DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

April Love

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-7
DROPS Design: Mynstur de-223
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 02, plóma/beige/ljung
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 38, krít

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd með gatamynstri (= A.1) og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 69 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 23.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 23. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 3 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum 3 lykkjum er lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að prjóna 1 mynstureiningu með A.1 á breiddina.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkjur slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar slétt.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri öxl og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón niður að klauf í hvorri hlið. Síðan skiptist fram- og bakstykkið og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 69-72-75-80-83-88 lykkjur á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-4-21-28-29-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-96-108-112-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
Setjið 1 prjónamerki hér, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 6. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna.
Prjónamerkin verða að hafa annan lit, til að þau verði aðskilin frá prjónamerki eftir kanti í hálsi.
Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 22-24-30-36-38-42 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 12-12-16-16-16-16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 22-24-30-36-38-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið A.1 hringinn í umferð með 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar. Þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki í og 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur eru prjónaðar slétt. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-18-18-18-20-24 sinnum = 200-220-240-252-272-312 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið áfram með mynstri þar til stykkið mælist ca 20-22-24-26-28-30 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Setjið fyrstu 44-48-52-52-56-64 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 56-62-68-74-80-92 lykkjurnar í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-52-56-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 56-62-68-74-80-92 lykkjurnar í mynstri eins og áður (= bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 124-136-148-160-172-196 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = á undan 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1. Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 13-13-12-12-12-10 cm frá skiptingu, prjónið garðaprjón yfir miðju 8 lykkjurnar í hvorri hlið á stykki. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar 8 lykkjur, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki mitt í þessum 8 lykkjum í hvorri hlið = 62-68-74-80-86-98 lykkjur fyrir framstykki og 62-68-74-80-86-98 lykkjur fyrir bakstykki. Prjónið síðan hvort stykki fram og til baka hvort fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 13 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-12-13-15-15 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir ystu 4 lykkjur í hvorri hlið) = 72-78-86-93-101-113 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm. Fellið af – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.
Prjónið hitt stykkið á sama hátt.

ERMI:
Setjið til baka 44-48-52-52-56-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-54-58-58-62-70 lykkjur. Byrjið umferð á milli 2. og 3. lykkju sem prjónaðar voru upp undir ermi og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 3. og 4. lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjóni mynstur eins og áður yfir næstu 46-50-54-54-58-66 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt = 49-53-57-57-61-69 lykkjur. Nú eru 3 lykkjur slétt mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1 og prjónið sléttar lykkjur yfir miðju 3 lykkjur undir ermi. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna undir ermi. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 4-6-6-5-7-10 sinnum = 41-41-45-47-47-49 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist ca 37-35-34-32-31-30 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð með sléttum lykkjum. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 2 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-7-7-7 lykkjur = 46-48-52-54-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið garðaprjón hringinn í 2 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Kate wrote:

Hello! I'm having trouble with the raglan increase for the Yoke section - on the 3rd row of the A1 pattern it starts with a yarn over, but we are also supposed to be increasing with a yarn over for the raglan, is that two yarn overs in a row? Thank you!

26.01.2024 - 19:38

DROPS Design answered:

Dear Kate, to avoid getting 2 yarn overs next to each other, you can work the first stitches in A.1 in stocking stitch, or make sure that the both yarn overs are not worked too loosely to avoid a large hole on next round. Happy knitting!

29.01.2024 - 11:29

country flag Kety Alì wrote:

Come faccio a far tornare il colore delle maniche...maniche con lo stesso motivo di colore..

11.03.2022 - 19:42

DROPS Design answered:

Buonasera Kety, deve cercare di iniziare dal punto del gomitolo con la stessa combinazione di colori. Buon lavoro!

13.03.2022 - 14:50

country flag Catherine Ledon wrote:

Bonjour, je souhaite faire ce modèle sans points fantaisie seulement au point mousse me faut-il davantage de laine? et combien? merci.

14.11.2021 - 11:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ledon, tout à fait, et, comme votre échantillon sera aussi différent, il vous faudra probablement recalculer aussi les explications; vous trouverez ici quelques pulls raglan au point mousse qui pourront vous inspirer si besoin. Bon tricot!

15.11.2021 - 07:44

country flag Ledon wrote:

Bonjour, concernant le modèle 223-7 je ne trouve pas le diagramme qui lui correspond......merci de m'aider.

30.10.2021 - 18:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ledon, le diagramme est tout petit et se trouve juste au dessus du schema des mesures en bas de page. Bon tricot!

01.11.2021 - 22:13

country flag Catherine Ledon wrote:

Bonjour, pourrait on avoir les tutos en français? merci

23.09.2021 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ledon, bien volontiers, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour sélectionner "français" et ainsi changer la langue. Bon tricot!

24.09.2021 - 07:24

country flag Ewigenia Schweighofer wrote:

Warum gibt es keine strickschrift So ist das Beschriebene schwer zu verstehen. Ich weiß nicht wie ich bei der Maschen Probe beginnen soll. Es steht Lochmuster A=1, ich habe keine Ahnung was das heisst. Von A=1 ist nichts beschrieben😢

29.07.2021 - 17:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schweighofer, A.1 ist das Diagram für das Lochmuster, das finden Sie zwischen Diagram Text und Maßskizze - es wird über 2 Maschen und 4 Reihen gestrickt. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

30.07.2021 - 08:08

country flag Georgette wrote:

Prachtige trui geworden! Twee draden gebreid met heerlijk zacht materiaal. Patroon is duidelijk beschreven maar het is geen breiwerk voor iemand die net begint met breien. Door van boven naar beneden te breien is de lengte goed aan te passen. En het rondbreien met de rondbreinaald is fijn en achteraf geen enkele naad te sluiten. Eindresultaat is geweldig.

13.07.2021 - 14:54

country flag Marion Peitz wrote:

Wo finde ich das Diagramm von Modell 223-7? Ich kann es in der Anleitung nicht finden. Danke

25.05.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Peitz, Diagram A.1 finden Sie zwischen den Zeichenerklärungen und der Maßskizze, es wird über 2 Maschen und 4 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

26.05.2021 - 10:25

country flag Annarita wrote:

Buongiorno, non ho capito bene se il lavoro è fatto tutto con un capo di Delight e un capo di Kid-Silk, come mai le quantità di filato che occorre non sono uguali? Oppure vanno usati entrambi i filati solo per una parte del lavoro? È possibile avere qualche chiarimento? Grazie!

04.05.2021 - 12:26

DROPS Design answered:

Buonasera Annarita, il maglione è lavorato con 1 capo per qualità: la quantità dei due filati è diversa perchè è diverso il loro metraggio. Buon lavoro!

04.05.2021 - 21:23

country flag Alexandra Bühler wrote:

Stripes of Harmony

09.01.2021 - 15:44