Little Peanut |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni. Stærð 1 – 18 mánaða.
DROPS Baby 42-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KLUKKUPRJÓN : UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman * , endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2. ÚTAUKNING-1: Prjónið 3 lykkjur í lykkju og uppslátt með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 3 lykkjur (2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (frá röngu) eru útauknar lykkjur prjónaðar í klukkuprjónsmynstri, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án uppsláttar. ÚTAUKNING-2: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (frá röngu) eru útauknar lykkjur prjónaðar í klukkuprjónsmynstri, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án uppsláttar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og aukið er út í klukkuprjónslykkjur í hvorri hlið og í miðju á stykki. SMEKKUR: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. UMFERÐ 1 (frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Setjið 3 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja): 1. prjónamerki í 2. lykkju í umferð, 2. prjónamerki í 4. lykkju í umferð og 3. prjónamerki í 6. lykkju í umferð. UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-1, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 4 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 15 lykkjur í umferð. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færð til, 1. prjónamerki er sett í fyrstu klukkuprjónslykkju í umferð (á eftir kantlykkju), 2. prjónamerki er sett í miðjulykkju í umferð (miðjulykkjan af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju) og 3. prjónamerkið er sett í síðustu klukkuprjónslykkju í umferð (á undan kantlykkju). Í næstu umferð (frá röngu) er prjónað KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, en lykkjur í útaukningu eru prjónaðar án þess að prjóna þær saman með uppslætti. Haldið áfram í klukkuprjóni og með útaukningu, aukið er út í 4. hverri umferð í hliðum (prjónamerki 1 og 3) og í 8. hverri umferð í miðju (prjónamerki 2). Færið prjónamerkið á eftir hverja útaukningu, þannig að alltaf er aukið út í miðjulykkju og í lykkjur að kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar aukið hefur veri út 4-5 sinnum í miðjulykkju og 8-10 sinnum í lykkju innan við kantlykkju í hvorri hlið eru 55-67 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 6-8 cm. Nú heldur útaukning áfram í hvorri hlið og í miðjulykkju eins og áður, jafnframt er prjónað mynstur – frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, klukkuprjónslykkja eins og áður yfir næstu 2 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 24-30 lykkjur, prjónið miðjulykkju eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 24-30 lykkjur, klukkuprjón eins og áður yfir næstu 2 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Stykkið mælist ca 10-12 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja. Festið tölu í annan endann á smekknum (tölunni er hneppt á milli kantlykkju og fyrstu lykkju í klukkuprjóni í hinum endanum). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Elin wrote:
Hej, Jag får tyvärr inte mönstret att gå ihop. Har 10 maskor (med omslag) efter första varvet och 17 maskor (med omslag) efter andra varvet. Det stämmer väl inte?
11.07.2023 - 09:36