DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Peaches and Cream Jacket

Prjónuð vafninspeysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-8
DROPS Design: Mynstur as-149
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200 g litur 20, bleikur sandur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um hálsmál að framan):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat – auka á út á eftir síðustu sléttprjónuðu lykkjunni á undan A.1 og á undan fyrstu sléttprjónuðu lykkjunni á eftir A.2. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem auka á út/fækka yfir (t.d. 18 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 2,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca hver og önnur hver lykkja og önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig, ofan frá og niður. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir snúru. Handvegurinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjurnar. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjurnar í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 3 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið inn hægri og vinstri öxl á sama hringprjón þannig að 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmái verða mitt í umferð = 60-62-62-64-66-68 lykkjur.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Prjónið mynstur frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 16-16-16-16-16-16 lykkjur, garðaprjón yfir næstu 22-24-24-26-28-30 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 16-16-16-16-16-16 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir lykkjurnar fyrir hálsmáli. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð, alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti.

Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm og 12-13-14-15-16-17 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið jafnframt út um 8-8-9-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 78-84-93-102-114-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 4-4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 15 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og sléttprjón fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli á undan A.1 (séð frá réttu) – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) 4 sinnum í öllum stærðum, síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 11-12-11-10-10-10 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið er út innan við 3 lykkjur garðaprjón við handveg í byrjun á umferð (séð frá réttu). Þegar útaukningu fyrir handveg er lokið (auknar hafa verið út 2-4-8-11-15-19 lykkjur fyrir handveg) mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg.
Haldið áfram eins og áður með A.1 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjóni, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.1 við miðju að framan (útaukning heldur áfram eins og áður).
Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm. Þegar allar útaukningar við miðju að framan hafa verið gerðar til loka, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til útaukningu í hlið er lokið.
Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka, eru 52-55-59-63-68-73 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg. Í næstu umferð eru auknar út 6-9-8-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 15 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir síðustu 15 lykkjurnar (stroffið á að ganga jafnt upp með A.1).
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.2 (= 15 lykkjur), 4-4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón við handveg. Haldið svona áfram með mynstur og sléttprjón fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli á eftir A.1 (séð frá réttu) – munið eftir ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í annarri hverri umferð 4 sinnum í öllum stærðum, síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 11-12-11-10-10-10 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út fyrir handveg alveg eins og á bakstykki og hægra framstykki, þ.e.a.s. aukið er út innan við 3 lykkjur garðaprjón við handveg í lok á umferð (séð frá réttu). Þegar útaukningu fyrir handveg er lokið (auknar hafa verið út 2-4-8-11-15-19 lykkjur fyrir handveg) mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg.
Haldið áfram eins og áður með A.2 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjóni, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.2 við miðju að framan (útaukningin heldur áfram eins og áður).
Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm.
Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka eru 52-55-59-63-68-73 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg. Í næstu umferð eru auknar út 6-9-8-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: A.2 yfir fyrstu 15 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

ERMI:
Fitjið upp 20-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-8-9-8-8-8 lykkjur jafnt yfir (en ekki er aukið út yfir ystu lykkju í hvorri hlið) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 27-28-29-30-30-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hverja af næstu 25-26-27-28-28-28 lykkjum (þ.e.a.s. prjónið bæði í fremri og aftari lykkjubogann), 1 lykkja slétt = 52-54-56-58-58-58 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir handveg og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-3-6 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 88-92-96-100-104-110 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA -2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 3-3-4-4-5-6 sinnum = 82-86-88-92-94-98 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-37-37-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 51-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-45-46-46-47-47 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op í hvorri hlið til að þræða snúruna í gegn – opin eru staðsett ca 8 cm frá neðri kanti og 2½-3 cm upp að handveg.
Saumið ermar við fram- og bakstykki með því að leggja inn ermarnar undir kant í garðaprjóni meðfram handvegi og saumið lítil spor frá réttu (það á ekki að vera laus kantur þegar saumað er og saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, þannig að kantur í garðaprjóni liggur fallega utan á ermi).

SNÚRA:
HÆGRA FRAMSTYKKI AÐ FRAMAN:
Byrjið með prjón 4 og Brushed Alpaca Silk og prjónið upp 7 lykkjur frá réttu meðfram hægra framstykki ca 8 cm frá affellingarkanti neðst. Prjónið fyrstu umferð á snúru frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið þar til snúran mælist ca 84 til 94 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI AÐ FRAMAN:
Byrjið með prjón 4 og Brushed Alpaca Silk og prjónið upp 7 lykkjur frá réttu meðfram vinstra framstykki ca 8 cm frá affellingarkanti neðst. Prjónið fyrstu umferð á snúru frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið þar til snúran mælist ca 40 cm. Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Lise wrote:

Ermer: Det står at eg skal legge opp 3 masker i kvar ende, på kvar pinne. Og etterkvart 2 masker, deretter 1 maske i kvar ende. Meinast det på kvar rettpinne og kun det, eller meinast det både på rett- og vrangpinner?

16.09.2022 - 14:00

DROPS Design answered:

Hei Lise. Det skal legges opp på hver pinne (på slutten av hver pinne), både fra retten og fra vrangen. mvh DROPS Design

19.09.2022 - 09:55

country flag Ulrikke wrote:

Hi, Does the recipe knit with two threads of Brushed alpaca silk or is it only one thread?

24.10.2021 - 11:23

DROPS Design answered:

Dear Ulrikke, this is knitted with only one thread of Brushed Alpaca Silk. Happy knitting!

24.10.2021 - 12:05

country flag Liz wrote:

Good morning, I am struggling to understand where I need to carry on increasing, "Continue as before with A.1 towards mid front, increase for neck line and stocking stitch but over the outermost 6 stitches towards the side work 2 ridges (i.e. this is done on the next 4 rows)." Sorry if i am being a bit thick, but can you explain which are the outer most 6sts? Thank you

13.10.2021 - 09:42

DROPS Design answered:

Dear Liz, this means that for the next 4 rows you will have to work as before over all stiches but knit the last 6 sts from RS/first 6 stitches from WS (= towards armhole/side). Can this help?

13.10.2021 - 14:02

country flag Landy wrote:

Bonjour, est ce que ce modèle se réalise avec un seul fil en alpaca silk ou 2 fils? merci

17.09.2021 - 17:21

DROPS Design answered:

Bonjour Landy, ce modèle se réalise avec un seul fil en Alpaca Silk.

19.09.2021 - 22:35

country flag Ilona wrote:

Ben ik de enige die de patroonuitleg ingewikkeld vind?

01.09.2021 - 16:34

country flag Salla wrote:

Translated into Finnish please

27.04.2021 - 11:25

country flag Simona wrote:

Si può realizzare con lana mohair?

10.03.2021 - 22:37

country flag Logal wrote:

J'aime ce modèle j'attends les explications avec impatience

15.02.2021 - 13:12

country flag Emilie wrote:

Cœur de danseuse

15.01.2021 - 13:48

country flag Helene wrote:

"Rose petals"

11.01.2021 - 22:53