DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nature Lyrics

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-12
DROPS Design: Mynstur z-964
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS Alpaca frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450-500-550-600-650-700 g litur 9028, sítrónupaj

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-80-96-96-112-112 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið.
Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð er prjónað mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig:
Prjónið 8-8-12-12-16-16 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16-16-24-24-32-32 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-8-12-12-16-16 lykkjur sléttprjón.
Nú eru 96-96-112-112-128-128 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.1/A.2 hefur verið prjónuð.
Þ.e.a.s. 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.1/A.2 og 2 lykkjur fleiri í hverri A.1/A.2. Uppslátturinn í A.1/A.2 er prjónaður áfram slétt svo ekki myndist gat, uppslátturinn sem er eftir er ekki prjónaður snúinn (það eiga að myndast göt).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1a/A.2a fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 19-23-21-25-26-31 sinnum = 240-272-272-304-328-368 lykkjur. Mynstur A.1a og A.2a er endurtekið á hæðina.
Prjónið sléttprjón og mynstur A.1a/A.2a þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 27-31-33-37-42-47 lykkjur sléttprjón og A.1a eins og áður (10 lykkjur), setjið næstu 46-54-50-58-60-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.2a eins og áður (10 lykkjur), 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón, A.1a eins og áður (10 lykkjur), setjið næstu 46-54-50-58-60-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.2a eins og áður (10 lykkjur), 27-31-33-37-42-47 lykkjur sléttprjón. Klippið þráðinn.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-180-192-208-232-252 lykkjur. Byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erm. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1a/A.2a, lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar fram- og bakstykkið mælist 24 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út í næstu umferð þannig:
Prjónið 4-4-5-5-6-6 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur, A.3 yfir A.2a, 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón og aukið út um 10-10-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir A.1a, 8-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur, A.3 yfir A.2a, 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón og aukið út um 10-10-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir A.1a, 4-4-5-5-6-6 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 192-208-232-248-272-396 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið stroff þannig:‘
Stærð S-M: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið.
Stærð L-XL-XXL-XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt.
Prjónið stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum.

ERMI:
Setjið 46-54-50-58-60-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-62-60-68-72-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 8-4-5-2½-2-1 cm millibili alls 4-7-5-8-9-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-29-25-24-21-20 cm. Í næstu umferð er aukið út um 6-8-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Fellið af með sléttum lykkjum þega stroffið mælist 6 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Ulla Schnitker wrote:

Hallo und guten Tag, wie ist die Aufteilung der Schräge für 2Mittelmaschen der Shräge?

26.02.2024 - 14:42

DROPS Design answered:

Liebe Ulla, verstehe ich es richtig, dass Sie die Raglanlinien mit 2 Maschen statt mit dem Zopf stricken möchten? In diesem Fall schauen Sie am besten nach einem ähnlichen Raglanpulli, es gibt bei uns eine große Auswahl davon, auch in Garngruppe C. Da die Raglanlinien bei diesem Pulli mit dem Zopf etwas komplexer ist, lässt sich die Maschenzahl nicht gut auf 2 Maschen umrechnen, ohne dass sich möglicherweise auch die Form des Pullis verändert. Viel Spaß beim Stöbern!

27.02.2024 - 08:39

country flag Mitzi Russell wrote:

I have completed the yoke, cut the yarn and have 180 sts. and ready to start the body. The pattern says to start in middle of cast on sts.under one sleeve. However after completing the yoke, I am at beg. of round, which is mid back. Not sure how to get to the cast on sts. as I still have half of mid back on my needle. Do I put those sts. on a thread. Thank you for your response.

21.02.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Russel, work the dividing round to the new stitches cast on mid under sleeve and add a marker in the middle of them, your rounds will now start from here (not from mid back anymore). Happy knitting!

21.02.2023 - 18:17

country flag Cardona Patricia wrote:

Bjr. Je suis entrain de tricoter le dos/devant mais je ne comprends pas pourquoi il faut augmenter quand l ouvrage mesure 24cm! à la fin du tricot! D autant plus que sur le diagramme le pull est droit et non évasé. Merci pour votre réponse. PC

14.01.2023 - 15:11

country flag Cardona Patricia wrote:

Bjr. Je suis entrain de tricoter le dos/devant mais je ne comprends pas pourquoi il faut augmenter quand l ouvrage mesure 24cm! à la fin du tricot! D autant plus que sur le diagramme le pull est droit et non évasé. Merci pour votre réponse. PC

14.01.2023 - 15:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cardona, on doit augmenter car juste après, on va tricoter en côtes avec les aiguilles 4, et il faut plus de mailles pour tricoter des côtes avec les aiguilles 4 que pour tricoter du jersey avec les aiguilles 5, on va donc augmenter pour conserver la bonne largeur (car on ne veut pas non plus ici resserrer le bas du pull). Bon tricot!

16.01.2023 - 08:37

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, je suis entrain de faire ce modèle en XXL. Je viens de mettre les mailles en attente pour les manches. Est-ce obligatoire de couper le fil? Pourquoi? Ne peut-on pas continuer le corps du pull tout en continuant le reste de vos explications ? J'ai du mal à comprendre. Faut-il glisser les mailles de l'aiguille gauche sur celle de droite jusqu'au point de redémarrage DOS & DEVANT ? merci d'avance pour vos réponses et vos explications.

07.12.2022 - 10:50

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, la styliste a fait le choix de couper le fil à la fin du tour (milieu dos) pour reprendre au milieu sous une des manches. Il vous suffit ensuite de glisser la moitié des mailles du dos (la 1ère ou la 2ème, au choix) sur l'aiguille droite, sans tricoter, et de continuer en rond, à partir du milieu sous l'une des manches en tricotant soit les mailles du dos, soit celles du devant, en fonction de la manche choisie. Bon tricot!

07.12.2022 - 16:28

country flag Sara Grinberg Carida wrote:

Como dividir para fazer topdow

16.05.2022 - 22:32

country flag Sandra Langer wrote:

Hallo, wenn ich für die Größe in M 272 Maschen gestrickt shabe, dann keine Umschläge mehr vor dem Muster machen und weiter stricken bis 23cm zusammen sind? Vielen Dank.

23.04.2022 - 18:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Langer, ja genau, sollte die Arbeit kürzer als 23 cm ab der Markierung sein, dann stricken Sie glatt rechts und Zöpfe wie zuvor aber mit keine Zunahmen mehr beidseitig von den Diagrammen. Viel Spaß beim stricken!

25.04.2022 - 08:49

country flag Sandra Langer wrote:

Hallo, doppelte Halsblende, was heißt das? Wird nicht nach 9cm die Blende zur Hälfte umgeknickt und zusammen gestrickt? Davon steht dort nichts. Danke vielmals im voraus für die Antwort.

21.04.2022 - 19:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Langer, die Halsblende wird am Ende zur Hälfte umgeschlagen und festgenäht (siehe unter FERTIGSTELLEN - dieses Video zeigt, wie man so eine Halsblende festnäht. Viel Spaß beim stricken!

22.04.2022 - 07:39

country flag Christine wrote:

So after I have 96 sts on my needle i Work 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.1a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.2a, 1 yarn over, 16 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.1a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.2a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch. And repeat that for 18 more times? Also what does 2nd round mean?in increase 1 stitch on each side of A.1a/A.2a every 2nd round a total of 19 time

21.03.2022 - 16:37

DROPS Design answered:

Dear Christine, your first round is correct, on next round, workd: knit 9 , work row 1 in A.1a (= P1, K8, P1), knit 10, work row 1 in A.2a (= P1, K8, P1), knit 18, work row 1 in A.1a, knit 10, work row 1 in A.2a, knit 9. On next round increase with a yarn over before and after each A.1a/A.2a and work round 3 in diagram. Continue like this increasing 8 sts on every other round. Can this help?

22.03.2022 - 09:44

country flag Christine wrote:

Ncrease 1 stitch on each side of A.1a/A.2a every 2nd round a total of 19-23-21-25-26-31 times = 240-272-272-304-328-368 stitches. Repeat A.1a and A.2a in height. Would you explain this part?

21.03.2022 - 02:02

DROPS Design answered:

Dear Christine, on first row in A.1 and A.2 you will increase 2 sts in each A.1/A.2 (to keep the correct width); for the raglan you increase on either side of the diagrams but after whole diagram are done in height, repeat only the -a part = 10 rows ( = cross the stitches every 10th row). Can this help? Happy knitting!

21.03.2022 - 09:09