DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Parade Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, blómum / þjóðlegu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-7
DROPS Design: Mynstur sk-167
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 01, hvítur
50-50-50-50-50-50 g litur 07, ljós sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 08, fjólublá þoka
50-50-50-50-50-50 g litur 14, einhyrningur
50-50-50-50-50-50 g litur 17, karrí

DROPS TALA NR 521: 7-7-8-8-8-8 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 115 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 2,4.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 112-115-121-124-133-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum fjólublá þoka í DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn hvítur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 33-42-36-45-48-57 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 145-157-157-169-181-193 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan mynstur (með byrjun frá réttu) þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið nú út jafnt yfir í mynstri við hverja ör þannig (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan):
Ör 1: aukið út um 36-36-48-36-48-48 lykkjur = 181-193-205-205-229-241 lykkjur.
A.1 er prjónað 14-15-16-16-18-19 sinnum á breiddina.
Ör 2: aukið út um 36-36-36-36-48-48 lykkjur = 217-229-241-241-277-289 lykkjur.
A.1 er prjónað 17-18-19-19-22-23 sinnum á breiddina.
Ör 3: aukið út um 36-36-36-36-36-48 lykkjur = 253-265-277-277-313-337 lykkjur.
A.1 er prjónað 20-21-22-22-25-27 sinnum á breiddina.
Ör 4: aukið út um 24-36-36-36-36-36 lykkjur = 277-301-313-313-349-373 lykkjur.
A.1 er prjónað 22-24-25-25-28-30 sinnum á breiddina.
Ör 5: aukið út um 24-24-36-36-36-36 lykkjur = 301-325-349-349-385-409 lykkjur.
A.1 er prjónað 24-26-28-28-31-33 sinnum á breiddina.
Ör 6: aukið út um 0-12-36-36-24-24 lykkjur = 301-337-385-385-409-433 lykkjur.
A.1 er prjónað 24-27-31-31-33-35 sinnum á breiddina.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 23 cm frá prjónamerki.
Prjónið nú mynstur JAFNFRAMT skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram!
MYNSTUR:
Prjónið A.2 þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 alls 24-27-31-31-33-35 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu lykkju í A.2 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Aukið út jafnt yfir í síðustu útauknings umferð þannig:
Ör 7: Aukið út um 0-0-0-0-12-12 lykkjur = 301-337-385-385-421-445 lykkjur.
A.2 er prjónað 24-27-31-31-34-36 sinnum á breiddina.
SKIPTING:
Þegar stykkið mælist 23-23-24-26-28-30 cm frá kanti í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 42-48-54-54-60-66 lykkjur, setjið næstu 60-66-78-78-84-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-96-108-108-120-132 lykkjur, setjið næstu 60-66-78-78-84-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-12-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið 43-49-55-55-61-67 lykkjur og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 193-217-241-253-277-301 lykkjur. Prjónið A.2 með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-16-16-16 umferðir af A.2 einu sinni til viðbótar.
Prjónið nú stykkið með litnum hvítur og sléttprjóni með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 20-22-23-23-23-23 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 199-223-247-265-289-313 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-66-78-78-84-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-90-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi.
Prjónið nú mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
MYNSTUR:
Prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-16-16-16 umferðir með A.2 einu sinni til viðbótar.
Prjónið nú ermina með litnum hvítur og sléttprjóni.
ÚRTAKA:
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 8-10-15-17-19-18 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 34-34-34-32-30-29 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-3-1-2-0 lykkjur jafnt yfir = 54-54-57-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.04.2022
KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-115-121-124-133-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum fjólublá þoka...

Mynstur

symbols = hvítur
symbols = ljós sægrænn
symbols = fjólublá þoka
symbols = einhyrningur
symbols = karrí
symbols = útauknings umferð – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Robyn wrote:

I am making spring parade 230-7 and have a question re stitch count/chart work. The pattern counts are not divisible by 12 (chart repeats) unless I reduce number by one stitch starting at yoke increase and including throughout the rest of the pattern. Is this an error?

11.04.2023 - 15:11

DROPS Design answered:

Dear Robyn, when working diagrams from RS always finish with the first stitch in diagram before front band stitches (from WS work the first stitch in diagram then repeat diagrams reading now from the left towards the right) so that pattern is symmetrical. Happy knitting!

11.04.2023 - 16:55

country flag Pavlína Skopalová wrote:

Dobrý den. Pletla jsem tento svetr s přízí i jehlicemi přesně podle návodu, utahovala jsem přiměřeně, ale z 49 cm, které měl mít podle návodu, má pouhých 27 cm na šířku. Zmenšil se mi tedy asi o polovinu. Při použití silnějších jehlic se mi tvořila velká oka, pomalu až díry. Chtěla bych se zeptat, v čem jsem udělala chybu a jak zabránit, aby se mi tento problém opakoval. Děkuji za odpověď.

01.06.2022 - 23:23

country flag Joan Smith wrote:

Figured it out. The chart is correct but the casting on should be in violet not unicorn

31.03.2022 - 15:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, thanks for noticing, pattern has been now updated. Happy knitting!

04.04.2022 - 11:30

country flag Joan Smith wrote:

In reading the chart I think that there is an error in that the violet should be the first colour instead of unicorn which is how it appears in the picture of the cardigan. Am I correct? Thanks

29.03.2022 - 22:48

country flag Helena wrote:

Goedenavond, geeft het telpatroon de goede en de verkeerde kant weer of alleen de goede kant? Ik ben met het 2e motief (A1) bezig, de helft van het telpatroon A1 en mijn werk meet nu al 19 cm.. Ik heb de verkeerde kant niet meegeteld. Ik heb het idee dat ik fout zit. Klopt het? Alvast bedankt voor jullie hulp!!

10.03.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Dag Helena,

Het telpatroon geeft alle naalden in het patroon weer, dus zowel de goede als de verkeerde kant.

14.03.2022 - 13:11

country flag Elena wrote:

Hi, thx for the pattern. in the section DIVIDE is a small error: 6 band stitches shall be included before 42-... and 43-... . they are missed in english but correctly mentioned in the norwegian version. ;)

04.03.2022 - 12:10

DROPS Design answered:

Dear Elena, thanks for your feedback, pattern has been now edited. Happy knitting!

04.03.2022 - 16:21

country flag Sonja wrote:

Tulip Gardens

05.02.2022 - 06:46

country flag Linda wrote:

Tulip wins

18.01.2022 - 14:38

country flag Lovely Flowers wrote:

Eine Herausforderung, die ich gerne annehmen werde. Oder ein anderes flower Modell.

16.01.2022 - 19:53

country flag Trine-lise Tande wrote:

Lun sommer

13.01.2022 - 22:33