DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fresh Lime Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 41-11
DROPS Design: Mynstur ai-043-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 12, mosagrænn

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5 stykki í öllum stærðum.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
2 ára: 4, 10, 16, 22 og 28 cm
3/4 ára: 4, 11, 18, 24 og 30 cm
5/6 ára: 4, 12, 20, 27 og 34 cm
7/8 ára: 5, 13, 21, 29 og 37 cm
9/10 ára: 5, 14, 23, 32 og 41 cm
11/12 ára: 5, 15, 24, 33 og 42 cm

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og prjónað er síðan fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 123-131-139-143-151-159 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5.
Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju (lykkjum er ekki fækkað í kanti að framan) = 122-130-138-142-150-158 lykkjur.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-31 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handvegi og framstykkin/bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig:
Prjónið 30-32-34-35-37-39 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 50-54-58-60-64-68 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á þráð og prjónið áfram yfir 50-54-58-60-64-68 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 44-48-52-54-58-62 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-34-38-42-46-48 cm, fellið af miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig (= 13-14-15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við háls = 12-13-14-14-15-16 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka fyrstu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-29-31-32-34-36 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38-42-43 cm, setjið ystu 12-13-14-14-15-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum = 12-13-14-14-15-16 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 30-32-34-35-37-39 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-29-31-32-34-36 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38-42-43 cm, setjið ystu 12-13-14-14-15-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-1-2-2-2 sinnum = 12-13-14-14-15-16 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm (= 14-15-16-17-18-19 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan strofff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 2-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 7-7-7-7-8-8 sinnum = 46-48-50-52-56-58 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-28-32-35-39-42 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermakúpu fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorir hlið þar til ermin mælist 28-33-37-41-45-49 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 29-34-38-42-46-50 cm. Prjónið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að framan, frá réttu og prjónið upp ca 57 til 83 lykkjur (deilanlegt með 2 + 1) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 4. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi og saumið op í hvorri hlið við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Bernardi wrote:

Après plusieurs tentatives j’ai réussi à monter la manche contrairement à mon précédent message mais l’ajustement pourtour emmanchure du corps avec la tête de manche est délicat car la première est plus « longue » que le pourtour de la tête de manches

25.04.2024 - 14:35

country flag Bernardi wrote:

Pb au montage des manches : j’ai bien suivi les indications de diminutions des têtes de manche et du corps de l’ouvrage Je monte les manches à partir de l’épaule , mais quand la manche arrive au niveau des 6 mailles (diminuées à 31 cm de hauteur ) elle ne les couvre pas La largeur de la manche 34 cm soit 58 mailles ne permet qu’elle soit cousue sur ces 6 mailles diminuées Que faire ? Merci

25.04.2024 - 12:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernardi, la largeur totale de la manche (soit les 58 mailles dans votre taille) tricotée sur la longueur de la tête de manche (8 cm dans la dernière taille) va être cousue tout le long de l'emmanchure en commençant par les 6 premières mailles rabattues sous la manche contre les 6 mailles rabattues pour les emmanchures, puis tout le long de l'emmanchure. Ces 58 mailles feront donc plus que 34 cm car vous avez des rangs supplémentaires (ces 8 cm). vous pouvez épingler la manche tout autour de l'emmanchure pour vous aider si besoin. Bon aasemblage!

25.04.2024 - 16:07

country flag Bernardi Marie-Joëlle wrote:

A propos des têtes de manche : elles sont trop courtes avec 8 cm de haut pour une emmanchure de 19 cm «  a 49 cm » rabattre 1x3 de chaque côté puis rabattre les mailles restantes ? Combien ? Ou combien de cm ? Ça serait intéressant d’avoir les mesures de la manche à côté des mesures du corps comme souvent dans les patrons .. Merci

17.04.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

aBonjour Mme Bernardi, le nombre de mailles restant va dépendre de votre nombre de rangs en hauteur pour 10 cm, indépendamment de ce nombre de mailles, c'est ici la hauteur (les 8 cm en taille 12 ans) qui comptent, autrement dit, rabattez d'abord 3 m de chaque côté, puis 2 x 2 m puis 2 x 1 m puis rabattez 2 m de chaque côté jusqu'à c que la manche mesure 49 cm (le nombre de fois va dépendre de votre tension, veillez juste à avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté), rabattez ensuite 1 x 3 m de chaque côté et rabattez les mailles restantes; le haut de la manche doit mesurer 8 cm environ. Bon tricot!

18.04.2024 - 08:00

country flag Bernardi Marie-Joëlle wrote:

Merci de cette réponse rapide J’ai suivi le modèle : la tête de manche à partir de 42 cm jusqu’à 50 : ces 8cm me permettent pas de la coudre sur une emmanchure de 19cm de haut

15.04.2024 - 13:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernardi, c'est la largeur totale du haut de la manche, soit tout la largeur du haut de la tête de la manche qui va être cousu le long de l'emmanchure, on a les 58 mailles de la fin de la manche rabattues sur 8 cm, cela doit correspondre à la hauteur de l'emmanchure, épinglez avant de coudre la manche, cela peut aider. Bon tricot!

15.04.2024 - 16:04

country flag MJ Bernardi wrote:

La taille des manches n’est pas correcte pour la taille 12 ans \r\nPas assez large 34 cm au lieu de 38 au plus large \r\nHauteur insuffisante de la tête de manche \r\nToute la manche à refaire ? ….

13.04.2024 - 14:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernardi, en fait, c'est bien ainsi que les manches se tricotent en 12 ans; vous allez mesurer tout le long des diminutions du haut de la manche. Bon tricot!

15.04.2024 - 13:21

country flag Gillian Stowell wrote:

I don’t understand the instructions for picking up stitches for the neck. What does knit up 57 to 83 stitches mean? What does the bracketed phrase ( including stitches on the threads and stitch number divisible by 2+1) mean?

01.04.2024 - 23:14

DROPS Design answered:

Hi Gillian, Depending on the size you are working and how tight a neck you would like, you knit up the number of stitches you choose, between 57 and 83 stitches. This number includes the stitches on the threads in front. The number you end up with must be divisible by 2 + 1 (in other words, an odd number) so that the ribbing in the neck is symmetrical. Happy knitting!

02.04.2024 - 06:43

country flag Marcus Movitz wrote:

”Fortsätt med slätstickning, SAMTIDIGT maskas det av till ärmhål i början av varje varv i varje sida: 2 maskor 1 gång och 1 maska 1 gång = 44-48-52-54-58-62 maskor.” Jag förstår inte riktigt vad man ska göra här. Om jag börjar sticka räta sidan - ska jag då börja med att maska av två första varvet och 1 andra varvet och göra så på varje sida? Det blir ju då att man maskar av 2 och 3 maskan. Mvh

19.03.2024 - 17:51

DROPS Design answered:

Hej Marcus. Ja du maskar först av 2 maskor på varje sida och sedan 1 maska på varje sida på bakstycket, så totalt 3 maskor på varje sida. Mvh DROPS Design

20.03.2024 - 07:42

country flag Gillian Stowell wrote:

The pattern I have chosen:- Pattern no ai-043-bn specifies Drops Mother of Pearl buttons Arched NR521 These do not appear to be available on the website - can you tell me what size these buttons are so I can choose an equivalent?

11.11.2023 - 11:58

DROPS Design answered:

Dear Gillian, the buttons are: Arched (white) No. 521, size 15mm; you will find them more easily using the number. You can contact your usual Drops store to see if they are available or if they can order them for you. You can also choose other 15mm buttons for your work. Happy knitting!

12.11.2023 - 19:47

country flag Ingrid Theelen wrote:

Ja dankjewel voor het antwoord, maar ik begrijp het niet.. welke steken moet ik op de hulpdraad zetten? Die aan de kant van het armsgat of richting hals? Want het is een vrij rechte mouwinzet en vlgs de foto van het vestje is er maar aan één kant aannde haks verminderd. 🤔

05.11.2023 - 20:55

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Je kant aan de kant van de hals af, dus gelijk naast de steken die je daar voor op een hulpdraad hebt gezet.

15.11.2023 - 14:26

country flag Ingrid Theelen wrote:

Hallo...ik heb een vraag gesled zie 3 nov ... Kan ik hier antwoord op krijgen svp??

05.11.2023 - 16:24

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Je vraag is, als het goed is, inmiddels beantwoord.

05.11.2023 - 19:04