DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Glacier Walk

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 226-42
DROPS Design: Mynstur ne-351
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-650-700-750-850 g litur 7120, ljós gráblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 18.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 18. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri ermi. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er fyrst prjónað í hring á hringprjón, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-78-84-90-93 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. Héðan er nú stykkið mælt.

BERUSTYKKI:
Aukið nú allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja brugðið (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat) = 96-96-104-112-120-124 lykkjur. Haldið áfram hringinn með stroffprjóni (1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5-5-6-6-7-7 cm (= 13-13-14-14-15-15 cm í stroffprjóni).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-20-24-40-60 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 100-100-124-136-160-184 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og prjónið mynstur og aukið út þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju = í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), aukið út um 1 lykkju hér – sjá LASKALÍNA, prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 yfir næstu 6-6-12-12-18-18 lykkjur (= 1-1-2-2-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3 yfir næstu 4 lykkjur, aukið út um 1 lykkju hér, 1 lykkja slétt (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju = í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), aukið út um 1 lykkju hér, prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjurnar, A.2 yfir næstu 24-24-30-36-42-54 lykkjur (= 4-4-5-6-7-9 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3 yfir næstu 4 lykkjur, aukið út um 1 lykkju hér, 1 lykkja slétt (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju = í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), aukið út um 1 lykkju hér, prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 yfir næstu 6-6-12-12-18-18 lykkjur (= 1-1-2-2-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3 yfir næstu 4 lykkjur, aukið út um 1 lykkju hér, 1 lykkja slétt (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju = í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), aukið út um 1 lykkju hér, prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 yfir næstu 24-24-30-36-42-54 lykkjur, A.3 yfir síðustu 4 lykkjur, aukið út um 1 lykkju hér.
Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 12-18-18-18-18-18 sinnum = 196-244-268-280-304-328 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1/A.3 og í hvert skipti sem mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.2 á milli A.1 og A.3.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu er lokið, prjónið mynstur (án þess að auka út fleiri lykkjur) þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu lykkju, setjið næstu 39-51-57-57-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 59-71-77-83-89-101 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 39-51-57-57-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-70-76-82-88-100 lykkjur og prjónið fyrstu lykkju í umferð (= 59-71-77-83-89-101 lykkjur fyrir bakstykki). Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 138-162-174-186-198-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Byrjið umferð við prjónamerki í einni af hliðunum.
Prjónið mynstur hringinn þannig: * 6 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Þegar stykkið mælist 17 cm frá skiptingu, prjónið mynstur þannig:
UMFERÐ 1-2: * 1 lykkja garðaprjón, 5 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 5 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Prjónið 1 umferð svona til viðbótar.
UMFERÐ 3-4: * 2 lykkjur garðaprjón, 4 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Prjónið 1 umferð svona til viðbótar.
UMFERÐ 5-6: * 3 lykkjur garðaprjón, 3 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Prjónið 1 umferð svona til viðbótar.
UMFERÐ 7-8: * 4 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Prjónið 1 umferð svona til viðbótar.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 8 cm að loka máli.
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 69-81-87-93-99-111 lykkjur og setjið þær á þráð (= framstykki), prjónið síðan fram og til baka í mynstri eins og áður yfir síðustu 69-81-87-93-99-111 lykkjur (= bakstykki), þ.e.a.s. prjónið mynstur frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: 4 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 2: 4 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, mynstur eins og áður yfir næstu 57-69-75-81-87-99 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur garðaprjón.
Endurtakið umferð 1-2.
Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið stroff frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.
Prjónið framstykkið á sama hátt.

ERMI:
Setjið til baka 39-51-57-57-63-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 49-61-67-67-73-73 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og yfir 10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi eru prjónaðar sléttar lykkjur. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-5-3-3-2½-2½ cm millibili alls 2-6-9-8-10-9 sinnum = 45-49-49-51-53-55 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-41-39-37-36-34 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – mátaðu e.t.v. peysuna og prjónaðu að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 45-48-48-51-54-54 lykkjur. Skiptu yfir á sokkaprjóna 4.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 45-44-42-41-40-37 cm frá skiptingu. Prjónaðu hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Ute wrote:

Ich möchte gern den hinteren Hals etwas höher gestalten und stelle mir vor, in der Runde, wo die Umschläge zwischen den 2 linken Maschen gemacht werden, (wo die Passe anfängt) mit verkürzten Reihen einen kleinen Ausschnitt zu machen ( 2 bis 3 x) Nun bin ich etwas blockiert und weiß nicht, an welcher Stelle innerhalb der Runde ich das machen kann. Es sollte dann ja auch mit dem Muster, welches viel weiter unten anfängt, stimmig sein. Vielen Dank im voraus

28.12.2023 - 15:37

DROPS Design answered:

Liebe Ute, wir haben 2 Videos, die Ihnen damit helfen können: schauen Sie mal hier oder hier. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:39

country flag Guðlaug wrote:

Coming soon is not soon enough. Can't wait for knitting this one 😊

17.09.2021 - 12:36

country flag Barbara wrote:

Der sieht schön kuschelig aus, würde ich sofort nach stricken

05.08.2021 - 13:18

country flag Susanne wrote:

Ich freue mich auf das Pattern

04.08.2021 - 15:52