DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Harvest Wreath

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-45
DROPS Design: Mynstur wi-027
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-450-450-500-550-600 g litur 04, hveiti

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokk C)
400-450-450-500-550-600 g litur 02, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 1,7.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca hverja og aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 56-60-62-64-68-70 lykkjur á hringprjóna 7 með DROPS Wish eða DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-36-36-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-92-96-100-104-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat).

BERUSTYKKI:
Prjónið nú stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Haldið svona áfram með stroff í 5-5-5-6-6-6 cm..
Byrjið við umferð með ör og prjónið A.1 (= 22-23-24-25-26-29 mynstureiningar með 4 lykkjum) umferðina hringinn.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.
Skiptið yfir á hringprjón 9.
Setjið eitt prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki, prjónið þannig:

Stærð S og XXL:
Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til 4-4 lykkjur eru eftir í umferð (= 14-20 mynstureiningar með 6-5 lykkjum), prjónið fyrstu 4-4 lykkjur í A.2.

Stærð M, L, XL og XXXL:
Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 2-0-0-1 lykkjur í umferð (= 15-16-20-23 mynstureiningar með 6-6-5-5 lykkjum), prjónið 2-0-0-1 lykkjur sléttprjón.

Allar stærðir:
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 30-30-32-40-42-46 lykkjur og það eru 118-122-128-140-146-162 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig:

Stærð S, M, L og XXXL:
Prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 1-3-2-0-2 lykkjur í umferð (= 13-17-18-20-20 mynstureiningar með 9-7-7-7-8 lykkjum), prjónið 1-3-2-0-2 lykkju sléttprjón.

Stærð XXL:
Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð (= 20 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 6 lykkjur í A.3.

Allar stærðir:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hafa verið auknar út 26-34-36-40-42-40 lykkjur og það eru 144-156-164-180-188-202 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist= alls 25-27-29-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 22-24-25-27-29-31 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 44-48-50-54-58-63 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 22-24-25-27-29-31 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.

FRAM- OG BAKSYKKI:
= 100-108-116-128-136-146 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-48-52-54 lykkjur jafnt yfir = 140-152-164-176-188-200 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið nú stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 28-30-32-36-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-40-46-46-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-8-10-10-10 lykkjur (= 3-3-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi (á einungis við um stærð L, XL, XXL og XXXL – lykkjum er ekki fækkað í stærð S og M). Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið eftir stærðum þannig:

Stærð S og M:
Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 14-12 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 15 cm að loka máli (þ.e.a.s. 7 cm gatamynstur + 8 cm stroff). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 35-35 lykkjur, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í S og fækkið um 1 lykkju í M.

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-1-1-1 cm millibili alls 2-2-2-3 sinnum = 36-42-42-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-9-8-8 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 15 cm að loka máli (þ.e.a.s. 7 cm gatamynstur + 8 cm stroff). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-0-0-0 lykkju = 35-42-42-42 lykkjur.

Allar stærðir:
Prjónið nú mynstur A.4 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 21-19-17-16-15-15 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-52-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 29-27-25-24-23-23 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2022
BERUSTYKKI: ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 26-34-36-40-42-40 lykkjur og það eru 144-156-164-180-188-202 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist = alls 25-27-29-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.03.2022
ERMI:..Allar stærðir:
Prjónið nú mynstur A.4 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 21-19-17-16-15-15 cm frá skiptingu.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.03.2022
ERMI:..Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-52-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur brugðið saman

symbols = byrjið í þessari umferð

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Deberah wrote:

When you get to the A.3 diagram, there isn't one for size XXL (and there are two for XXXL). Is it possible that the A.3 diagram that starts with 7 sts is supposed to be labeled "M - L - XL - XXL"? (And also that that section should be labeled "Size S, M, L, XL and XXL" instead of "Size S, M, L, XL and XXXL"?) Thank you!

25.03.2023 - 04:58

DROPS Design answered:

Dear Deberah, yes, there is a typo in the A.3 charts, it should be the second A.3 chart (alongside M, L, XL and XXL). However, the section header is correct, since you can see how many stitches each repeat for each size has: 9-7-7-7-8 stitches (9 for size S chart, 7 for sizes M, L and XL and 8 for size XXXL). The next section, the one named size XXL, has repeats of 7 stitches, which would correspond to the middle chart. Therefore, only the charts are incorrect. We'll correct it as soon as possible. Thank you. Happy knitting!

26.03.2023 - 18:54

country flag Mary wrote:

Hi! I am wokring on the sleeve, just increased the round by 9 stitches. The instructions now say to shift to circular needles 7 mm and start working rib. However, won't be difficult t o start working rib since I'll have 9 increased stitches from the previous round? Wouldn't be better to add another round to work the increased stitches to simplify the rib?

31.01.2023 - 11:50

DROPS Design answered:

Dear Mary, just work the increases made on last round with larger needles into the rib - if you made yarn overs to increase, work the yarn over twisted either K or P to fit the rib. Happy knitting!

31.01.2023 - 17:29

country flag Mary wrote:

Hi! Sorry, regarding the sleeves, there is something I am not clear about: I have to start with short circular needle size 9 and then (looking at the corrections) shift to needle size 7 only before starting working rib (knit 2/purl 2) in the round for 8 cm?

29.01.2023 - 21:05

DROPS Design answered:

Dear Mary, if you are checking the online version then you don't need to look at the corrections; they have already been applied to the pattern posted online. You only need to change to the 7mm needles after working A.4, just when you start working the rib. Happy knitting!

29.01.2023 - 22:30

country flag Rosaria De Bonis wrote:

Vorrei avere delle spiegazioni iniziando dalla base della maglia maniche e collo. Grazie

26.01.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Buonasera Rosaria, questo modello è lavorato dall'alto in basso; sul nostro sito può trovare tantissimi altri modelli con lavorazione bottom-up. Buon lavoro!

26.01.2023 - 20:59

country flag Maria wrote:

Continuo a non capire: devo iniziare da dove c'è la freccia e non si tratta di coste. Le coste vengono sopo a scendere ma i diagrammi non dovrebbero essere letti dal basso verso l'alto?

23.01.2023 - 22:01

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, si, deve iniziare all'altezza della freccia e proseguire verso l'alto. Buon lavoro!

25.01.2023 - 22:13

country flag Maria wrote:

Ho un po' di confusione con il diagramma A1. Il diagramma è composta da 6 giri, contando dal basso del diagramma. Devo partire da quello con la freccia- cioè in pratica parto dal terzo giro. Ma poi devo procedere andando verso l'alto? E quindi fare 4-5-6? Se sì, quando faccio i primi due giri? Dopo aver terminato 4-5-6 passo a fare 1-2? Grazie mille in anticipo!

22.01.2023 - 23:08

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, deve lavorare A.1 fino alla fine e poi proseguire come indicato nello sprone. I primi giri di A.1 sono le coste. Buon lavoro!

23.01.2023 - 21:56

country flag Maria wrote:

Sto facendo la S e quindi, prima dello sprone, devo lavorare il motivo A1. Mi potete confermare che, partendo dalla freccia, va letto così: Subito un gettato, due maglie insieme a rovescio e un dritto? E capisco bene che devo fare solo un giro così?

21.01.2023 - 18:31

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, A.1 inizia all'altezza della freccia e deve lavorare 1 gettato, 1 maglia diritto, due maglie insieme a rovescio e un dritto? Poi deve proseguire anche con gli altri ferri di A.1. Buon lavoro!

21.01.2023 - 22:14

country flag Davina wrote:

Hi there, I'm finding that the hem at the bottom of the body is flaring out quite a bit. It's there something I can do to make sure this doesn't happen? Perhaps I am doing something incorrectly. Thank you

31.10.2022 - 23:35

DROPS Design answered:

Dear Davina, body part should be straight (without decreasing nor increasing), you will increase before working rib but just because you need more stitches with smaller needle size for rib than for stocking stitch with larger needles. Happy knitting!

01.11.2022 - 10:23

country flag Wilma Broos wrote:

Ben aan het breien gegaan van deze trui maar als je het patroon volgt, kom je toch een fout tegen. De hals is 1 recht en 1 averecht, dan moet je 1 recht en 2 averecht gaan breien, dan merk je dat je verder het patroon ga volgen dat die aangegeven 1 recht en 2 averecht niet goed zijn om het patroon te maken dat je naar elkaar toe geknepen afgeronde onderkanten krijgt, daar heb je 2 rechte steken voor nodig, om te krijgen wat het patroon vraagt, wil u er even naar kijken? Dank u wel.

12.06.2022 - 11:35

country flag Béatrice wrote:

Bonjour , L empiècement tricoté jusqu'à 5 cm (taille s) est beaucoup trop petit. Sur la photo, on voit que l arrondi est beaucoup plus long que le col de 4cm? Ne faut il pas tricoté 10 cm?

08.04.2022 - 23:50

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, lorsque vous avez tricoté les 5 premiers cm pour l'empiècement, vous devez tricoter le diagramme a.1 puis continuer avec l'aiguille circulaire 9 et tricoter A.2, puis continuer jusqu'à 9 cm et tricoter A.4, et continuer ensuite jusqu'à 25 cm de hauteur totale depuis le rang de montage et alors diviser pour les manches. Bon tricot!

19.04.2022 - 14:30