DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Easy Twist

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-36
DROPS Design: Mynstur w-829
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-700-750-800 g litur 59, bleikvínrauður

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermar í stærð XL-XXL-XXXL):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónaðar í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-76-80-84-88-88 lykkjur á hringprjóna 4,5, með Paris. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff frá þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út jafnt yfir og það eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Prjónið þannig: 8 lykkjur slétt og aukið út 1-1-1-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1 (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, A.1 yfir næstu 24 lykkjur (þ.e.a.s. sléttar lykkjur halda áfram yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki, 12-12-16-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið út 6-6-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, A.1 yfir næstu 24 lykkjur (þ.e.a.s. sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki, 8 lykkjur sléttprjón og aukið út 1-1-1-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 90-90-90-98-106-106 lykkjur.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir 45-45-45-49-53-53 lykkjur (= mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er nú prjónað með A.2 yfir lykkjur í A.1 (27-27-27-29-29-29 lykkjur) og sléttprjón yfir lykkjur á framstykki og bakstykki.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.2 er endurtekið á hæðina.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í hverri umferð 10-10-12-12-12-12 sinnum (= 130-130-138-146-154-154 lykkjur).

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið nú 2 af prjónamerkjunum og setjið 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig:
Látið 1. prjónamerkið vera áfram í stykkinu, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur af A.2, setjið 2. prjónamerki, teljið 1 lykkju í A.2 (= mitt ofan á öxl), setjið 3. prjónamerkið, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur í A.2, setjið 4. prjónamerkið, látið næsta prjónamerki vera áfram í stykkinu (þ.e.a.s. á undan næsta A.2 = 5. prjónamerki), teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur í A.2, setjið 6. prjónamerkið, teljið 1 lykkju í A.2, setjið 7. prjónamerkið, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur og setjið 8. prjónamerki.
Í næstu umferð er haldið áfram með mynstur eins og áður og aukið er út þannig:
Aukið út um 1 lykkju á undan 1., 3., 5. og 7. prjónamerki og 1 lykkju á eftir 2., 4., 6. og 8. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri alls).
Í næstu umferð er aukið út á undan 1. og 5. prjónamerki og á eftir 4. og 8. prjónamerki (= alls 4 lykkjur auknar út).
Endurtakið þessar tvær umferðir, aukið út til skiptis 8 lykkjur og 4 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, þ.e.a.s. það verða 2 lykkjur fleiri á milli gatamynstra í hverri einingu A.2 í hvert skipti sem aukið er út.
Aukið út fyrir fram- og bakstykki í hverri umferð og ermum í annarri hverri umferð.
Aukið út fyrir fram- og bakstykki alls 6-6-8-8-10-10 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið hefur verið út alls 16-16-20-20-22-22 sinnum fyrir fram- og bakstykki frá kanti í hálsi) og alls 3-3-4-4-5-5 sinnum fyrir ermi = 166-166-186-194-214-214 lykkjur.
Stykkið mælist ca 8-8-10-10-11-11 cm frá prjónamerki.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 eins og áður.
Haldið áfram að auka út á eftir 2. og 6. prjónamerki og á undan 3. og 7. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-14-16 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. það hefur verið aukið út alls 13-15-17-18-19-21 sinnum á ermi) = 206-214-238-250-270-278 lykkjur.
Stykkið mælist ca 18-20-23-24-25-27 cm. Prjónið e.t.v. þar til stykkið mælist 18-20-23-24-25-27 cm (nú eru eftir ca 3-3-2-3-4-4 cm).
Aukið síðan út í hverri umferð alls 6-6-4-6-8-8 sinnum = 230-238-254-274-302-310 lykkjur.
Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki í hálsi.

Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 25-25-29-30-34-34 lykkjur sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 41-45-45-51-57-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-14 lykkjur undir ermi, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, 50-50-58-60-68-68 lykkjur sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-45-45-51-57-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-14 lykkjur undir ermi, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, 25-25-29-30-34-34 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-168-184-196-212-216 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri eins og áður. Lykkjurnar undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 22 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá röngu = 176-176-192-204-220-224 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 41-45-45-51-57-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-55-55-63-69-75 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Í stærð XL-XXL-XXXL er lykkjum fækkað þannig:

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 12-12-14 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Þegar ermin mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-10-5 cm millibili alls 1-3-5 sinnum = 61-63-65 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 51-55-55-61-63-65 lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 39-37-36-34-33-31 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru ca 3 cm að loka máli).
Í næstu umferð eru auknar út 13-13-13-11-13-11 lykkjur jafnt yfir = 64-68-68-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4,5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 3 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt

symbols = prjónstefna

symbols = útaukning á axlarsæti

symbols = útaukning á berustykki

symbols = útaukning á ermum
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Gigi wrote:

I have worked the pattern successfully until the sleeve increase section. I assume there are no more increases made on the front and back while still increasing the sleeves in this section. While doing this for the requisite 12 more times, I am left with only 186 stitches not 214 as stated in the pattern. I’m not sure what I am doing incorrectly. Please help.

07.09.2023 - 22:42

DROPS Design answered:

Dear Gigi, exact you should now increase only on sleeve (= 4 sts increased on each increase round), increase 2 sts on each sleeve a total of 12 times on every other round = 48 sts are increased in total + 166 = 214 sts. Hope it can help. Happy knitting!

08.09.2023 - 08:13

country flag Paulette Pol wrote:

"augmenter 8 mailles à intervalles réguliers suivant sur l'envers" sur la fin du dos/devant, ça revient, si j'ai bien compris à passer de 2 à 3 mailles envers sur chacun des tronçons en mailles envers. Ai-je tout bon ou est-ce autre chose? Merci de me rassurer et surtout merci de votre patience devant nos questions parfois un peu "nunuches".

09.02.2023 - 03:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pol, en fait, vous allez répartir ces 8 augmentations sur le tour entier (pas seulement dans les mailles envers, mais bien sur tout le tour), il s'agit ici d'une petite erreur que je vais transmettre de ce pas à nos stylistes pour correction. Merci de l'avoir relevée (et j'en ai profité pour ajouter le mot manquant). Bon tricot!

09.02.2023 - 09:56

country flag Nella Forsius wrote:

Hei, haluaisin vielä "täydentää"kysymystäni merkkilangoista.. . Tuleeko siis ( satulaolkapään lisäykset mallissa 221/36) jokaisen merkkilangan kohdalla aina lisätyn silmukan jälkeen? ystävällisesti Nella Forsius

12.09.2022 - 15:25

country flag Nella Forsius wrote:

HEI, siirtyykö merkkilanka kun lisätään satulaolkapääSilmukat?

10.09.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Hei, merkkilanka pysyy aina samassa kohdassa.

22.09.2022 - 16:51

country flag Monika wrote:

Witam, DODAWANIE OCZEK NA RAMIONA /RĘKAWY SADDLE SHOULDER. Robię Sobie rozmiar. Mam jeszce pytanko, jak mam dodać dziesięć razy oczka na przód I tył a w tym samym czasie a2 wynosi tylko 8 rzędów na wysokość..? Dziękuję

27.07.2022 - 09:40

DROPS Design answered:

Witaj, schemat A.2 jest powtarzany na całej długości swetra, więc przerabiasz go od początku (od prawego dolnego rogu schematu). Pozdrawiamy!

27.07.2022 - 10:55

country flag Monika wrote:

Witam, mam pytanie. "DODAWANIE OCZEK NA RAMIONA /RĘKAWY SADDLE SHOULDER" "Dalej przerabiać tak samo i dodawać oczka w taki sam sposób 10-10-12-12-12-12 razy w każdym okrążeniu" Czyli dodaje w każdym czy jakby tylko co drugim, jakby tylko podczas okrążenia w którym robię narzuty przy A2? Dziękuję

26.07.2022 - 13:42

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, NA RAMIONA /RĘKAWY SADDLE SHOULDER dodajesz 1 oczko PRZED 1-szym i 3-cim markerem i 1 oczko ZA 2-gim i 4-tym markerem (dodane 4 oczka w okrążeniu). Wykonujesz to samo 10-10-12-12-12-12 razy w każdym okrążeniu (czyli przez 10 lub 12 kolejnych okrążeń - zależnie od rozmiaru - dodajesz po 4 oczka w każdym okrążeniu). Patrz DODAWANIE OCZEK-2. Miłej pracy!

26.07.2022 - 21:03

country flag Shanthi wrote:

Yea. I did look at the wrong diagram. Sometimes the mind gets blocked while concentrating. 😐. Thank you for guiding me. Enjoy your summer !,

26.07.2022 - 12:37

country flag Shanthi wrote:

Hi. After casting on 76 stitches, while working the yoke you get 90 stitches. I am getting 94 stitches. What is the mistake I am making ? Can you kindly explain. Awaiting your reply. Thank you.

26.07.2022 - 11:27

DROPS Design answered:

Hi Shanthi, you have probably chosen the wrong A.1 diagram. Please follow the diagram A.1 for sizes S-M-L. In this way, you should get 90 stitches. Happy knitting!

26.07.2022 - 12:24

country flag Edyta wrote:

Pierwszy raz próbuję swoich sił z wzorem DROPS. Mam zrobiony ściągacz i 2 rzędy karczku ze schematem A1-na drutach mam 90 oczek-tyle co powinno być. Ale nie jestem pewna czy teraz powinnam zmienić druty na 5,5 i robić dalej wzór ze schematem A2? Czy dalej robić ze schematem A1? Kiedy przejść na schemat A2? 🤔 Opis wzoru czytałam milion razy chyba... 🤷🏻‍♀️

28.06.2022 - 21:40

DROPS Design answered:

Witaj Edyto, teraz zaczynasz przerabiać na drutach nr 5,5 i przerabiać schemat A.2 (Dalej przerabiać na prawo, wykonując schemat A.2 ponad oczkami schematu A.1 (27-27-27-29-29-29 oczek), a oczka przodu i tyłu dżersejem.). W razie jakichś wątpliwości pisz. Pozdrawiamy!

29.06.2022 - 16:00

country flag Martine Houdayer wrote:

Bonjour, Dans la partie « empiècement augmentations « , j’ai compris comment insérer les 4 nouveaux marqueurs, mais je ne comprends pas pourquoi le 4ème et le 8éme se retrouvent décalés. Du coup , on se retrouve avec des côtés différents le long du raglan et une dissymétrie qui n’est pas jolie . Ai-je bien tout compris ? Merci.

27.04.2022 - 14:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Houdayer, les marqueurs doivent être maintenant au nombre de 8 (au lieu de 4), autrement dit, pour chaque épaule vous avez: 1er/5ème marqueur, 13-14 m de A.2, 2ème/6ème marqueur, 1 m de A.2, 3ème/7ème marqueur, 13-14 m de A.2, 5ème/8ème marqueur. Vous allez ainsi augmenter pour les manches au milieu de A.2 = après le 2ème/6ème marqueur (début de la manche) et avant le 5ème/7ème marqueur (fin de la manche). Bon tricot!

27.04.2022 - 15:36