Sydney wrote:
How and where make a mid back in this pattern? Thanks
04.11.2023 - 18:49DROPS Design answered:
Dear Sydney, the mid back is the beginning of the round, when it says start from the mid back it means that the round begins at the center of the back piece. It's not worked separately. If you want to add an elevation in the mid back, you can see the following video for guidance: https://www.garnstudio.com/video.php?id=894&lang=en. Happy knitting!
05.11.2023 - 19:40Roxi wrote:
Hello! Do you know how much Drops wish would i need for this jumper size S? Thank you.
16.10.2023 - 17:46DROPS Design answered:
Hi Roxi, The yarn amounts are under Materials at the top of the page. For size S you need 350 g or 7 balls. Happy knitting!
17.10.2023 - 09:00Sara FIORENTINO wrote:
Per favore i vostri tutorial per maglioni donna sono tutti per ferri circolari?. Come faccio trovare quelli per ferri lineari? Grazie Sara
14.02.2023 - 23:04DROPS Design answered:
Buonasera Sara, ci sono tantissimi modelli gratuiti sul nostro sito lavorati in ferri di andata e ritorno che quindi possono essere lavorati anche sui ferri dritti. Buon lavoro!
15.02.2023 - 20:07Els Vanderborght wrote:
Monteverdetrui.Klopt de beschrijving van de pas,dat je 8 markeerdraden moet toevoegen,ik heb er maar 7? En heb maar 6 steken over op einde naald?
25.01.2023 - 19:20DROPS Design answered:
Dag Els,
Je herhaalt wat tussen de sterretjes staat, dus je slaat eerst 6-7-7-6-8-8 steken over en dan 7-7-8-8-7-8 steken. Dit herhaal je steeds.
25.01.2023 - 21:34Julia wrote:
Welche Garn Alternative zum Kid-Silk würden sie den empfehlen?
14.10.2022 - 15:31DROPS Design answered:
Liebe Julia, benutzen Sie unseren Garnumrechner, um die unterschiedlichen Alternative zu sehen. Gerne kann Ihnen auch Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) helfen, die beste passende Wolle zu empfehlen. Viel Spaß beim stricken!
14.10.2022 - 16:13Dea wrote:
Buonasera, siamo sicuri delle dimunuzioni sul collo? Dalla foto non si notano e soprattutto non si sa che taglia sia. Comunque nella descrizione COLLO DOPPIO manca una frase presente nella spiegazione originale in norvegese.
06.07.2022 - 22:15DROPS Design answered:
Buonasera Dea, le modelle nelle foto solitamente indossano la taglia M. Riguardo la frase mancante, abbiamo inoltrato la sua segnalazione alla casa madre: se il modello verrà corretto troverà la correzione direttamente online. Buon lavoro!
11.07.2022 - 22:14April Joy Helleur wrote:
Hi there, I love your patterns for jumpers but I am not used to using circular needles. Are all your patterns knitted with them. Thanks very much. April.
12.04.2022 - 06:53DROPS Design answered:
Dear April, most of our patterns are worked with circular needles for more comfortable knitting, but you can adapt them to straight needles. Here is a lesson on how to do this: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19 Happy knitting!
12.04.2022 - 17:59Ralf wrote:
Ich habe den Pullover für meine Frau gestrickt. Die Ärmelbündchen habe ich etwas kürzer gehalten und genauso wie das unter Bündchen gearbeitet, dafür die Ärmel etwas länger gestrickt. Passt prima! Danke für die tolle Anleitung!
19.03.2022 - 11:37Jutta Rieper wrote:
Es gibt kein drops kid silk salbeigrün. Ist es ausverkauft oder soll man ein anderes grün nehmen?
05.02.2022 - 18:09DROPS Design answered:
Liebe Frau Rieper, leider ist zur Zeit diese Farbe nicht lieferbar, aber wir erwarten sie ab 10. Woche, dh ab 7. März, aber einige Laden können diese Farbe immer noch im Sortiment haben, schauen Sie mal bei jedem Händler. Viel Spaß beim stricken!
07.02.2022 - 08:49
Monteverde |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Snow og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 226-61 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um berustykki): Aukið er út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. í fyrstu umferð með útaukningu, aukið út um 1 lykkju á eftir hverju og einu af 8 prjónamerkjum, í annarri umferð með útaukningu, aukið út á undan hverju og einu af 8 prjónamerkjum o.s.frv. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru erfir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 52-56-56-60-60-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 17 cm, síðar er stroffið brotið saman tvöfalt þannig að það myndist kantur ca 8 cm. Prjónið 1 umferð stroffprjón jafnframt sem fækkað er um 6-8-6-7-5-6 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-53-55-58 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út jafnt yfir 6-8-10-11-13-14 lykkjur = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í stykkið hér. HÉÐAN MÆLIST STYKKIÐ! Setjið 8-8-8-9-9-9 lykkjur í stykki þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan), * hoppið yfir 6-7-7-6-8-8 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, hoppið yfir 7-7-8-8-7-8 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, nú eru eftir 7-7-8-8-8-8 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 8-8-8-9-9-9 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-13-14-13-14-15 sinnum og í 4. hverri umferð alls 2-1-1-1-1-1 sinnum = 148-168-180-190-203-216 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-0-4-4-7-10 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-194-210-226 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 22-24-26-28-31-34 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 44-48-52-55-61-67 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 22-24-26-27-30-33 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-108-116-126-138-150 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 24-25-26-27-28-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út jafnt yfir 20-20-24-22-26-30 lykkjur = 120-128-140-148-164-180 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-36-40-42-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 9 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi (mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-4-3½-3-3-2½ cm millibili alls 4-5-6-6-7-7 sinnum = 30-32-34-38-38-40 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 31-30-30-29-29-28 cm (nú eru eftir ca 12 cm að loka máli – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 41-41-40-39-39-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Sonja Saunders wrote:
Hej kan jeg strikke sweateren uden Kids silk uden at ændre på opskriften ?
16.09.2022 - 10:49