DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 225-41
DROPS Design: Mynstur z-945
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: Ca 54/56 – 56/58 – 58/60 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 g litur 2020, ljós nougat
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25-25 g litur 01, natur

FYLGIHLUTIR: Ca 56 til 60 cm teygja.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir kant.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman á eftir prjónamerki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

ALPAHÚFA:
Fitjið upp 112-120-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með 1 þræði í litnum ljós nougat DROPS Alpaca og 1 þræði í litnum natur DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5 og prjónið sléttprjón hringinn í 2 cm, prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot) og prjónið síðan sléttprjón hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki í umferð – stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

Prjónið 1 umferð sléttprjón. Í næst umferð eru sett 8 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð síðar þegar auka á út og fækka á lykkjum í stykkinu og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið sem mælt er frá.
Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, síðan eru sett 7 næstu prjónamerki með 14-15-16 lykkja millibili.
Prjónið sléttprjón hringinn og aukið jafnframt út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7 sinnum á hæðina = 168-176-184 lykkjur.
Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 8-8-9 cm frá prjónamerki sem mælt er frá.
Í næstu umferð byrjar úrtaka – fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 20-21-22 sinnum = 8 lykkjur eftir. Í næstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 5 lykkjur eftir.
Húfan mælist ca 22-23-25 cm ofan frá og niður að prjónamerki.

Toppurinn á húfunni er prjónaður þannig:
Notið tvo sokkaprjóna 3. Setjið 5 lykkjur á annan sokkaprjóninn og prjónið með hinum. * Prjónið 5 lykkjur slétt, færið lykkjurnar aftur fram á prjóninn, herðið á þræði *, prjónið frá *-* þar til sjálfur toppurinn mælist ca 2 cm. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum 5 lykkjurnar, herðið á þræðinum og festið vel.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið neðst á húfunni tvöfalt að röngu og saumið niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í gegn – passið uppá að saumurinn dragist ekki saman. Þræðið teygjuna í gegn og stillið lengdina. Saumið saman opið á uppábrotinu.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Streets of Paris

Linda, Sweden

Streets of Paris

Aleta, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Nancy J Van Kirk wrote:

I bought my yarn to make this hat and it has just arrived. The alpaca is a good off white but the kid silk is colour No. 38 - Chalk. It is really a soft grey colour, not at all like the off white I thought I saw in the colour chart . I should have ordered colour No 01. Is there an easy way to return it and exchange for a better colour. I would like the hat to be really white.

19.12.2022 - 11:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van Kirk, you are welcome to contact the store where you bought the yarn to check with them the possibilities of exchange the yarn. They will help you even per mail or telephone. Happy knitting!

19.12.2022 - 13:07

country flag Annette wrote:

Liebes Drops-Team, in der Anleitung wird mehrfach davon gesprochen, dass man die Länge ab dem Markieren messen soll. Ist dabei jeweils das untere oder das obere Ende des Markierers gemeint? Viele Grüße Annette

28.11.2022 - 14:37

DROPS Design answered:

Liebe Annette, messen Sie ab der Markierung, die Sie bei der letzten Runde mit Nadeln Nr 2,5 gestrickt haben, siehe: – die Arbeit wird nun ab diesem Markierer gemessen!. Viel Spaß beim stricken !

28.11.2022 - 16:46

country flag Sylvie Germain wrote:

Bonjour, est-ce qu’on doit mettre le fil double pour tout le tricot?

13.11.2022 - 00:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Germain, ce bonnet se tricote effectivement avec 2 fils: 1 fil Alpaca + 1 fil Kid-Silk - pensez à vérifier votre échantillon (21 m x 28 rangs en jersey avec ces 2 laines = 10 x 10 cm). Bon tricot!

14.11.2022 - 09:39

country flag Claudia wrote:

¿Me pueden explicar como hacer el cordon al final? Después de tejer 5 puntos, los deslizo, tejo de nuevo? A que se refiere con estiirar la lana ? Gracias!

16.07.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Hola Claudia, puedes ver el siguiente vídeo para entender mejor como se trabaja el cordón en I: https://www.garnstudio.com/video.php?id=57&lang=es

24.07.2022 - 17:05

country flag Rena wrote:

Hello. "Work in stockinette stitch without increases until piece measures 8-8-9 cm = 3 1/8"-3 1/8"-3 1/2" from marker for measurement.'" Does it mean 8 cm from the first marker for measure BEFORE increasing stitches or just right after I finish increase and start stockinette stitches on 168-176-184 stitches? Thank you!

10.02.2022 - 10:36

DROPS Design answered:

Dear Rena, you should measure these -8-9 cm = 3 1/8"-3 1/8"-3 1/2" from marker added after the folded edge to measure from, ie from where you start to work with needle size 3 MM/US2.5. Happy knitting!

10.02.2022 - 13:19

country flag Lucyfly wrote:

Bonjour, J’ai par erreur fait la bordure en 3, est que je peux faire la suite en 2,5? Puis 3 comme indiqué, qu’en pensez-vous ? Merci

17.01.2022 - 08:16

DROPS Design answered:

Bonjour Lucyfly, votre bordure risque d'être trop large si vous l'avez tricotée en 3, on ne fait que monter les mailles en 3 (pour éviter que le montage ne soit trop serré), puis on tricote la bordure en 2,5 pour qu'elle soit suffisamment serrée, et on reprend ensuite la 3 pour continuer le béret. Bon tricot!

17.01.2022 - 09:37

country flag Karen wrote:

Hi I'm at the stage now where I have 8cm from marker and ready to start decreasing my only problem is that I'm running out of wool I have a second ball I can use but is it possible to connect that second ball or what do you suggest when running low. I made a mistake at my first attempt so I had to throw away a small amount of wool.

11.12.2021 - 14:07

DROPS Design answered:

Dear Karen, you can watch this video to see how to join new yarn: https://www.garnstudio.com/video.php?id=490&lang=en Happy knitting!

11.12.2021 - 20:54

country flag Filiz Çelik wrote:

Hello thank you

25.10.2021 - 11:27

country flag Filiz Çelik wrote:

Hello thank you

25.10.2021 - 11:26

country flag Karen wrote:

I have a question on this section On next round knit yarn over twisted to avoid holes is this for every stitch or just one after the marker. Increase like this every other round 7 times in total vertically = 168 where do we get this 168 stitch count from? Work in stocking stitch without increases until piece measures 8-8-9 cm from marker for measurement which marker is the pattern talking about because I have just 7 in the pattern now

21.10.2021 - 00:41

DROPS Design answered:

Dear Karen, you cast on 112 sts and insert after the folded hem 8 markers; you then increase 1 stitch at each marker (= 8 sts increased) on every other round a total of 7 times (= 56 sts will be increased in total), so that you get: 112+56= 168 sts. After folding edge, you continue with circular needle size 3 mm and insert a marker on this round, this is the round you should measure from afterwards. Happy knitting!

21.10.2021 - 07:16