DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

May Flowers Vest

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og með útsaumuðum blómum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-42
DROPS Design: Mynstur st-002
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL
Blómin mælast ca 4,5 til 5 cm á hæðina og ca 2,5 cm á breiddina

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 04, beige

Í blómin höfum við notað:
DROPS MERINO EKSTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 31, skógargrænn
50 g litur 40, dauf bleikur
50 g litur 32, dökk bleikur
50 g litur 33, bleikur
50 g litur 01, natur
50 g litur 16, ljós bleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 60 cm.

NÁL: Fyrir útsaum.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 7,7.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við handveg og V-hálsmáli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón.

Fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur (fækkað er um 2 lykkjur í fyrstu umferð og aukið er út um 1 lykkju í annarri umferð í A.3 = 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur (fækkað er um 2 lykkjur í fyrstu umferð og aukið er út um 1 lykkju í annarri umferð í A.4 = 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan er stykkið sett saman. Að lokum er kantur í handvegi prjónað í hring á hringprjóna og kantur í hálsmáli prjónað fram og til baka á hringprjóna. Þegar allt stykkið hefur verið prjónað til loka eru saumuð út blóm á framstykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 111-120-129-141-153-168 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig:
1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-15-16-18-18-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 97-105-113-123-135-147 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 5-5-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið þannig – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur eins og útskýrt er í A.2 í 4. hverri umferð 0-0-0-2-4-7 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju eins og útskýrt er í A.3/A.4 í 4. hverri umferð 8-10-10-9-8-6 sinnum (= 8-10-10-13-16-20 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið) = 71-75-79-83-87-91 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 19-21-22-24-25-27 lykkjur eftir á öxl.
Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 111-120-129-141-153-168 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-15-16-18-18-21 lykkjur jafnt yfir = 97-105-113-123-135-147 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið nú lykkjum fyrir handveg jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli – lestu þess vegna allan kaflann áður en þú prjónar.

HANDVEGUR:
Í byrjun á næstu 2 umferðum er fækkað um 5-5-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg. Síðan er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur eins og útskýrt er í A.2 í 4. hverri umferð 0-0-0-2-4-7 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju eins og útskýrt er í A.3/A.4 í 4. hverri umferð 8-10-10-9-8-6 sinnum = 8-10-10-13-16-20 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af miðjulykkju í umferð og hægri og vinstri öxl eru prjónaðar hvor fyrir sig til loka.
Hægri öxl:
Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsi) – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur eins og útskýrt er í A.2 í 4. hverri umferð 4-4-4-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju eins og útskýrt er í A.3 í 4. hverri umferð 8-8-9-9-10-10 sinnum = 16-16-17-17-18-18 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli.
Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 19-21-22-24-25-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.
Vinstri öxl:
Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsi) – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur eins og útskýrt er í A.2 í 4. hverri umferð 4-4-4-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju eins og útskýrt er í A.4 í 4. hverri umferð 8-8-9-9-10-10 sinnum = 16-16-17-17-18-18 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli.
Þegar allar úrtökur fyrir hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 19-21-22-24-25-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana með lykkjuspori. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið neðst í V-hálsmáli á framstykki og prjónið upp lykkjur frá réttu með hringprjón 3 og DROPS Soft Tweed þannig: Prjónið upp 159 til 192 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kringum allan kantinn í hálsi. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3.
Prjónið síðan mynstur A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – stillið mynstrið þannig að það byrjar og endar með fyrstu lykkju í A.1 innan við 1 kantlykkju garðaprjón, þannig að mynstrið byrji alveg eins í hvorri hlið.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Leggið hægri hluta af kanti í hálsmáli mitt að framan yfir vinstri hlutann, þannig að þeir skarist. Saumið fallega niður í ystu kantlykkju við hálsmál. Endurtakið alveg eins að innanverðu, þannig að vinstri hlutinn sé saumaður niður við hægri hlutann innan á stykkinu.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið við hliðarsaum undir ermi með hringprjón 3,5 og DROPS Soft Tweed og prjónið upp frá réttu ca 144 til 168 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kringum handveg.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 3½ til 4 cm.
Prjónið 1 umferð í mynstri eins og áður, en í hverja af neðstu 11-11-13-13-15-15 endurtekningum með A.1 á handveg (þ.e.a.s. fyrstu 5-5-6-6-7-7 endurtekningar í byrjun á umferð og síðustu 6-6-7-7-8-8 endurtekningar í lok umferðar), fækkið allar 2 lykkjur brugðið til 1 lykkja brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. Þetta er gert til að kantur í handvegi leggist fallega undir handveg.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

ÚTSAUMUR:
Nú eru saumuð út blóm neðst á framstykki. Staðsetjið blómin í línu þannig að neðri kantur á krónblöðum séu ca 2 cm yfir stroffkanti og það eru ca 8,5 – 9 cm á milli blóma.

BLÓM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Blómið mælist ca 4,5 til 5 cm á hæð og ca 2,5 cm á breidd.
Blómið samanstendur af 2 blöðum neðst, 1 stilk og sjálfu blóminu.
Fyrst er blaðið saumað út, síðan stilkurinn og sjálft blómið. Allt blómið er saumað út með keðjusaumi.

BLÖÐ:
Blöðin eru saumuð út með 1 þræði með litnum skógargræn og samanstendur af 2 keðjusaumum sem báðir byrja frá sama gati á neðsta punkti á blóminu.
Byrjaðu á að sauma út þannig:
SPOR 1: Saumaðu keðjusaum ca 2 cm og láttu sauminn snúa á ská upp og aðeins til hægri – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu.
SPOR 2: Saumaðu út seinni keðjusauminn út frá sama byrjunargati og fyrri saumur, þessi saumur á að snúa á ská upp og aðeins til vinstri. Blöðin eru tilbúin.

STILKUR:
Stilkurinn er saumaður út með 1 þræði með litnum skógargrænn og samanstendur af 2 snúnum keðjusaumum á hæðina, þar sem sá fyrri byrjar frá sama gati og byrjun á báðum blöðunum á blóminu.
Byrjaðu á að sauma út þannig:
Saumaðu einn snúinn keðjusaum ca 1,5 cm og láttu sauminn snúa beint upp á milli blaðanna tveggja – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu.
Saumaðu eitt spor til viðbótar á hæðina. Stilkurinn er tilbúinn. Klippið þráðinn frá og festið.

BLÓM:
Hvert blóm er saumað út með 2 þráðum og keðjusaumi í mismunandi litum. Dauf bleikur, dökk bleikur, bleikur, natur og ljós bleikur og samanstendur af 3 keðjusaumum sem allir byrja í sama gati og þar sem stilkurinn endaði.
Byrjaðu á að sauma út þannig:
SPOR 1: Saumaðu keðjusaum ca 1,5 cm og láttu sauminn snúa á ská upp og aðeins til hægri – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu.
SPOR 2: Saumaðu annan keðjusaum út frá sama byrjunargati og sá fyrri, þessi saumur á að snúa á ská upp og aðeins til vinstri.
SPOR 3: Saumaðu þriðja keðjusauminn út frá sama byrjunargati og fyrsti saumur, þessi saumur á að fara beint upp á milli hinna tveggja saumana. Blómið er tilbúið. Klippið þráðinn frá og festið.

Saumaðu eins mörg blóm og þig langar til og skiptu litunum að eigin ósk.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið frá röngu: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = Keðjusaumur – snúinn mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að keðjusaumurinn byrji.
MYND 2: Stingdu toppnum nálinni aftur niður í sama gat og þráðurinn kom frá og stingdu toppnum á nálinni aftur upp í framhliðina ca 2 cm lengra fram – láttu þráðinn liggja undir toppnum á nálinni.
MYND 3: Taktu nú bogann upp á milli fingranna, snúðu boganum í hring 2-3 sinnum áður en hann er lagður aftur undir toppinn á nálinni.
MYND 4: Dragðu nú þráðinn aftur varlega þannig að sporið dragist fallega saman.
Ef þig langar til að hafa fleiri keðjusauma á hæðina, endurtaktu þá MYND 2 - 4.
MYND 5: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 lykkju framan við bogann og dragðu þráðinn alveg í gegnum stykkið. Festu þræðina frá röngu.
MYND 6. Sýnir tilbúinn snúinn keðjusaum.
symbols = Keðjusaumur - einfaldur mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að keðjusaumurinn byrji.
MYND 2: Stingdu nálinni aftur niður í sama gat og þráðurinn kom frá og stingdu toppnum á nálinni aftur upp í framhliðina ca 2 cm lengra fram – láttu þráðinn liggja undir toppnum á nálinni.
MYND 3: Dragðu nú nálina í gegnum stykkið og þá myndast lykkja með þræðinum sem kemur upp í miðju á lykkju.
MYND 4: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 lykkju framan við bogann og dragðu nálina í gegnum stykkið.
MYND 5: Keðjusaumurinn er nú tilbúinn, ef þú vilt hafa fleiri spor þá er hægt að endurtaka MYND 1 - 5. Festu þráðinn frá röngu.
MYND 6: Hér sýnum við keðjusaum sem snýr lóðrétt, lárétt og frá hlið og nokkrir byrja frá sama gati og aðrir byrja frá sitt hvoru gatinu.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

May Flowers Vest

Ola, Poland

May Flowers Vest

Roos, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Eyssartier Marie-noelle wrote:

Bonjour Que veut dire ce qui suit Pour les diminutions-2 diminuer 0-0-0-2-4-7 fois au total 2 comme indiqué dans A.3/A.4 tous les 4 rangs 8-10-10.-9-8-6 fois (on diminue 8-10-10-13-16-20 mailles de chaque côté) sachant que je fais une taille L S'il vous plaît merci

17.04.2024 - 16:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, les indications sont données dans l'ordre des tailles, autrement dit la taille L est la 3ème taille et vous allez donc diminuer 10 fois tous les 4 rangs comme indiqué dans A.3 / A.4 (lorsqu'il y a un 0, la taille n'est pas concernée, donc on ne diminue ici pas tous les 2 rangs mais directement tous les 4 rangs). Vous diminuez donc 10 fois de chaque côté = vous diminuez 20 mailles, il y a avait 113 mailles - 7 mailles rabattues de chaque côté - 10 mailles diminuées = 113-14-20= il reste 79 mailles. Bon tricot!

18.04.2024 - 07:57

country flag Eyssartier Marie-noelle wrote:

Bonjour Je fait se pull en taille L J'ai un problème pour les diminutions emmanchures et encolure Je ne comprends pas par rapport au diagramme Pourriez-vous m'expliquer s'il vous plaît merci

15.04.2024 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, les diminutions se font comme indiqué sous DIMINUTIONS-2, autrement dit, comme dans les diagrammes A.2 (on diminue 2 mailles) ou A.3/A.4 (on diminue 2 mailles sur l'endroit et on fait 1 jeté au rang suivant sur l'envers, ainsi on ne diminue qu'une seule maille). Bon tricot!

16.04.2024 - 07:54

country flag CR wrote:

Hi I'm working the back panel for a Large and I have a question about Decrease tip 2- Is my understanding correct that I should only be working the decrease 1 stitch according to A.3/A.4 and not the decrease 2 stitches, because my size isn't included in the instructions for that decrease

04.04.2024 - 23:28

DROPS Design answered:

Dear CR, yes, when the pattern says "so something 0 times", you should go directly to the next instruction (so no decrease as in A.2, just the other patterns in this case). Happy Knitting!

05.04.2024 - 02:00

country flag Ghita Gustafsson wrote:

Jag stickar med angivna stickor och har 20 m/10 cm och mitt arbete mäter totalt 52 cm inte 48 som det står. Vad gör jag?

22.03.2024 - 18:03

DROPS Design answered:

Hej igen, har du taget ind til 97 masker. Hvis du har 20 masker på 10 cm så får du 97m/20m=48 cm - prøv med ½ nummer mindre :)

03.04.2024 - 14:08

country flag Ghita Gustafsson wrote:

Hej undrar på diagram a3 och a4 ska de användas på vä resp hö sida? Och börjar diagrammen ner till höger . Är det bara räta varv angivna i mönstret.

22.03.2024 - 15:21

DROPS Design answered:

Hej Ghita, ja når du strikker fra retsiden, starter diagrammet i nederste højre hjørne. Næste pind strikkes fra vrangen også ifølge diagrammet og starter i venstre side af diagrammet :)

03.04.2024 - 14:04

country flag Marie-noelle Eyssartier wrote:

Bonjour le modèle me plait beaucoup quel est le fil alternatif qui passe dans la machine à laver s'il vous plait merci dans l'attente je vous remercie de votre compréhension Mme EYSSARTIER

12.03.2024 - 07:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, vous pouvez utiliser n'importe quelle autre laine du groupe de fils B, traitée "Superwash" ou bien un coton, découvrez-les ici . Bon tricot!

12.03.2024 - 08:08

country flag Christine Delany wrote:

When stitching the neck edge , the pattern refers to picking up a number of stitches that can be divisible by 3 . However the pattern also refers to including an edge stitch on both sides . This would suggest a need for an extra two stitches ie 161 instead of a 159 ? Could you please confirm . Thank you

04.03.2024 - 08:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Delany, you need a number of sts divisible by 3 to get: 1 edge stitch, repeat the 3 sts in A.1 until 2 sts remain, work the first stitch in A.1 (so that pattern is symmetrical on both sides) and finish with 1 edge stitch. Happy knitting!

04.03.2024 - 10:04

country flag Inger Härmark wrote:

Jag har börjat sticka denna väst i storlek L. När jag stickar resåren som jag tolkar mönstret och diagrammet blir det en rät (vriden) maska både i början och i slutet av varvet vilket gör att det blir två sådana maskor intill varandra i sidsömmen. Har jag tolkat det rätt eller fel?

28.01.2024 - 14:40

DROPS Design answered:

Hei Inger. Du har tolket det riktig, i denne oppskriften blir det 2 vridd rett (fra retten) i hver side. mvh DROPS Design

05.02.2024 - 11:52

country flag Zuzana wrote:

Ich würde das Teil gerne in Runden stricken, um nicht zusammen nähen müssen. Wie gehen die Abnahmen beim V Ausschnitt, wenn in Runden gestrickt wird? Danke

20.11.2023 - 14:57

DROPS Design answered:

Dear Zuzana, Rumpfteil können Sie bis Armlöcher in Runden stricken, dann sollen Sie die Arbeit teilen und Rücken- / Vorderteil in Reihen separat stricken. V-Halsausschnitt wird dann auch in Reihen gestrickt werden, da die Arbeit schon geteilt wurde. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2023 - 08:46

country flag Harriet Gill wrote:

Hi there, please could you clarify if, when knitting the neck band, which needles to use and how long these should be. In the Materials section it mentions needles 3.5 and 4.5 and their required length but it doesn't mention any other needles. I am about to buy all the materials for this project and want to make sure I have everything I need. Thank you so much for your help. Best wishes Harriet

07.10.2023 - 19:10

DROPS Design answered:

Dear Harriet, it's a typo in the pattern; it should be the 3.5mm needle, as the rest of rib sections in the pattern. We will correct them as soon as possible. Happy knitting!

08.10.2023 - 22:36