DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frosted Cranberries Sweater

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 228-27
DROPS Design: Mynstur z-939
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 9024, dökk blush
250-300-350-350-400-450 g litur 9020, ljós perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorum lit = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 20.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 20. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-92-100-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með einum þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í byrjun á öllum brugðnu einingum = 100-115-125-125-130-135 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lok allra brugðna eininga = 120-138-150-150-156-162 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki að framan. Stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-3-2-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 126-144-153-152-160-168 lykkjur. Nú er prjónuð mynstureining A.1 yfir allar lykkjur (= 14-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 9-9-9-8-8-8 lykkjur). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-4-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-260-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 34-39-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-78-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-39-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 148-168-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm í öllum stærðum. Nú eru ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjum til að stroffið sem á að prjóna, dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón með 1 þræði í hvorum lit hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 30-28-28-27-26-24 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Mathilde wrote:

Hej!(: Hvordan giver følgende mening: "Ribben måler 9-9-9-10-10-10 cm fra opslåningskanten.", når man har strikket: 1. "Strik til ribben måler 4 cm" 2. "Når arbejdet måler 3 cm fra mærket, tages der 1 maske ud i alle vrangpartier" 3. " Fortsæt til arbejdet måler 5-5-5-6-6-6 cm fra mærket." Det giver da ikke 9-10 cm fra opslåningskanten, men for M: 4+3+5 = 12 cm? Hvilket mål er det rigtige?

23.02.2024 - 10:29

DROPS Design answered:

Hej Mathilde. 3 cm och 5 cm är målt fra mærket och 9 cm är målt fra opslåningskanten. Mvh DROPS Design

27.02.2024 - 14:31

country flag Nancy wrote:

Hello, was wondering which needles to make the gauge swatch with. the only instructions are 17sts wide and 22rows

09.10.2023 - 03:24

DROPS Design answered:

Hi Nancy, The guage is worked with needle size 5 mm. Happy knitting!

09.10.2023 - 06:38

country flag Anna wrote:

Hallo, der ist wunderschön. Allerdings möchte ich den Kragen anders machen, nicht "so lange nach unren" diese Bündchen, sondern das Bündchenmuster am Hals nur 2cm etwa. Wie kann ich das machen bzw "funktioniert es", wenn ich das Bündchenmuster am Hals nur 2cm stricke und dann einfach rechts? Danke

11.03.2023 - 09:04

DROPS Design answered:

Liebe Anna, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen. Vielleicht kann Ihnen ein anderes Modell (auch von oben nach unten mit Rundpasse und ähnliche Maschenprobe gestrickt) inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 09:15

country flag Jennifer wrote:

Got stuck working on the yoke. I need to go from 153 st to 272 before dividing body and sleeves. I don't know how many to increase each row. In the pattern, it said 17 repetitions of 9 stitches. What does that mean? Does it mean increasing 9 st each row for 17 rows?

04.08.2022 - 01:39

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, you have now to work following the diagram A.1 for your size = size M, diagram starts with 9 sts (on first row you will increase 1 stitch at the beg. of each repeat) repeated a total of 17 times = 9*17= 153 sts - after 1st row you have 10 sts x 17 repeats = 170 sts. When A.1 will be worked, you will have 16 sts in each A.1 x 17 repeats = 272 sts on needle. Read more about diagrams here. Happy knitting!

04.08.2022 - 08:23

country flag Manon M wrote:

Bonjour, A quel moment utilisé les aiguilles en 40 ou 60 cm ? Quand faut-il utiliser les 40 cm et quand faut-il utiliser les 60 cm ? Cordialement

04.07.2022 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Manon M, vous utilisez une aiguille circulaire de la longueur inférieure à celle de votre ouvrage, ainsi, vous commencez le col avec la petite aiguille circulaire et vous continuerez avec la 60 cm lorsque vous n'aurez plus assez de place sur la 40. De même pour les aiguilles doubles pointes, commencez les manches avec l'aiguille circulaire de 40 cm et continuez avec les aiguilles doubles pointes lorsque vous n'avez plus assez de mailles pour la circulaire. Bon tricot!

05.07.2022 - 08:57

country flag Louise Godet wrote:

Merci pour votre réponse. Où vais-je trouver ces explications et un modèle proposant ce type de particularités parmi tous ceux que vous proposez ? Je suis perdue. Merci.

13.06.2022 - 13:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Godet, il vous faut consulter les modèles de tension identique et lire les explications pour vérifier s'il y a une réhausse. Vous trouverez aussi comment faire en vidéo ici. N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin ou à un forum tricot. Bon tricot!

13.06.2022 - 16:33

country flag Louise Godet wrote:

Bonjour, J'aime énormément vos modèles mais suis à la recherche du mouton à 5 pattes. Effectivement, je désire tricoter un modèle top down MAIS avec une encolure comme celle du modèle me-177, c'est-à-dire je souhaite que le devant soit plus creusé car je trouve que les encolures proposées sont trop larges et le devant monte trop. Est-ce possible et comment m'y prendre ? Un IMMENSE MERCI pour vos conseils. Cordialement.

13.06.2022 - 11:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Godet, vous pouvez tricoter une réhausse (= rangs raccourcis) pour l'encolure dos pour ainsi "creuser" la différence d'encolure dos et devant. Vous pouvez vous aider d'un modèle proposant ce type de particularités. Bon tricot!

13.06.2022 - 11:48

country flag GRENIER Annie wrote:

Impossible d'imprimer les modèles et les explications??

26.05.2022 - 16:01

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, en utilisant une imprimante virtuelle, vous pourrez les télécharger au format .pdf.

26.05.2022 - 22:51

country flag Karen Granados wrote:

Hola me pueden explicar la parte del canesu, donde se trabaja con el diagrama A1, no entiendo que quiere decir trabajar el punto 16 para mi talla, con 9 repeticiones Gracias.

18.01.2022 - 17:27

DROPS Design answered:

Hola Karen, para la Talla M, tienes que repetir A.1 (= 9 puntos) 16 veces a lo largo de la vuelta.

23.01.2022 - 19:54

country flag Katherine wrote:

Hi, how can I know the exact measures for each size? is there a charf for reference? I need sizes for United States and Canada, please

30.12.2021 - 15:08

DROPS Design answered:

Hi Katherine, you will find the schematic drawing for each garment below the patterns. It will have all the measurement for each size we have in this pattern. If you follow the pattern and keep the tension/gauge the garment will have the same size as the schematic drawing. Please also see HERE. Happy knitting!

30.12.2021 - 19:01