DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moon Trail

Heklað poncho úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-18
DROPS Design: Mynstur l-159
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-800 g litur 01, hvítur

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-750-900 g litur 16, hvítur

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

FYLGIHLUTIR: 2 litlar tréperlur (ca 1 cm að þvermáli) fyrir skúfana.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7986.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Mynsturteikning A.6 sýnir hvernig flíkin lítur út þegar flíkin liggur flöt.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull/þríbrugðinn stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þessar 3 loftlykkjur jafngilda 1 stuðli, en kemur ekki í stað fyrsta stuðul) – endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Þessi stuðull er auka lykkja til að byrja og enda umferðina með.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Þessi tilfærsla veldur því að lykkjufjöldinn jafnast ekki út til yfir lykkjur frá byrjun fram að fyrsta horni, en ef óskað er eftir því að fækka lykkjum eða auka út yfir þessar lykkjur verður að stilla byrjun á umferð þannig að mynstureiningin gangi jafnt upp fram að fyrsta horni.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju að neðan.
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 1 stuðul í fyrstu lykkju að neðan, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið næsta stuðul í næstu lykkju fyrir neðan, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá vinstri öxl við hálsmál og út. Mynsturteikning A.6 sýnir flíkina flata.

PONCHO:
Heklið 161-177-185 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með Bomull-Lin eða Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð.
Heklið síðan fyrstu umferð þannig: Heklið 1 loftlykkju (þessi loftlykkja jafngildir 1 fastalykkju, en loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. þetta er auka lykkja til að byrja og enda umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 160-176-184 fastalykkjur + 1 loftlykkja.

HEKLIÐ A.1 ÞANNIG:
Sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 og byrjið með 3 loftlykkjur, heklið síðan A.1a yfir fyrstu 38-42-44 fastalykkjur (= 19-21-22 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.1b yfir næstu fastalykkju (= horn), heklið A.1a yfir næstu 2 fastalykkjur, A.1b yfir næstu fastalykkju (= horn), heklið A.1a yfir næstu 76-84-88 fastalykkjur, A.1b yfir næstu fastalykkjur (= horn), A.1a yfir næstu 2 fastalykkjur, A.1b yfir næstu fastalykkju (= horn) og A.1a yfir þær 38-42-44 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 4 horn með 100-108-112 stuðlum á milli hverra horna á langhliðum og 26 stuðlar á milli horna á skammhliðum.

HEKLIÐ A.2 þannig:
Heklið A.2a fram að fyrsta horni, A.2b um hornið, A.2a fram að næsta horni, A.2b um hornið, A.2a fram að næsta horni, A.2b um hornið, A.2a fram að næsta horni, A.2b um hornið og A.2a út umferðin – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1!
Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknir út 4 stuðlar hvoru megin við 4 hornin, þ.e.a.s. það eru 4 horn með 108-116-120 stuðlum meðfram langhliðum og 34 stuðlar meðfram skammhliðum. Endurtakið A.2 alls 2-3-4 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig að það verða 4 horn með 117-132-147 stuðlum meðfram hvorri langhlið og 42-52-57 stuðlar meðfram hvorri skammhlið = alls 318-368-408 stuðlar í umferð + 4 horn – þ.e.a.s. sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og jafnið lykkjufjöldann út eins og útskýrt er að neðan:
S/M: Aukið út 1 lykkju meðfram hvorri langhlið.
L/XL: Aukið út 2 lykkjur meðfram hvorri skammhlið.
XXL/XXXL: Aukið út 3 lykkjur meðfram hvorri langhlið og fækkið um 1 lykkju meðfram hvorri skammhlið.

HEKLIÐ A.3 ÞANNIG:
Færið nú byrjun á umferð um 3-1-2 lykkjur til vinstri til að mynstureiningarnar gangi jafnt upp, þ.e.a.s. heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af fyrstu 3-1-2 lykkjum og byrjið umferð með 3 loftlykkjur eins og áður – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2. Heklið síðan A.3a fram að fyrsta horni (= 11-13-14 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.3b um hornið (og 2 næstu lykkjur), A.3a fram að næsta horni (= 8-10-11 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.3b um hornið (og 2 næstu lykkjur), A.3a fram að næsta horni (= 23-26-29 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.3b um hornið (og 2 næstu lykkjur), A.3a fram að næsta horni (= 8-10-11 mynstureiningar með 5 lykkjum), A.3b um hornið (og 2 næstu lykkjur) og A.3a út umferðina (= 12-13-15 mynstureiningar með 5 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig að það verða 4 horn með 156-174-186 stuðlum meðfram hvorri langhlið og 84-90-96 stuðlum meðfram hvorri skammhlið = alls 480-528-564 stuðlar í umferð + 4 horn – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA og jafnið lykkjufjöldann út eins og útskýrt er að neðan:
S/M: Fækkið um 2 lykkjur meðfram hvorri langhlið og aukið út 1 lykkju meðfram hvorri skammhlið.
L/XL: Aukið út um 1 lykkju meðfram hvorri langhlið og fækkið um 3 lykkjur meðfram hvorri skammhlið.
XXL/XXXL: Fækkið um 2 lykkjur meðfram hvorri langhlið og fækkið um 2 lykkjur meðfram hvorri skammhlið.

HEKLIÐ A.4 ÞANNIG:
Færið nú byrjun á umferð um 3-1-0 lykkjur til vinstri til að mynstureiningarnar gangi jafnt upp, þ.e.a.s. heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af fyrstu 3-1-0 lykkjum og byrjið umferð með 3 loftlykkjur eins og áður – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2. Heklið síðan A.4a fram að fyrsta horni (= 12-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.4b um hornið, A.4a fram að næsta horni (= 26-29-31 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.4b um hornið, A.4a út umferðina (= 14-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig að það verða 4 horn með 168-192-204 stuðlum meðfram hvorri langhlið og 96-108-108 stuðlum meðfram hvorri skammhlið – þ.e.a.s. aukið út um 0-6-6 lykkjur meðfram hvorri langhlið og 0-6-0 lykkjur meðfram hvorri skammhlið – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = alls 528-600-624 stuðlar í umferð + 4 horn.

HEKLIÐ A.5 ÞANNIG:
Færið nú byrjun á umferð til vinstri, heklið alveg eins og í byrjun á A.3 og A.4, það eiga að vera 78-90-90 lykkjur á undan fyrsta horni + byrjunarlykkja. Byrjið umferð með 3 loftlykkjum eins og áður, heklið A.5a yfir fyrstu 6 lykkjur, A.5b fram að horni (= 6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5c um hornið, A.5b fram að næsta horni (= 8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5c um horið, A.5b fram að næsta horni (= 14-16-17 mynstureiningar með 12 lykkjum, A.5c um hornið, A.5b fram að næsta horni (= 8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5c um hornið, A.5b yfir næstu 84-96-108 lykkjur (= 7-8-9 mynstureiningar með 12 lykkjum) og endið með A.5d.
Klippið þræðina frá og festið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í lokin í kringum hálsmál þannig: Byrjið í lykkjunni á öxl þar sem umferðina byrjaði áður, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.

TVINNUÐ SNÚRA MEÐ SKÚFUM:
Klippið 2 þræði Bomull-Lin eða Paris ca 3,5 til 4 metra. Tvinnið þræðina saman þangað til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur. Þræðið tréperlu inn á snúruna í hvorn enda og hnýtið síðan hnút í hvorn enda þannig að perlan haldist stöðug.
Byrjið mitt framan á poncho og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð næst kanti í hálsi. Stillið e.t.v. lengdina á snúrunni.
Klippið 24 þræði Bomull-Lin eða Paris ca 18 cm. Þræðið þá í gegnum annan endann á tvinnuðu snúrunni og skiptið þráðunum upp þannig að þeir liggi jafnir. Vefjið þræði utan um skúfinn og herðið að og hnýtið hnút. Endurtakið í hinum endanum á snúrunni.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan eða 1 fastalykkja um loftlykkjubogann
symbols = 1 fastalykkja á milli 2 tvíbrugðna stuðlahópa
symbols = heklið keðjulykkju að miðju á loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan eða 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga

symbols = 3 loftlykkjur (hornbogi)
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 7 loftlykkjur
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð – byrjið á næstu umferð
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjubogann

symbols = 1 þríbrugðinn stuðull um loftlykkjubogann

symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjubogann á undan stuðlahóp, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um loftlykkjubogann eftir stuðlahópinn og dragið síðan uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 2 næstu lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, 4 loftlykkjur
symbols = útaukning/úrtökuumferð
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Helen DeGregorio wrote:

I have questions and a lot of times if I read the questions or comments I get my question answered but it’s always seems to be in a different language and at the very top I always select English US terms which I don’t speak any other language, so that’s what I would pick I have a hard time reading your patterns. I love your patterns, but I have not ever made one because I can’t seem to understand your patterns. Can you give me some help here in English please

08.03.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs DeGregorio, you will find at the bottom of the pattern page some lessons explaining for ex how to read a shematic drawing (to find the best matching size), how to crochet diagram etc... Do not hesitate to read them and feel free to ask your question here (in your language). Happy crocheting!

09.03.2023 - 08:15

country flag Annika wrote:

Liebes Drops Team . Ich verzweifle an dem Muster A.3aIn der Anleitung schreibt ihr das A.3a bis zur nächsten Ecke aus einem Rapport von 5 Maschen besteht.Aber laut dem Diagramm sind es doch 6 Maschen (3 Stäbchen und 3Luftmaschen).Habe ich da einen Denkfehler? Liebe Grüße Annika

16.02.2023 - 06:19

DROPS Design answered:

Liebe Annika, A.3a wird über 5 Maschen gehäkelt (= 1 Stb in jede der nächsten 3 Stb, 3 Lm, 2 Stb überspringen) aber wird ja 6 Maschen sein. Viel Spaß beim häkeln!

16.02.2023 - 13:46

country flag Ann-Charlotte Söderberg wrote:

Hej, när jag läser diagrammet så tolkar jag det som att "Läs VIRKTIPS-1 och börja med 3 luftmaskor, virka sedan A.1a över de första 38-42-44 fastmaskorna (= 19-21-22 rapporter à 2 maskor)," är då första varvet med 1 stolpe och 1 lm. Men kollar man sedan på rapport A2a så är det varvet som redan är gjort 2 stolpar. Så, är första varvet 1 stolpe, 1 lm eller 2 stolpar?

11.01.2022 - 10:39

DROPS Design answered:

Hei Ann-Charlotte. 1. omgang i A.2a er 1 stav + 1 luftmaske. De 2 stavene du ser mellom A.1a/A.1b og A.2a/A.2b har en stjerne (*) som er forklart i diagramforklaringen at denne omgangen allerede er heklet - start på neste omgang. Altså du avslutter A.1a med 2 staver og starter A.2a med 1 stav+1 luftmaske. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 08:38

country flag Marie Couvreur wrote:

Bonjour et merci pour ce beau patron. Les mesures données sur le schéma du poncho à plat sont bien en inches et non en centimètres ? Sur une taille S, les 12 premiers sont points A1 et A2, les 10 suivants sont A3, les 4 en A5 et les 8 en A6 ? Merci de vos réponses. Marie

15.09.2021 - 09:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Couvreur, toutes les mesures dans les explications françaises ainsi que dans les schémas, sont indiquées en centimètres. La répartition des points se fait effectivement de cette façon, mais suivez bien les explications écrites car le nombre de mailles doit parfois être ajusté (on augmente ou on diminue des mailles à intervalles réguliers). Bon crochet!

15.09.2021 - 15:44

country flag I Ten Heuw wrote:

Ik ben een beginnende haakster en wil deze Moon trial haken. Is er een uitgeschreven versie van de toeren of alleen een telpatroon. Ondanks uren zoeken op internet snap ik niets van A1.a en A1.b etc.

03.05.2021 - 07:16

DROPS Design answered:

Dag I Ten Heuw,

Helaas hebben we geen uitgeschreven versie van de telpatronen. Misschien heb je wat aan deze uitleg?

05.05.2021 - 14:06

country flag Rebecca Gibbs wrote:

When isn’t a poncho a summertime Winner, especially one as heavenly as this one. This is truly eye catching. Thank you for the beautiful Breathtaking Pattern 💖

10.03.2021 - 23:35

country flag Libertad wrote:

Fino calado, prenda muy fresca

10.01.2021 - 11:54

country flag Karina wrote:

Beach poncho

08.01.2021 - 01:04

country flag Marioli wrote:

Una prenda diferente y atrevida

07.01.2021 - 22:56

country flag Mimi M Routh wrote:

Virtual hugs for this sweet model. I'm moving to lower altitude, no snow, so I will make this poncho.

07.01.2021 - 19:52