DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4422.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 225-33
DROPS Design: Mynstur sk-151
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur natur, 01

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9,5 umferðir á hæðina með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4422.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul/loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað 1. fastalykku. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 þræðir um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring með stuðlakrókum.

HÚFA:
Heklið 78-84 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja lykkju umerðina hringinn.
Heklið mynstur A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm, snúið stykkinu þannig að næsta umferð sé hekluð í gagnstæða átt. Það sem hingað til var rétta á stykki (þ.e.a.s. hlið með sýnilegum stuðlakrókum) eru nú að innanverðu á stykki og það er heklað í hring þannig að nú koma stuðlakrókarnir á gagnstæða hlið. Þetta er gert til að stuðlakrókarnir í byrjun á stykki eiga að koma á réttu á stykki þegar kanturinn er brotinn upp fyrir tvöfaldan kant þegar húfan er tilbúin.
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan frá umferð með ör í A.1 hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 25-27 cm, heklið A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 26-28 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja lykkju jafnframt því sem 2 og 2 fastalykkjur eru heklaðar saman – sjá ÚRTAKA (= 13-14 lykkjur færri) = 13-14 fastalykkjur.
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju.
Heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem 2 og 2 fastalykkjur eru heklaðar saman þar til eftir er 1-0 lykkja, heklið 1-0 fastalykkju í síðustu lykkju = 7-7 fastalykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel.
Húfan mælist alls 32-24 cm (= ca 22-24 cm með 10 cm uppábroti neðst niðri).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.12.2021
Leiðrétting: Búið að legga til útskýringu á hvernig fyrsta umferðin er hekluð

Mynstur

symbols = Umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjaðu við örina
symbols = Byrjið hér
symbols = 1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul frá réttu og frá hægri hlið um 1 stuðul/stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð (ekki er heklað í lykkjubogana heldur í kringum sjálfan stuðul/stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri)
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Ida wrote:

Hej.\\r\\nJeg forstår ikke hvordan jeg vender. Jeg har vendt vrangen ud og dernæst fortsat med at hækle fra højre mod venstre. men der danner sig en høj kant samtidig med at der er en kant efter arbejdet. Findes der mon en video der viser hvordan man vender, således at reliefmaskerne ligger på hver side?

02.04.2023 - 15:58

DROPS Design answered:

Hej Ida, du hækler reliefmaskerne fra retsiden, du finder en video med reliefmasker nederst i opskriften :)

13.04.2023 - 10:35

country flag Yos wrote:

"Als het werk 25-27 cm meet, haak dan A.2 over elke herhaling van A.1. " Ik snap het woord "over" niet in deze zin. Gewoon verder gaan met patroon A2 na 25-27 cm toch?

23.06.2022 - 22:26

DROPS Design answered:

Dag Yos,

Indedaad, na 25-27 ga je verder met patroon A.2. In de hoogte sluit patroon A.2 op A.1 aan. De eerste toer van patroon A.2 is de laatste toer van A.1, dus deze toer sla je over.

26.06.2022 - 10:01

country flag Thirza wrote:

Wanneer in het patroon worden er vasten gehaakt? Ik kan dit nergens vinden en zie dat er alleen maar stokjes worden gehaakt.\r\nOok in de legenda staan de vasten niet vermeld.

06.06.2022 - 12:27

DROPS Design answered:

Dag Thirza,

Op een gegeven moment staat in de beschrijving dat je één toer met 1 vaste in elke steek haakt. Dit is wanneer de muts bijna klaar is. Het reliëfpatroon heb je dan al gehaakt.

10.06.2022 - 22:09

country flag Simona wrote:

Ho provato il modello, ho avuto difficoltà a capire la maglia alta doppia in rilievo poiché non ho trovato chiara la descrizione

29.03.2022 - 15:31

country flag Francesca wrote:

Ciao! Volevo chiedere un'informazione su questo pattern: è normale che iniziando lavorando il bordo mi venga una circonferenza decisamente molto ampia? Oppure ho sbagliato e devo diminuire il numero di catenelle iniziale?

04.01.2022 - 15:07

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, se il suo campione corrisponde a quello indicato, può proseguire come descritto nelle spiegazioni. Buon lavoro!

04.01.2022 - 20:54

country flag Annet Jansen wrote:

In the Frosted Cobbles muts praat u over 2 soorten garens, maar ik begrijp niet waarom, omdat het 1 soort lijkt te zijn en ook in het patroon zie ik niet wanneer het andere garen gebruikt wordt. Kunt u daar wat over zeggen? Groet, Annet

30.12.2021 - 06:38

DROPS Design answered:

Dag Annet,

Je breit het gehele werkstuk met 2 draden, dus 1 draad van elke kwaliteit.

06.01.2022 - 10:27

country flag Judith Steacy wrote:

Pattern is worked in the round with relief stitches. What is a relief stitch?

11.12.2021 - 01:00

DROPS Design answered:

Dear Judith, this is a type of crochet stitch that gives relief to the garnment (hence the name). You can check how to work it in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=205&lang=en Happy crochetting!

11.12.2021 - 20:09

country flag Marlene Pedersen wrote:

Er der ikke en fejl i starten. Ifølge opskrift og diagram starter man med en række luftmasker. Derefter skal man gå til række 2 i diagram, da 1. række er hæklet. Men her skal man lave en reliefstangmaske om stangmasken i sidste række?? Som ikke eksisterer, da sidste række var luftmasker.

04.12.2021 - 16:16

DROPS Design answered:

Hei Malene. Oppskriften er oversendt design avd slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse. Burde nok ha stått "Hekle 1 omgang med 1 staver i hver maske" etter du har heklet de 3 luftmaskene, rett før A.1 skal hekles. mvh DROPS Design

07.12.2021 - 13:08

country flag Mayke wrote:

Hi, is it possible there is a mistake in the gauge swatch? It says (Dutch version) 8dc = 10cm, but I am really far from that stitch count. I think for a 4mm needle 8dc = 10cm seems odd, I need to roughly double the number of stitches. I also think that if 8dc = 10cm, and you start with a round of 78/84 st, the hat will become quite big...

18.10.2021 - 10:51

DROPS Design answered:

Dear Mayke, there was a mistake in the tension, it should have been 16 sts dc (US-English) = 10 cm, a correction will be added, thanks for your feedback. Happy crochetingn!

18.10.2021 - 16:15

country flag Louise Palmans wrote:

Voor deze band te maken heb ik de maat S/M gebruikt, maar ik merkte al rap dat het te smal was om over mijn hoofd te trekken. Ook toen ik L/XL probeerde had ik hetzelfde probleem. Hoe kan dit? Ik heb namelijk heel los gehaakt?

06.10.2021 - 22:33

DROPS Design answered:

Dag Louise,

Heb je een proeflapje gemaakt en de stekenverhouding gecontroleerd? Misschien is het nodig om een naald in een maat groter te gebruiken.

07.10.2021 - 10:16