next 2 stitches, A.2 over the next 104-112-120-132-144-160 stitches (= 26-28-30-33-36-40 repeats of 4 stitches) and 3 edge stitches in garter stitch.

24.07.2022 - 12:19

DROPS Design answered:

Hi Lola, you have to do that only 1 time (2 rows). Happy knitting!

24.07.2022 - 13:28

country flag Lin wrote:

Hi, can I get help with these instructions?: Decrease like this every 4th row 1 time, every 2nd row 15-14-13-15-14-13 times and every 4th row 1-2-3-2-3-4 times. I am confused by the wording of these instructions. How are the 2nd and 4th row different? and I am confused by the 4th row having instructions twice. Please help!

08.07.2022 - 10:08

DROPS Design answered:

Dear Lin, After the first decrease, work 3 rows without decreasing, then decrease on every 2nd row as follows: *work 1 row decreasing, 1 row without decreasing*, repeat from *-* the number of times stated for your size. Then decrease on every 4th row, work as follows: *work 1 row decreasing, 3 rows without decreasing*, and repeat from *-* the number of times for your size. Happy knitting!

08.07.2022 - 13:37