DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evening Fires Sweater

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-40
DROPS Design: Mynstur as-158
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
275-300-325-350-375-425 g litur 04, ljós beige

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-750-850g litur 08, grábeige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndist gat = 2 lykkjur fleiri. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-128-136-144-152 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig:
STÆRÐ S-L-XXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt.
STÆRÐ M- XL-XXXL: 1 lykkja brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið.
Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8.
Haldið áfram þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 7-9-11-13-15-17 lykkjur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju yfir þessar lykkjur, A.1 (= 10 lykkjur sem auknar eru út til 15 lykkjur), 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 14-18-22-26-30-34 lykkjur, jafnframt er fækkað um 2 lykkjur yfir þessar lykkjur, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, prjónið brugðnar lykkjur yfir síðustu 7-9-11-13-15-17 lykkjur, jafnframt er fækkað um 1 lykkju yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-154-162-170-178 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 (= 15 lykkjur) yfir hvert A.1, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2 fyrstu lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur (= framstykki), fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur, fellið af 2 síðustu lykkjur í umferð fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 65-69-73-77-81-85 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir 65-69-73-77-81-85 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fækkið um 5 lykkjur yfir miðju mynstureiningu af A.2, í næstu umferð eru felldar af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fækkið um 5 lykkjur yfir miðju mynstureiningu af A.2, í næstu umferð eru miðju 8-10-12-14-16-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig:

STÆRÐ S-M-XXL-XXXL:
1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 30-30-38-38 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt.

STÆRÐ L-XL:
1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 34-34 lykkjur, endið með 1 lykkju brugðið.

Prjónið stroff í 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.1, brugðnar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og lykkjur hafa verið auknar út jafnt yfir, eru 43-45-47-49-51-53 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 yfir lykkjur í A.1 og brugðnar lykkjur eins og áður.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 9-9-9-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli.
Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er 2 cm klauf efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 44-60 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur af þræði að framan (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) á stuttan hringprjón 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Nisa Pahladsingh wrote:

Kan ik de sweater, en andere sweaters ook trouwens, zonder de dubbele kraag maken? Alvast bedankt!

02.08.2023 - 23:24

DROPS Design answered:

Dag Nisa,

Ja dat kan! Je breit de hals dan gewoon de helft minder hoog.

03.08.2023 - 21:06

country flag Eva wrote:

Thank you the lovely desig which I just started knitting in size XXL, I have read the instructions over and over but I cannot understand one thing. I am knitting the rib section ans I have 144 sts as per pattern, reading the following sections how is it we need to Decrease and still have more sts on our needles? ie: 170 sts where did we get the extra 26 sts if no increases needed. I appreciate your reply thank you. (I am knitting it for somebody else si it will have to be perfect). xxx Eva

13.06.2023 - 15:23

DROPS Design answered:

Dear Eva, note that when working 1st row in A.1 you will increase 5 stitches in each A.1 (see the 5 yarn overs), so that you will work as follows: Purl 15 sts decreasing 1 (= 14 sts), A.1 (= 10 sts increased to 15 sts), purl 6, A.1 (10 sts increased to 15 sts), purl 6, A.1 (10 sts increased to 15 sts), purl 30 sts decreasing 2 sts (= 28 sts), A.1 (10 sts increased to 15), purl 6, A.1 (10 sts increased to 15), purl 6, A.1 (10 sts increased to 15), purl 15 sts decreasing 1 st (= 14 sts) = 14+15+6+15+6+15+28+15+6+15+6+15+14=170 stitches. Happy knitting!

13.06.2023 - 16:11

country flag Nina wrote:

Hallo! Auf einem der Beispielfotos ist ein blauer Pullover zu sehen. Welche Wolle wurde dafür verwendet und welche Anleitung? Ich würde gerne beide stricken aber finden den blauen nirgendwo. Liebe Grüße

23.11.2022 - 10:28

DROPS Design answered:

Liebe Nina, der blaue Pullover wird mit Flora und Kid-Silk gestrickt, den finden Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2022 - 15:41

country flag Alena Jonáková wrote:

Dobrý den, jestě jsem se vás ptala na spotřebu příze. Potřebuji na svetr 15 klubíček 50 g Alasky? Děkuji.

21.04.2022 - 13:50

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, podle našeho převodníku budete potřebovat 1500g příze Alaska. Pokud máte obavu z pletení dvojitou přízí, můžete přízi DROPS Brushed Alpaca Silk nahradit také naší báječnou přízí DROPS Melody nebo DROPS Wish. Ať se daří!

23.04.2022 - 08:06

country flag Alena Jonáková wrote:

Dobrý den, psala jsem vám dva vzkazy 24.3. a zatím neznám odpovědi. Můžu ještě doufat, že mi odpovíte? Děkuji. Alena

09.04.2022 - 19:25

country flag Alena Jonáková wrote:

Dobrý den, moc ráda bych si upletla svetr Evening Fires, ale ještě mi není jasný vzor F1. Ten malý nákres. Mohla bych k tomu dostat podrobnější vysvětlení? Děkuji. Alena

24.03.2022 - 19:57

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, vzor A.1 čtete zprava doleva a zdola nahoru; tj. upletete 2 oka hladce, 1x nahodit, 1x hladce, 1x nahodit, 2x hladce, 1x nahodit, 2x hladce, 1x nahodit, 1x hladce, 1x nahodit, 2x hladce. V následující řadě upletete nahozená oka za zadní nit, aby se netvořily dírky. Potom postupujete dále podle návodu. Hodně zdaru!

23.04.2022 - 07:43

country flag Alena Jonáková wrote:

Dobrý den, chtěla bych vědět jestli můžu nahradit při pletení svetru Evening Fires vlnu Alpaka Silk vlnou Alaska? U té první vlny se plete dvojitě a také vzor je copánkový, myslim si, že by se to špatně pletlo. Je správná spotřeba 30 klubíček 50 gramové Alasky? Děkuji. Alena

24.03.2022 - 12:55

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, ano, přízi nahradit můžete, ale počítejte s tím, že výsledný vzhled bude trochu jiný - svetr bude hutnější a bude působit rustikálnějším dojmem.

21.04.2022 - 12:34

country flag Alena wrote:

Dobrý den ještě bych chtěla vědět, jestli mi opravdu stačí na svetr Evening Fires pro velikost XXL příze DROPS ALPAKA SILK 15, barvy sv. tyrkysové - příze C, 375 g i když ji použiji dvojitou? Děkuji. Alena

21.03.2022 - 16:03

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, ano, tato spotřeba by měla být dostačující. Příze DROPS Brushed Alpaca Silk je lehoučká a dodáváme ji v klubíčkách po 25 g s návinem 140 m - 15 klubíček by vám tedy mělo stačit i při pletení dvojitou přízí. Hodně zdaru! Hana

23.03.2022 - 18:19

country flag Alena wrote:

Dobrý den, u návodu na svetr Evening Fires mi není jasné ujimání 5 ok prostřední sekvence vzoru A2? Mohla bych k tomu dostat nějaké podrobnější vysvětlení. Děkuji. Alena

21.03.2022 - 15:40

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, při tvarování průkrčníku potřebujeme ujmout uprostřed dílu 5 ok. Uprostřed dílu ale leží silný copánek a kdybychom ujmuli všech 5 ok vedle sebe, vznikla by nevzhledná "kapsa", proto je lepší ujímání rozložit nad celou sekvenci, např. takto: 1 oko upleteme, 2 oka spleteme, 1 upleteme, 2 spleteme, atd. Hodně zdaru! Hana

23.03.2022 - 18:42

country flag Erin wrote:

What size knitting needles are used for the gauge?

08.03.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Hei Erin, The size 8 mm needles are used for the guage. Happy knitting!

08.03.2022 - 06:58