DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Northern Knight

Heklaðar tátiljur úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlakróks-mynstri. Stærð 35 - 43.

DROPS 227-64
DROPS Design: Mynstur fa-474
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22-24-27 cm
Hæð á sokk niður að hæl: Ca 18-18-18 cm

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150 g litur 602, silfurrefur
150-150-150 g litur 115, ljós grár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
17 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina með 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA-1 :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 26.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla 25. og 26. hverja lykkju saman – sjá ÚRTAKA-2.

ÚRTAKA-2:
Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).
Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, frá miðju að aftan. Stroffið er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu. Hællinn er heklaður fram og til baka. Síðan er fóturinn heklaður í hring, en snúið er við í hverri umferð alveg eins og á stroffi.

STROFF / LEGGUR:
Heklið 53-57-59 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af 52-56-58 loftlykkjum = 52-56-58 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið umferð með ör í A.1 hringinn í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram fram og til baka svona með því að hekla aðra hverja umferð frá réttu og röngu.
Þegar stykkið mælist 4 cm – stillið af að fækkað sé um 2-1-3 fastalykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá ÚRTAKA-1 = 50-55-55 lykkjur.

Nú er mynstur heklað frá réttu þannig:
Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 45-50-50 lykkjur (= 9-10-10 mynstureiningar með 5 lykkjum), heklið fyrstu 4 lykkjur í A.4 – síðasta lykkjan í A.4 sýnir fyrstu lykkju í umferð, þ.e.a.s. A.2 og er með í mynsturteikningu til að sýna hvernig stuðlakróka-lykkjurnar eru heklaðar í lok umferðar.
Haldið svona áfram með aðra hverja umferð frá réttu og röngu. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur A.x á hæðina.

Endurtakið A.x þar til stykkið mælist ca 18-18-18 cm eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 7-8-9 cm fyrir hæl) – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.x. Klippið þráðinn.
Nú eru sett 2 prjónamerki í stykkið séð frá réttu þannig:
Byrjið í byrjun á umferð, hoppið yfir fyrstu 20-20-20 lykkjurnar, setjið eitt prjónamerki hér (síðar byrjar umferðin frá þessu prjónamerki), hoppið yfir næstu 16-16-16 lykkjur (= ofan á fæti), setjið eitt prjónamerki hér. Nú eru 14-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.

HÆLL:
Nú er heklað áfram fram og til baka. Byrjið eftir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og heklið frá röngu þannig – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 34-39-39 lykkjum (hoppið yfir 3 loftlykkjur sem voru í byrjun á umferð mitt að aftan) og fækkið jafnframt um 6-9-7 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 fastalykkjur fyrir hæl.
Snúið og heklið frá réttu með 1 stuðul í hvern stuðul.
Haldið áfram fram og til baka með fastalykkjum frá röngu og stuðlum frá réttu þar til stykkið mælist 5-6-7 cm frá skiptingu (= 23-24-25 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu.
Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8-9-10 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA-2, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9-10-11 lykkjum = 24-26-28 fastalykkjur.
Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 6-7-8 lykkjum, * heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 6-7-8 lykkjum = 20-22-24 stuðlar.
Setjið eitt prjónamerki mitt í þessa umferð (= mitt aftan á hæl). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Stykkið mælist ca 25-26-27 cm alls.
Klippið þráðinn þannig að það verði ca 25 cm eftir fyrir frágang.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður 20-22-24 kant framan á hæl þannig að stykkið liggi tvöfalt og saumið saman síðustu umferð sem var hekluð mitt undir fæti. Festið þráðinn

FÓTUR:
Byrjið mitt undir fæti (þ.e.a.s. þar sem saumað var) og heklið frá röngu þannig:
Heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir meðfram hlið á hæl þar til 1 cm er eftir á undan 16-16-16 lykkjum á fæti, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar á undan 16-16-16 lykkjum, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri = 13-14-15 fastalykkjur frá miðju að neðan og upp að stroffi), heklið mynstur eins og áður yfir næstu 16-16-16 lykkjur á fæti, heklið meðfram hlið á hæl í annarri hliðinni þannig:
Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið 12-13-14 fastalykkjur jafnt yfir niður að byrjun á umferð = 42-44-46 lykkjur.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir fyrstu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir, heklið mynstur eins og áður yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 10 lykkjur, A.4 yfir næstu 5 lykkjur, heklið 1 stuðul í hverja lykkju yfir síðustu 13-14-15 stuðla og fækkið jafnframt um 3 stuðla jafnt yfir = 36-38-40 stuðlar. Haldið áfram fram og til baka með mynstri yfir 16-16-16 lykkjur ofan á fæti og aðra hverja umferð með stuðlum og fastalykkjum yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð (nú er hekluð önnur hver umferð frá réttu og röngu eins og áður).
Þegar stykkið mælist 18-20-23 cm mælt frá prjónamerki mitt aftan á hæl – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu með A.x á hæðina, heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju og fækkið jafnframt um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 36 lykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu/næstu 2 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 27 lykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í fyrstu/næstu lykkju, heklið næstu 2 stuðla saman *, heklið frá *-* alls 9 sinnum = 18 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið allar 2 fastalykkjur saman 2 og 2 = 9 fastalykkjur.
Fóturinn mælist ca 22-24-27 cm. Klippið þráðinn og þræðið upp og niður í gegnum lykkjurnar í kringum opið framan á tátilju. Herðið á þræði, þannig að opið lokist og festið vel.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.

Mynstur

symbols = Byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðul/stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul)
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðulinn), en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 2 lykkjur á heklunálinni)
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðulinn), en þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (þ.e.a.s. þessi stuðlakróks-lykkja hefur verið hekluð saman með fyrri stuðlakróks-lykkju + stuðul = 1 lykkja).
ATH: Í síðasta skipti sem þetta tákn er heklað í umferð 3 í A.4, heklið um fyrsta stuðul í byrjun á umferð.
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakrók-þríbrugðinn stuðull (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul), en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 2 lykkjur á heklunálinni).
ATH: Í síðasta skipti sem þetta tákn er heklað í umferð 5 í A.4, heklið í stað 1 stuðul í næstu lykkju þannig: Heklið 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja).

symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakrók-þríbrugðinn stuðull (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul), en þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (þ.e.a.s. þessi stuðlakróks-lykkja hefur verið hekluð saman með fyrri stuðlakróks-lykkju + stuðul = 1 lykkja).
ATH: Í fyrsta skipti sem þetta tákn er heklað í 5. umferð í A.2, ekki hekla lykkjuna saman við aðra lykkju þar sem ekki eru fleiri lykkjur til að hekla saman við (= 1 lykkja).
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-64

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Julia wrote:

Kann es sein, dass die Anleitung fehlerhaft ist? Die Längsstriche sind FM oder? Und bei A3 das erste Dreifach-Reliefstäbchen ist eigentlich das mit dem Kreis und nicht mit der Raute, oder? Wenn ich nach dem 1. Dreifach-Reliefstäbchen ein Stäbchen in die nächste Masche häkeln soll, dann hat der Rapport 6 Maschen und nicht 5. Das ergibt alles keinen Sinn. Ich verstehe die Anleitung leider überhaupt nicht. Danke für die Hilfe.

30.09.2023 - 20:33

DROPS Design answered:

Liebe Julia, bei der 5. Reihe ja stimmt - dieses Dreifachstäbchen wird mit 1 Stäbchen zusammengearbeitet so sind es nur 1 Masche. Viel Spaß beim häkeln!

02.10.2023 - 10:12

country flag Ingrid Bär wrote:

Das Muster ist echt klasse, das werde ich auf jeden Fall mal ausprobieren, gibt schöne hausschuhe für den Winter. Danke schön

28.08.2022 - 08:42

country flag Crickx Lauranne wrote:

Bonjour, serait-il possible d'avoir l'image avec les mesures ? Car j'ai suivi le tuto à la lettre pour le 41-43 et c'est fort fort large au niveau du molet alors que niveau hauteur et le pied en lui-même c'est impeccable. Merci 😊

05.10.2021 - 21:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Crickx, nous n'avons pas de schéma pour les chaussons, pensez à bien vérifier et surtout conserver votre tension en largeur, vous devez avoir 17 brides = 10 cm. Bon crochet!

06.10.2021 - 07:27