DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Misty Moon Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og köntum í áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-16
DROPS Design: Mynstur me-235
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-750-850-950 g litur 08, ljós beige

Eða notið:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-700-750-800-900 g litur 07, ljós grár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 15 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 3,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður þar til stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig að loka máli.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið laust upp 120-120-120-132-132-132 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn. Haldið áfram með mynstur svona í 9 cm. Síðar á að brjóta uppá kantinn tvöfaldan og við frágang þá verður hann 4 cm.

Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá miðju að aftan þannig: Prjónið 15-15-15-18-18-18 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir þessar 15-15-15-18-18-18 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (= ½ bakstykki), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur (þessar 10 lykkjur verða laskalína og A.2 á að passa fallega yfir lykkjur frá kanti í hálsi), prjónið 11 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar 11 lykkjur (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 29-29-29-35-35-35 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 8-8-4-8-8-4 lykkjur jafnt yfir þessar 29-29-29-35-35-35 lykkjur (= framstykki), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 11 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar 11 lykkjur (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið 14-14-14-17-17-17 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir þessar 14-14-14-17-17-17 lykkjur (= ½ bakstykki) = 94-94-102-106-106-114 lykkjur í umferð.
Prjónið eina umferð slétt.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón hringinn og A.2 í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 25-28-30-34-37-40 sinnum á hæðina.

Eftir síðustu útaukningu eru 294-318-342-378-402-434 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 45-49-52-57-62-68 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 89-97-103-113-123-135 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 44-48-51-56-61-67 lykkjur (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-206-222-242-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 18 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.

FRAMSTYKKI:
= 95-103-111-121-133-145 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 103-112-121-133-145-157 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, byrjið á 2. umferð í A.1, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu), prjónið síðan A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
= 95-103-111-121-133-145 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 103-112-121-133-145-157 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, byrjið á 2. umferð í A.1, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu), prjónið síðan A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-15-16-17 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-31-29-28-26 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-7-8-6-7-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 54-57-60-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.1 hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Helene Lindén wrote:

Jag beställde rekommenderat antal garn men det blir drygt 4!! över. Tror inte rätt antal är rekommenderat.

22.10.2023 - 10:53

country flag DOULET CHRISTIANE wrote:

Bonjour, étant donné qu'on tricote en rond , on est toujours sur l'endroit du travail , je ne comprends pas le diagramme : 1 maille endroit 2 mailles envers , et le rang suivant ? Merci de votre réponse

13.05.2023 - 18:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Doublet, Si vous parlez de A.1, tricotez ainsi, sur l'endroit: *1 m end, 2 m env*, puis sur l'envers, tricotez les 3 m à l'endroit sur l'endroit (puis à l'envers sur l'envers quand on tricote les côtes du bas du pull pour les fentes côté) (cf légende case blanche) et répétez ces 2 rangs, vous avez ainsi des côtes formées par alternativement 1 m jersey endroit (1ère m de A.1) et 1 m point mousse (tricotée alternativement à l'envers et à l'endroit en rond puis quand on tricote en rangs: à l'envers tous les rangs). Bon tricot!

15.05.2023 - 08:28

country flag Susi wrote:

Der Pulli ist fertig. Ich habe in Größe L statt der angegebenen 14 Knäuel ( 700 g ) nicht einmal ganze 10 gebraucht. Es ist OK, wenn 2 Knäuel als Sicherheit oder auch für unterschiedlich festes Stricken eingeplant sind, aber 200 Gramm zuviel? Was mache ich nun damit?

12.05.2023 - 18:04

country flag Susi wrote:

Aber so stricke ich doch auch mit doppeltem Faden. Das ist bei dickem Glattstrick leider in der Fläche total auffällig.

09.05.2023 - 08:26

country flag Susi wrote:

Wie kann man ein Knäuelende unsichtbar verstricken ? Bei so glatter Wolle und glatt rechten Maschen sieht man den Übergang sehr deutlich, wenn ich mehrere Maschen mit doppeltem Faden stricke. Dies wird aber in Strickanleitungen oft empfohlen. Wie macht es Drops? Gibt es eine Anleitung?

08.05.2023 - 12:31

DROPS Design answered:

Liebe Susi, gerne können Sie beim Fadenwechsel diese Technik benutzen - Ihr DROPS Händler hat sicher noch weitere Tipps, gerne fragen Sie mal dort - ob ich Ihre Frage richtig verstanden habe. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2023 - 16:10

country flag Christiane Doulet wrote:

Ces 2 laines laines se tricotent avec les aiguilles 4 (puna et merino extra fine). Pourquoi utilisez vous des aiguilles 4 1/2 ? Merci

31.03.2023 - 16:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Doulet, c'est la taille des aiguilles qu'il nous faut pour obtenir l'échantillon (20 mailles x 26 rangs jersey = 10 x 10 cm), pensez à bien tricoter votre échantillon au préalable et ajustez la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!

11.04.2023 - 10:03

country flag Susi wrote:

Wie kann ich hierbei mit verkürzten Reihen am Halsausschnitt und mit hohem Kragen arbeiten? Gibt es vielleicht ein passendes Video oder ein ähnliches Modell?

27.03.2023 - 17:03

DROPS Design answered:

Liebe Susi, vielleicht können Sie die verkürzten Reihen wie in diesem Video arbeiten. Viel Spaß beim stricken!

28.03.2023 - 09:49

country flag Tanja wrote:

Hallo! Mit welcher Nadelstärke wird die Maschenprobe durchgeführt? Vielen Dank im Voraus

27.11.2022 - 13:39

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, Maschenprobe stricken Sie mit den grösseren Nadeln. Viel Spaß beim stricken!

28.11.2022 - 10:46

country flag Florence wrote:

In vervolg op jullie antwoord over het inbreipatroon patroon: dat is natuurlijk een onzinnig antwoord. Rondbreien heeft geen goede en verkeerde kant maar rondgaande toeren. Dus kun je niet recht op de goede en averecht op de verkeerde kant breien. Maar ik heb zelf wat dingen uitgeprobeerd en kom dan tot de volgende inschrijvingsprijs A1: 1e naald: 1 recht 2 averecht, 2e naald: alle steken recht. Deze twee naalden steeds herhalen. Dit lijkt het meest op de foto.

14.11.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Dag Florence,

Dat klopt zoals je de naalden omschrijft. Fijn dat je eruit gekomen bent. Veel breiplezier.

14.11.2022 - 20:30

country flag Florence wrote:

Dit telpatroon staat precies hetzelfde bij het vest, wat niet rondgebreid is. Dit klopt dan toch niet dat het telpatroon voor rond gebreide trui hetzelfde is als voor een heen en weer gebreid vest? Bij rondbreien brei je in feite steeds heengaande naalden en zou je toch elke toer 1 recht, 2 averecht moeten breien?

12.11.2022 - 15:17

DROPS Design answered:

Dag Florence,

In het telpatroon zijn alle naalden weergegeven en bij de uitleg van de symbolen in het telpatroon staat aangegeven hoe je de steken op de goede kant en op de verkeerde kant breit, zodat dit telpatroon zowel voor het vest als de trui gebruikt kan worden.

13.11.2022 - 18:31