DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Copper Harbor

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með hnútamynstri og ¾-löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-38
DROPS Design: Mynstur z-920
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 9026, blush

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og hnútamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 8, 15, 22 og 29 cm
M: 6, 14, 22 og 30 cm
L: 7, 15, 23 og 31 cm
XL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm
XXL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm
XXXL: 9, 16, 23, 30 og 37 cm
ATH: Síðasta hnappagatið sem ekki er með í útskýringu að ofan, er gert í kanti í hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, upp að handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Ermar eru saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í perluprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 211-227-243-275-291-323 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca.
Prjónið PERLUPRJÓN fram og til baka í 2 cm – sjá útskýringu að ofan og endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.1A (= 12 lykkjur), prjónið A.1B þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð (= 11-12-13-15-16-18 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.1C (= 9 lykkjur og endið með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, mælist stykkið ca 20 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-25-27-31-33-37 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2C (= 9 lykkjur) og endið með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – A.2 er endurtekið á hæðina til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 53-57-61-69-73-81 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 93-101-109-125-133-149 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 53-57-61-69-73-81 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykkið er síðan prjóna til loka hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar stykkið er mátað):
= 53-57-61-69-73-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan.
Að auki er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-6-4-6 sinnum = 49-50-51-52-55-57 lykkjur eftir. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með heilli mynstureiningu í hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm. Í næstu umferð frá réttu eru ystu 16-16-17-17-18-18 lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá, eru allar þessar lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Haldið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar stykkið er mátað):
= 53-57-61-69-73-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan.
Að auki er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-6-4-6 sinnum = 49-50-51-52-55-57 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm. Í næstu umferð frá röngu eru ystu 16-16-17-17-18-18 lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá, eru þessar lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Haldið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 93-101-109-125-133-149 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-6-4-6 sinnum í hvorri hlið = 85-87-89-91-97-101 lykkjur eftir. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Í næstu umferð eru miðju 37-37-39-39-41-41 lykkjurnar felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til bakstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 57-61-65-69-73-77 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið perluprjón hringinn í 5 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónuð er 1 lykkja slétt bæði framan og aftan í allar lykkjur (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 114-122-130-138-146-154 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6 cm í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4-4-3-3-3-3 hverri umferð alls 17-19-20-21-21-22 sinnum = 80-84-90-96-104-110 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 25-24-24-23-23-22 cm, aukið út um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING.
Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 96-100-108-114-124-130 lykkjur.
Þegar ermin mælist 34-33-33-31-31-30 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á hringprjóna 3 eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-7-10-9-10 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-3-3-4 sinnum og síðan 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið = 48-48-54-54-60-60 lykkjur eftir. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 32-32-36-36-40-40 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 16-16-18-18-20-20 lykkjur færri) og prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón = 32-32-36-36-40-40 lykkjur eftir. Fellið af. Ermin mælist ca 42-42-43-43-43-43 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp frá réttu ca 113 til 129 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1.
Prjónið perluprjón fram og til baka í 2 cm – stillið af að perluprjónið haldi fallega áfram yfir kanta að framan og fellið jafnframt af fyrir síðasta hnappagatinu á hægri kanti að framan (í fyrstu umferð frá réttu). Fellið af í perluprjóni.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = Hnútur: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman, sleppið ekki lykkjunum af vinstri prjóni, en prjónið sömu 3 lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman einu sinni til viðbótar, sleppið að lokum öllum 3 lykkjunum af vinstri prjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Ladoucette Melissa wrote:

Bonjour je souhaiterais tricoter ce modèle 2 tailles en dessous , c’est à dire au lieu de démarrer avec 211 mailles je commence par 179 mailles… mais je n’arrive pas à calculer les diminutions… merci de votre aide . À bientôt

14.10.2023 - 18:54

country flag Kate wrote:

Hi, in this pattern it says "When the sleeve measures 6 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve". Is this 6cm total including cuff, or 6cm from end if cuff? Thanks!

10.05.2022 - 23:58

DROPS Design answered:

Hi Kate, This measurement is from the cast-on edge. Happy knitting!

11.05.2022 - 06:48

country flag Frederike wrote:

Is het bij de mouw de bedoeling dat ik na het breien van de manchet 1cm brei en dan al ga minderen? Dus bij 6cm totaal, of na 6cm breien vanaf de manchet? Dus 11cm? Vriendelijke groet, Federike

09.01.2022 - 22:20

DROPS Design answered:

Dag Frederike,

Je begint met minderen op 6 cm vanaf de opzet, dus 1 cm vanaf de manchet.

11.01.2022 - 09:46

country flag Amie wrote:

Hi! Is there any more information on the sizing of this piece, or is it just the flat measurements in the chart? Thank you!

30.06.2021 - 12:36

DROPS Design answered:

Dear Amie, measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in the chart, that's the best way to find the matching size. Read more here. Happy knitting!

30.06.2021 - 13:26

country flag Zuzana Janska wrote:

Hello, in sleeves you wrote: When the sleeve measures 6 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve . In similar pattern n. 39 you wrote: When the sleeve measures 8 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve . Should it be 6 or 8 cm long?

05.05.2021 - 05:14

DROPS Design answered:

Hi Zuzana, The measurement in this pattern is 6 cm. Sleeves vary in shape in the patterns, hence the difference in measurements you have noticed. Happy knitting!

10.05.2021 - 07:50

country flag Merike wrote:

Elegant design , why not ´Hyacinth´?

09.01.2021 - 09:41