DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Days to Remember Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stuttum puffermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-40
DROPS Design: Mynstur ml-077
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 g litur 15, beige

DROPS TALA NR 521: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 13, 20, 28 og 36 cm
M: 6, 14, 22, 30 og 38 cm
L: 6, 14, 22, 31 og 40 cm
XL: 6, 13, 20, 27, 34 og 41 cm
XXL: 6, 13, 20, 27, 35 og 43 cm
XXXL: 6, 13, 21, 29, 37 og 45 cm

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-78-84-90-99-111 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúna slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Frá röngu er prjónað þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúin brugðið og 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-10-10-10-11-13 lykkjur jafnt yfir = 62-68-74-80-88-98 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 66-72-78-84-92-102 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið á stykki. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 24-26-28-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-43-46-49-55-61 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúin slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-4-6-7 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 36-39-42-45-49-54 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í lok næstu umferðar frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 38-41-44-47-51-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 28-29-30-31-32-33 lykkjur.
Prjónið sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm, setjið síðustu 13-14-15-15-16-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu (þ.e.a.s. ekki er prjónað). Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig:
Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju 3 sinnum = 10-10-10-11-11-11 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 40-43-46-49-55-61 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkja snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-4-6-7 lykkjur jafnt yfir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 36-39-42-45-49-54 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 38-41-44-47-51-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjurnar fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 28-29-30-31-32-33 lykkjur.
Prjónið sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm, setjið síðustu 13-14-15-15-16-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. ekki er prjónað). Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju 3 sinnum = 10-10-10-11-11-11 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm.

ERMI:
Fitjið upp 47-50-53-56-62-65 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 30-30-30-34-35-39 lykkjur jafnt yfir = 77-80-83-90-97-104 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stykkið mælist 20-20-20-18-16-14 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 69-72-75-82-89-96 lykkjur.
Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-5-7-9 sinnum = 45-48-51-54-57-60 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14 lykkjur prjónaðar 2 og 2 saman, næstu 15-18-21-24-27-30 lykkjur 3 og 3 saman og síðustu 16 lykkjur 2 og 2 saman = 20-21-22-23-24-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af frá réttu. Ermin mælist ca 31-31-31-32-32-32 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.
Saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður að stroffi á bakstykki/framstykki (= 6 cm klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við miðju að framan og frá réttu og prjónið upp ca 86 til 95 lykkjur (deilanlegt með 3 + 2) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Frá réttu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af þegar stroffið mælist 4 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.03.2022
ERMAR:...Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 30-30-30-34-35-39 lykkjur jafnt yfir = 77-80-83-90-97-104 lykkjur...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Nini wrote:

Hello, what size do model wearing?

17.02.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Dear Nini, the model is wearing an M size. Happy knitting!

19.02.2023 - 19:42

country flag Denise wrote:

När arbetet mäter 24-25-26-27-28-29 cm, maskas de första 4 maskorna av till ärmhål i början av nästa varv från avigsidan. Sedan maskas det av till ärmhål i början av varje varv från avigsidan så här: Maska av 3 maskor 1 gång, 2 maskor 1-2-3-3-4-6 gånger, och 1 maska 1-1-1-3-4-4 gånger = 28-29-30-31-32-33 maskor. Jag förstår inte hur jag ska maska av? Är det 3 maskor först, sedan 2 på andra varvet, 1 på tredje varvet? Vad står alla siffror för?

15.02.2023 - 10:50

DROPS Design answered:

Hej Denise. Du maskar av till ärmhål i början av varje varv från avigsidan först 3 maskor 1 gång, sedan 2 maskor det antal gånger för den storlek du stickar (de 6 talen efter motsvarar de olika storlekarna, dvs 1 gång i storlek S, 2 gånger i storlek M osv) och sedan 1 maska det antal gånger för den storlek du stickar. Mvh DROPS Design

22.02.2023 - 11:57

country flag Jennie wrote:

I mönstret för höger och vänster framstycke vore det toppen om det i mönstret står att man inte ska sticka framkantsmaskor i början på varje varv. Kanske man kan skriv in hur styckena ska stickas både från rät och avigsidan, så som det står i mönstret för bakstycket. Lite lurigt för oss nybörjare som följer mönstret exakt. Då är detaljerna viktiga 😊

06.01.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Hej Jennie, det tager vi til os. God fornøjelse i strikkeverdenen :)

10.01.2023 - 11:52

country flag Sara wrote:

Salve, dopo il bordo inferiore a coste ritorte e le diminuzioni è indicato di continuare a lavorare a diritto e 1 maglia di vivagno al lato, ma fino a quel punto le maglie vivagno non erano 2?

13.11.2022 - 21:06

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, dall'inizio del bordo la maglia di vivagno è 1. Buon lavoro!

15.11.2022 - 21:06

country flag Ale wrote:

Buongiorno, non mi è chiaro questo passaggio: "Attaccare le maniche, all’interno della maglia di vivagno. Cucire le maniche e i margini laterali, all’interno della maglia di vivagno e fino alle coste, lasciando uno spacco di 6 cm" Lo spacco di 6 cm si riferisce alla manica? Sul vostro sito c'è un video sulla cucitura della manica per creare l'effetto a sbuffo? Grazie

12.04.2022 - 09:07

DROPS Design answered:

Buonasera Ale, gli spacchi sono laterali. Buon lavoro!

01.05.2022 - 23:38

country flag Conni wrote:

Desert sand

14.01.2022 - 16:56