Susan wrote:
It says to make the neck 11cm…is that an error? Should it be 11 rows?
07.10.2023 - 21:14DROPS Design answered:
Dear Susan, no, it's a double neck. You work 11cm in rib and then, to assemble, fold the neck in half inside and sew down. So in truth it would be like a 6cm neck. Happy knitting!
08.10.2023 - 22:32Moira wrote:
My first Drops pattern . Lavender sprinkles. First thing do a swatch. I have completed my swatch and it doesn’t look like the picture. Could I have the most simplest of instructions. I know the diagram is simple. Row by row for a repeat. Please ?
01.06.2022 - 06:56DROPS Design answered:
Dear Moira, diagram is worked in the round, this means you have to either purl or knit just as shown in the diagram, if you work your swatch in rows, you will have to work like this: row 1 (RS): *P2, K2*, repeat from *-*, row 2 (WS): *P2, K2*, row 3: K all sts, row 4: *K2,P2*, row 5: *K2, P2*, row 6: Purl all sts. Happy knitting!
01.06.2022 - 08:32Lene Johnsson wrote:
Beskeden kommer i to dele: Jeg har lige strikket denne bluse i str. M. Det der undrer mig er at længden på jeres garner overhovedet ikke stemmer. I kan se hvor stor her under. Så man ender med for meget garn til ingen verdens nytte. Og unødvendig omkostning.
28.05.2022 - 11:04Jessy wrote:
How do i work A.1 over the next 8-8-8-12-12-12 stitches (= 2-2-2-3-3-3 repeats of 4 stitches), work the first 2 stitches in A.1 so the pattern is symmetrical on the sleeve, increase to raglan on both sides of the marker thread?
21.05.2022 - 18:36DROPS Design answered:
Dear Jessy, work the 4 sts of A.1 a total of 2 or 3 times (see size) (= 1st row = P2, K2), then work the first 2 sts in A.1 (= 1st row = P2), that way, pattern starts with P2 and ends with P2 on first and 2nd row. Happy knitting!
23.05.2022 - 08:04Jessy wrote:
I have done the increase evenly and instead of 136 stiches it increases up to 145 stiches... what to do?
19.05.2022 - 17:58DROPS Design answered:
Dear Jessy, you have 96 sts (larger size) and increase 40 sts evenly (read more how to increase evenly here), you should get: 96+40=136 sts. Happy knitting!
20.05.2022 - 08:01Jessy wrote:
I'm so confuse about the markers. I don't know if i put them right
17.05.2022 - 19:48DROPS Design answered:
Hi Jessy, The markers are inserted between 2 stitches (not in a stitch) so, when you have finished counting, insert the marker before the next stitch. Hope this helps and happy knitting!
18.05.2022 - 07:03Lene Johnsson wrote:
Str. M - ved halskant står der man skal sætte mærke efter 34 m - videre bed b.restykke 12-44-12-44 = 112 m. Hvor kommer de 34 m fra?
06.05.2022 - 16:03DROPS Design answered:
Hei Lene. I str. M har du lagt opp 84 masker og strikker en vrangbord (2rett/2 vrang) i 11 cm, så strikkes det 1 omgang der det økes med 28 masker = 112 masker. Nå teller du 34 masker fra pinnen (ikke strikk). Sett ett merke mellom maske nr. 34 og 35. Dette viser hvor midt foran er på genseren. Deretter setter du 4 merketråder i arbeidet (ikke strikk) = etter 12-44-12-44 masker. Du har nå et merke etter 34 masker og 4 merketråder i arbeidet, uten at du har strikket. Så strikker du 1. omgang slik det er forklart i oppskriften. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 08:23Barbara wrote:
A minta hibás, ez a kardigán és nem a pulóver leírása, jó, hogy bonthatom vissza...
03.11.2021 - 22:33Betti wrote:
Hallo, ich möchte gerne den Pulli in der Farbe blush (Alpaca) stricken, welche Farbe von dem anderen Garn, Kid-Silk würde dazu passen, so dass es nicht zu dunkel wird? Gruß und danke vorab, Betti
31.10.2021 - 19:53DROPS Design answered:
Liebe Betti, wenden Sie sich bitte direkt an Ihrem DROPS Laden, dort wird man Ihnen gerne die besten passenden Farben empfehlen. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2021 - 07:29
Lavender Sprinkles |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, áferðamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 222-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma þannig (= 8 lykkjur fleiri í umferð): AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1. ATH: 1 lykkja hvoru megin við hvert prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-24-28-32-32-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-104-112-120-128-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 28-32-34-38-40-42 lykkjur í umferð = mitt að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og eru sett í stykkið án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Setjið 1 prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð, teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 32-40-44-44-48-52 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 32-40-44-44-48-52 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (munið eftir að 1 lykkja hvoru megin við 4 prjónamerkin er prjónuð í sléttprjóni), prjónið A.1 yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins á ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 28-36-40-40-44-48 lykkjur (= 7-9-10-10-11-12 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins á framstykki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1 yfir næstu 28-36-40-40-44-48 lykkjur, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins á bakstykki og aukið út fyrir laskalínu á undan prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 16-16-16-20-20-24 sinnum (meðtalin útaukning eins og útskýrt er í fyrstu umferð). Eftir síðustu útaukningu eru 216-232-240-280-288-328 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 18-18-20-21-23-25 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-44-44-56-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-8-12-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 64-72-76-84-88-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-44-44-56-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-8-12-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 64-72-76-84-88-100 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-160-176-184-200-216 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-8-12-8 lykkjur undir fyrri ermi. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur fram að prjónamerki – umferðin byrjar nú hér. Haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 27-29-29-29-29-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, eru lykkjur auknar núna út eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-36-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 176-192-212-224-240-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-44-44-56-56-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-8-12-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-52-56-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur þar til ermin mælist 26-26-25-25-23-21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 64-64-68-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli tvöfalt að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður, en til að kanturinn í hálsmáli dragist ekki saman og sveigist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Lene Johnsson wrote:
Jeg havde 1 helt og 3/4 nøgle Alpace og meget lidt Kid-silk. Alpaca 167 m Kid-silk 210 m Opskriften siger 6 nøgler alpaca = 1002 m 5 nøgler Kid-silk = 1050
28.05.2022 - 11:06