DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Harvest Glow

Prjónuð húfa og hálsskjól úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og stroffprjóni.

DROPS 225-5
DROPS Design: Mynstur ks-181
Garnflokkur A + A + A + A eða E
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:
STÆRÐ:
S/M – M/L

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 35, súkkulaði
50-50 g litur 12, beige
50-50 g litur 30, karrí
50-50 g litur 33, ryð

HÁLSSKJÓL:
STÆRÐ:
S/M – M/L

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 g litur 35, súkkulaði
25-25 g litur 12, beige
25-25 g litur 30, karrí
25-25 g litur 33, ryð

Ef óskað er eftir að hafa stykkið í einum lit þá þarf: 150-150 g DROPS KID-SILK í báðar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 4 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
Ein stærð
Höfuðmál: Ca 54/58 cm.

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 35, súkkulaði
25 g litur 12, beige
25 g litur 30, karrí
25 g litur 33, ryð

Ef óskað er eftir að hafa stykkið í einum lit þá þarf
75 g af DROPS KID-SILK.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 4 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR (á við um húfu):
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er síðan prjónuð hvor fyrir sig yfir axlir. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp við hálsmál áður en axlalykkjur eru settar saman og bakstykkið er prjónað áfram, ofan frá og niður. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er hár kragi í stroffprjóni.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 42-50 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hverjum lit (= 4 þræðir).
Prjónið þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 8-8 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 26-34 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 6-8 lykkjur = 36-42 lykkjur. Haldið svona áfram (stroff og garðaprjón yfir 8 lykkjur í hvorri hlið, sléttprjón yfir miðju 20-26 lykkjur).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina.
Í næstu umferð er prjónað eins og áður, en uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Aukið svona út með ca 3½ cm millibili alls 4 sinnum = 44-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-20 cm, á að taka frá lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið yfir fyrstu 15-17 lykkjur eins og áður, setjið næstu 14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (prjónið þær fyrst), prjónið síðustu 15-17 lykkjur. Setjið fyrstu 15-17 lykkjur á þráð fyrir vinstri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 11-13 lykkjur.
Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 25-26 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá (= mitt ofan á öxl).
Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki á öxl. Í lok næstu umferðar frá röngu er fitjuð upp 1 ný lykkja við hálsmál = 12-14 lykkjur. Klippið frá og setjið lykkjur á þráð. Prjónið vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL:
Setjið til baka 15-17 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 11-13 lykkjur.
Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 25-26 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá (= mitt ofan á öxl).
Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki á öxl. Í næstu umferð frá réttu er fitjuð upp 1 ný lykkja við hálsmál = 12-14 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Í lok næstu umferðar eru fitjaðar upp 20-22 nýjar lykkjur, síðan eru lykkjur frá hægri öxl settar til baka á prjóninn = 44-50 lykkjur.

BAKSTYKKI:
Nú á að prjóna yfir allar lykkjur eins og á framstykki. Þegar stykkið mælist 7½ -8½ cm frá prjónamerki á öxl (stillið af að þetta sé jafn langt frá öxl og síðasta útaukning á framstykki), fækkið lykkjum innan við ystu 9 lykkjur í hvorri hlið þannig, frá réttu:
Prjónið mynstur eins og áður yfir ystu 9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur.
Endurtakið úrtöku innan við 9 ystu lykkjur í hvorri hlið, með ca 3½ cm millibili alls 4 sinnum = 36-42 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 19-20 cm frá prjónamerki á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð þannig, frá réttu: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sléttprjón yfir næstu 20-26 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 6-8 lykkjur jafnt yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 42-50 lykkjur.
Prjónið frá röngu þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur slétt.
Prjónið stroff svona þar til stykkið mælist 25-26 cm frá öxl – stillið af að framstykkið og bakstykkið sé jafn langt. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 7 og 1 þráð í hverjum lit (= 4 þræðir), byrjið við prjónamerki á öxl og prjónið upp ca 64-68 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist ca 20 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Hægt er að brjóta uppá kant í hálsmáli og sauma niður sem tvöfaldan kant, eða nota sem háan kraga.
Ef stykkið á að vera með tvöföldum kanti í hálsmáli er það gert þannig: Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Húfan er prjónuð í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna í stroffprjóni.

HÚFA:
Fitjið upp 68 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 6 þráðum DROPS Kid-Silk (= 1 þráður af hverjum lit + einn auka þráður með litnum karrí og 1 auka þráður með litnum ryð). Takið síðan frá þessa 2 auka þræði, nú er prjónað áfram með 1 þræði í hverjum lit (= 4 þræðir). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).

Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er prjónað þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið alls 4 sinnum í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25 cm. Nú er prjónað þannig – frá byrjun á stykki: A.1 yfir allar lykkjur (= 4 mynstureiningar með 17 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 24 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 35 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá stroffið neðst niðri þannig að uppábrotið verði ca 10 cm. Húfan mælist ca 25 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Monika wrote:

Thank you for the answer. You should also correct the amount of the yarn for the cap which is 75g for 1 colour cap and should be 100g if I understand well. :)

09.01.2024 - 18:11

country flag Monika wrote:

I'm afraid I did not receive the answer to my question. I do not understand why I need more yarn when I want to use 4 threads of the same colour than when I use 4 different colours. And the difference is 2 balls of yarn - 150g vs. 100g.

09.01.2024 - 16:58

DROPS Design answered:

Hi Monika, there is a mistake in the pattern. It should be 100 g when you work a neck warmer in only one colour. Thank you for noticing it. Happy knitting!

09.01.2024 - 17:15

country flag Monika wrote:

Could you please explain to me why I need more wool when I want to use one colour . Is it a mistake? 100g of 4 colours for a neck warmer and 150g if it is made of one colour.

08.01.2024 - 20:52

DROPS Design answered:

Dear Monika, if you get the correct tension, that's the yarn amount you will need, note that you might require less than the 2 balls in each color for the hat, but 1 ball each color might not be enough due to the ribbing pattern. Happy knitting!

09.01.2024 - 07:44

country flag Laila wrote:

Hallo, Nun ab dem Rundenbeginn A.1 über alle Maschen stricken (= 4 Rapporte à 17 Maschen). Das versteh ich nicht. Ich Stricke mit dem Nadelspiel. 17maschen auf der Nadel ist der rapport,das heißt jeder Nadel die 17 Maschen laut A1 Stricken. Aber der Diagramm geht auch in der Höhe.Wie oft muss ich A1 Stricken? Mfg Laila----

31.12.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Laila, wenn die Arbeit 25 cm mist stricken Sie A.1: wenn Sie 17 Maschen auf jeder Nadel haben, dann stricken Sie A.1 auf jede Nadel (= 4 x 17 = 68 Maschen); wenn A.1 fertig ist sind es nur noch 6 Maschen in jedem A.1/auf jede Nadel x 4 Rapporter = 24 maschen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 13:59

country flag Gudrun wrote:

I agree with Olena, it does not make sensse after the 12 cm and before the diagram, can you please explain, why the 3 purled ones, and then then what?

27.10.2022 - 23:31

DROPS Design answered:

Dear Gudrun, you first work 12 cm rib K2, P2, then continue with rib like this: Knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 3 *, repeat these 17 stitches, ie from *-* a total of 4 times = (17x4=68 sts). Happy knitting!

28.10.2022 - 11:32

country flag Lea wrote:

Cosa si intende quando si dice: "mettere in sospeso le 14 maglie successive per il collo (lavorarle prima)?" O le lascio in sospeso o le lavoro.. e come faccio a lavorare le 15 maglie prima e le ultime, lasciando in sospeso delle maglie in mezzo, resta il filo teso in mezzo.. forse vanno intrecciate per chiuderle le maglie del collo...

16.10.2022 - 15:25

DROPS Design answered:

Buonasera Lea, deve lavorare le prime 15 maglie della spalla sinistra, poi lavorare le 14 maglie del collo e metterle in sospeso e infine proseguire con le 15 maglie della spalla destra. A questo punto deve mettere in sospeso anche le 15 maglie della spalla sinistra e proseguire con la spalla destra. Buon lavoro!

17.10.2022 - 23:46

country flag Barbara wrote:

Cosa vuol dire, quando ci sono le diminuzioni A1 su tutte le maglie grazie

25.01.2022 - 15:47

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!

26.01.2022 - 22:06

country flag Tasiana wrote:

Diagram does not correspond to the hat

09.10.2021 - 11:42

DROPS Design answered:

Dear Tasiana, diagram does work over the hat, you were working ( Knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 3) = 17 sts repeat from (to), and you will *Knit 1, knit the next K + the next purl stitch twisted together, then purl 1, knit 2, purl 2, knit 2, purl 1, knit the next purl + the next knit stitch together, knit 1, purl 3* = 17 sts decreased to 15 sts. Happy knitting!

11.10.2021 - 08:28

country flag Olena wrote:

I have a question to the following description: "Continue with rib until piece measures 12 cm from cast-on edge. Now work as follows: * Knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, knit 2, purl 3 *, repeat *-* 4 times in total on round. Continue until piece measures 25 cm. Now work as follows – from beginning of round: A.1 over all stitches (= 4 repetitions of 17 stitches)." If I work as it said: *knit 2, purl 2, knit 2, purl 2, ...,, purl 3*, I can't follow the diagram A.1 then. ???

29.09.2021 - 14:47

DROPS Design answered:

Dear Olena, sorry, you will find how to read knitting diagrams here, can this help or do I misunderstand your question?

30.09.2021 - 09:26