DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mister Chill

Prjónuð húfa og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og útaukningu fyrir axlarsæti. Stærð 2 til 12 ára.

DROPS Children 41-26
DROPS Design: Mynstur me-084-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/128 - 134/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200 g litur 38, blá þoka

HÚFA:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál:
48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56 cm

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-100-100-100 g litur 38, blá þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/128 - 134/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150-150 g litur 38, blá þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm.

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 100 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 25.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 24. og 25. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 25. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um efst á húfu):
Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar framan og aftan á hálsskjóli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum ef fækkað innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 5 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 5 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 5 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið upp 100-108-112-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTUKNING = 96-102-108-108 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 13-13-14-15 cm, setjið 6 prjónamerki í stykkið með 16-17-18-18 lykkjur á milli prjónamerkja.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-7-7 lykkjur og síðan í hverri umferð alls 6-6-7-7 sinnum = 24 lykkjur eftir í öllum stærðum.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 19-20-21-22 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón frá vinstri öxl (þegar stykkið er mátað) – prjónað er ofan frá og niður.
Fyrst er prjónaður kantur í hálsi í stroffprjóni. Síðan eru lykkjur auknar út fyrir axlarsæti í hvorri hlið, áður en axlalykkjurnar eru felldar af. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 96-104-112-120 lykkjur á stutta hringprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-9-10-11 cm, eða að óskaðri lengd.
Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð – á undan fyrstu lykkju, teljið 38-38-42-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 10-14-14-18 lykkjur (= öxl), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-38-42-42 lykkjur (= framstykki), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 10-14-14-18 lykkjur eftir á öxl á eftir síðasta prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 38-38-42-42 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, haldið áfram með stroff yfir 10-14-14-18 lykkjur á öxl, prjónið sléttprjón yfir 38-38-42-42 lykkjur á framstykki og fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, haldið áfram með stroff yfir 10-14-14-18 lykkjur á öxl = 84-92-100-108 lykkjur.
Síðan er aukið út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón yfir 32-32-36-36 lykkjur á bakstykki og framstykki og stroffprjón yfir 10-14-14-18 axlalykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur tilheyra framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. að 10-14-14-18 axlalykkjurnar haldast stöðugar).
Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10-12-12 sinnum = 116-132-148-156 lykkjur.
Í næstu umferð eru alxalykkjurnar felldar af, þ.e.a.s. prjónað er frá byrjun á umferð þannig (= við 1. prjónamerki): Prjónið 5 lykkjur brugðið, 38-42-50-50 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur brugðið, fellið af næstu 10-14-14-18 axlalykkjur með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, 5 lykkjur brugðið, 38-42-50-50 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur brugðið, fellið af 10-14-14-18 axlalykkjur með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Ekki klippa þráðinn frá.
Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
= 48-52-60-60 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRMT þegar bakstykkið mælist 2-3-3-3 cm frá þar sem axlalykkjur voru felldar af, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3- 3 cm millibili alls 3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 42-46-52-52 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 10-12-13-14 cm frá þar sem axlalykkjur voru felldar af. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. hálsskjólið og prjónið að óskaðri lengd.
Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan, til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman.
Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður þar sem aukið er út um 10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 52-56-64-64 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Hálsskjólið mælist ca 13-15-16-17 cm frá þar sem axlalykkjur voru felldar af.

FRAMSTYKKI:
= 48-52-60-60 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki, þ.e.a.s. framstykki og bakstykki eru alveg eins.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Amis wrote:

Hello, I wanna make a suggestion for improving the translation for the hat. in the sentence with the decreasing, it.s not translated correctly, it.s written "Decrease like this on every other round a total of 6-7-7-7 times, and then on every round 6-6-7-7 times in total = 24 stitches remain on needle in all sizes."which has no sense. I looked for the norvegian version and it.s like this: dec on every 2nd round 6-7-7-7 times, and then on every round... :)

12.03.2023 - 15:28

country flag Margot Becker wrote:

Vielen Dank für die schnelle Rückmeldung, wünsche Ihnen dem ganzen Team eine gute Zeit und bleiben Sie Gesund ❤️

16.12.2022 - 10:56

country flag Margot Becker wrote:

Es geht um die Kindermütze vonDROPS Children 41-26. Nach dem Bündchen kommt die Reihe mit 4 Maschen verteilt abnehmen. Dann 15 cm glatt stricken. Meine Frage wäre mit oder ohne Bündchen. Um baldige Antwort wäre ich Ihnen sehr dankbar. Mit freundlichen Grüßen Becker Margot

15.12.2022 - 16:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Becker, bei der Mütze strickt mann glatt rechts bis die Mütze insgesamt 15 cm von der Anschlagskante misst, dh 12 cm nach dem Bündchen (letzte Größe). Viel Spaß beim stricken!

16.12.2022 - 08:16

country flag Kaija K wrote:

Hei, malli on kiva, ja todella helppo toteuttaa! Tuli oikein mukava myssy ja kauluri :) Kiitos ohjeesta!

13.12.2022 - 08:22

country flag Sandra K wrote:

Hej!! Står det inte fel i beskrivningen när man ska öka på sadelmaskorna? \r\n\r\nI videon så stickar hon FÖRE 1 och 3 markören \r\nOch EFTER på 2 och 4 markören.

06.10.2022 - 13:16

country flag Monika wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort und den Link. \r\nDass Sie das Buch nicht kennen, habe ich nicht erwartet und macht ja auch nichts. Meine Frage ist: \r\nVerhält sich die DROPS MERINO EXTRA FINE so, dass sich eine Mütze mit ca. 40-44 cm Durchmesser auf Erwachsenenkopfgröße = ca. 55/56 cm dehnt? \r\nVielleicht möchten Sie mir noch mal schreiben? Herzlichen Dank!

13.09.2022 - 11:39

country flag Monika wrote:

Hallo, ich hätte eine Frage und würde mich SEHR über Antwort freuen, es geht - wie bei der Mütze hier - um Drops Merino Extra Fine: Ich habe das Buch "Klompelompe", da sind ganz viele Anleitungen mit diesem Garn drin, z.B.: Erwachsenen Mütze, Anschlag 88 M, das ergibt ausgehend von der Maschenprobe (und ausprobiert!) viel zu wenig Kopfumfang, nämlich 40 cm. Bei den div. Kindermützen ist es genauso. Ist das wirklich ok, dehnt es sich 15 cm?? Oder wie viel M anschlagen? VIELEN DANK!

12.09.2022 - 18:25

DROPS Design answered:

Liebe Monika, wir kennen dieses Buch leider nicht aber hier finden Sie einige Korrektur von ihrer Website, vielleicht kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

13.09.2022 - 10:23

country flag Selam wrote:

Hi working on the hat: "On next round decrease 1 stitch after every marker– read DECREASE TIP-1. Decrease like this on every other round a total of 6-7-7-7 times, and then on every round 6-6-7-7 times in total = 24 stitches remain on needle in all sizes." How many St are decreased per round? Thanks.

01.11.2021 - 00:30

DROPS Design answered:

Dear Selam, if you are writing about the hat, you should have put 6 marker in the hat previously, and since the instructions say you should decrease after EACH marker, that means, you should decrease 6 stitches in every round with decreasing. Happy Stitching!

01.11.2021 - 11:41