DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Scent of Sage

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-62
DROPS Design: Mynstur wi-038
Garnflokkur E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-750-850 g litur 18, salvíu grænn

Eða notið:
DROPS Air frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-750-800 g litur 30, salvíugrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð (hægri öxl) þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
Fækkið lykkjum í lok umferðar (vinstri öxl) þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt.

ÚTAUKNING (á við ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 74-74-82-90-98-98 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 2-2-3-4-5-5 sinnum, A.1 er prjónað 3 sinnum, prjónið 4 fyrstu lykkjur í A.1, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 2-2-3-4-5-5 sinnum, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram stroffprjón þar til stykkið mælist 10 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: sléttprjón yfir fyrstu 11-11-15-19-23-23 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-1-2-4-4-1 lykkjur jafnt yfir, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-15-19-23-23 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 3-1-2-4-4-1 lykkjur jafnt yfir = 68-72-78-82-90-96 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 64-68-74-78-86-92 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm. Í næstu umferð eru miðju 20-22-22-24-26-26 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er lykkjum fækkað við háls, fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu þannig: Fækkið um 2 lykkjur 4 sinnum – sjá ÚRTAKA = 14-15-18-19-22-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón yfir kaðlalykkjur þegar ekki er lengur pláss fyrir heilan kaðal á breiddina.
Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI.
Fitjið upp 56-60-68-72-80-88 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjón, 2 lykkjur slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroffprjón svona í 10 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-6-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 50-54-60-64-72-78 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 46-50-56-60-68-74 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 16-18-18-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 14-15-18-19-22-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9½-9½-9-9-8½-8 cm millibili alls 5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 52-52-50-49-46-45 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, niður að stroffi (10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og á annarri öxlinni og prjónið upp ca 60 til 76 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði), á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air.
Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 16 cm.
Fellið af. Brjótið hálsmálið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur brugðið, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-62

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Kitt Palbjørn-Pedersen wrote:

Hvad menes der, når der under ærme står: Tag ud således på hver 9 1/2, 9 1/2, 9, 9, 8 1/2, 8 cm totalt 5 gange. Hvor måles de cm?

25.03.2024 - 15:34

DROPS Design answered:

Hej Kitt, hvis du strikker den mindste størrelse tager du ud når arbejdet måler 11- 20,5- 30-,39,5-49cm :)

03.04.2024 - 15:43

country flag Elva Hayden wrote:

Hello, how do I see in the sleeves? 2 stitches are cast off for the armholes in the front and back. Are the sleeves supposed to be somehow set into this ´ridgè or are they just sewn straight to front and back? If so, what should I do with the remaining ´ridge? Thankyou for your time.

20.03.2024 - 17:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hayden, not sure what you mean here with "ridge" - armholes are 2 sts on each side, the top rows on sleeve will be sewn along the bottom of armhole, as shown in this video, note that the bottom of armhole is here smaller. Happy knitting!

21.03.2024 - 08:41

country flag Madeleine Wassink wrote:

Ook mijn armsgaten zijn veel wijder dan de mouwen. Hoe los ik dit op? Ook ik weet hoe je 'n mouw in moet zetten. Vr groet M Wassink

03.11.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Dag Madeleine,

De mouw wordt, bij de oksel, als het ware een stukje in de panden geschoven. Dus het bovenste stukje van de onderarmnaad wordt dwars aan het voorpand/achterpand genaaid. Dit kun je ook zien op de maattekening. Wellicht dat dit je probleem met de krappe mouwen oplost.

05.11.2023 - 19:02

country flag Beauvillain Anita wrote:

Bonjour j ai tricoté le modele scent of sage modele wi 038 taille M pouvez vous me dire rapidement svp pour l encolure ds taille M faut il relever 60 mailles y compris les mailles du devant en attente sur un fil ou 64 mailles? avant de commencer les cotes 2/2 faut il faire le premier tour a l endroit ou a l envers? ou commencer directement les cotes? merci

21.10.2023 - 18:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beauvillain, le nombre de mailles n'est pas super important, il faut juste que le nombre soit divisible par 4 pour les côtes, et qu'il y ait suffisamment de mailles, ni trop, ni trop peu, si vous avez 64 mailles, ce peut être parfait. Après avoir relevé les mailles tout autour de l'encolure, tricotez directement en côtes. Bon tricot!

23.10.2023 - 09:45

country flag Caroline wrote:

Why is the back smaller than the front? 74 vs. 60 loops?

11.10.2023 - 17:52

DROPS Design answered:

Dear Caroline, you need more stitches for front piece because of the cables who tighten piece together. As there are no cables on back piece, you need then less stitches than on front piece. That way, both front and back piece will get the same width. Happy knitting!

12.10.2023 - 09:18

country flag Beauvillain Anita wrote:

Bonjour modele scent of sage, taille M pour le devant j ai fait des cotes 2:/2 car je n ai pas compris votre methode grille A1 dans les cotes; donc j'ai commençé les cotes ds le jersey en suivant les grilles A2 et A3; quan d les grilles sont tricotées en hauteur sur 32 rangs, faut il continuer en reprenant les grilles an partant du bas? merci

10.10.2023 - 21:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beauvilllain, en taille M, vous devez tricoter les côtes du devant ainsi: 1 m lis point mousse, puis 2 m endroit, puis tricotez (2 m env, 2 m end) x 2, répétez ensuite 3 fois les 16 mailles de A.1, tricotez ensuite les 4 premières mailles de A.1, tricotez ensuite 2 m end, puis 2 fois (2 m end, 2 m env), terminez par 1 m lis au pont mousse. Ainsi, vous obtiendrez la bonne largeur et les mailles de A.2 et de A.3 vont s'aligner comme il faut au-dessus des mailles tricotées auparavant en A.1. Bon tricot!

11.10.2023 - 08:31

country flag Ute wrote:

Hallo, wenn 11 Maschen 10 cm sind, wie können dann 68 Maschen 45 cm sein? Welche Angabe stimmt? Liebe Grüße Ute

08.10.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Liebe Ute, die 11 Maschen sind Glattrechts gestrickt, beim Rückenteil haben Sie nach dem Bündchen 50 Maschen = ca 45 cm. Beim Bündchen sowie beim Zöpfe braucht man mehr Maschen für die gleiche Breite als für Glattrechts. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2023 - 09:04

country flag Beauvillain Anita wrote:

Bonjour pouvez vous me dire si la grille 1,2 et 3se lisent de droite a gauche? est ce qu il faut commencer la grille 1 dans les cotes? pourquoi? donc a certains endroits dans les cotes, ca ne sera pas des cotes 2/2? merci

01.10.2023 - 08:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beauvillain, les diagrammes se lisent tous en commençant en bas à droite et vers la gauche sur l'endroit, et de gauche à droite sur l'envers. Effectivement, les côtes du bas du devant ne seront pas en 2/2 tout du long, mais avec les côtes comme indiquées par le diagramme A.1 au niveau où seront ensuite les torsades. Bon tricot!

02.10.2023 - 10:27

country flag Beauvillain Anita wrote:

Modele scent of sage ref 226-62 taille M pour la manche il faut augmenter la premiere fois a 11cms de jersy ou a 11cm en tout cotes comprises? pour le devant, d'apres vos explications il semble manquer 1 maille? merci de la reponse pourqoi pour le devant ce n est pas les memes cotes qiue le dos, c est a dire cotes deux/deux?

27.09.2023 - 11:01

DROPS Design answered:

Bonjour, Les côtes du devant et du dos commencent de même façon par 1 maille lisière et 2 mailles endroit. Pour les manches, on augment pour la première dois a 11 cm en tout (côtes comprises). Bon tricot!

28.09.2023 - 11:45

country flag Beauvillain Anita wrote:

Le modele s appelle scent of sage WI -038 N0 226-62 pouvez vous repondre a ma question envoyée auparavant? aussi je ne comprends pas du tout les cotes du devant pourqoui pas comme devant 10CM de cotes 2 sur 2? les torsades ne commencent pas ds les cotes? merci de la reponse

26.09.2023 - 08:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beauvillain, le dos se tricote en jersey, sans torsades, alors que pour le devant, on a des torsades, on va donc avoir besoin de davantage de mailles que l'on va tricoter en côtes 2/2 de chaque côté et en suivant les côtes du diagramme A.1 au milieu pour préparer les torsades de A.2. Bon tricot!

26.09.2023 - 11:33