DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Just Right

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-29
DROPS Design: Mynstur ai-329
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-700 g litur 02, hveiti

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600-650-700-750 g litur 02, hvít þoka

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 48-48-52-52-56-60 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-12-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTKA/ÚTAUKNING = 56-60-64-64-64-68 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).
Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: 5-6-7-7-7-8 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), sléttar lykkjur yfir næstu 10-12-14-14-14-16 lykkjur (= framstykki), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1 yfir næstu 8 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 5-6-7-7-7-8 sléttar lykkjur (= ½ bakstykki) = 72-76-80-80-80-84 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram hringinn, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-14-16-17-18 sinnum = 176-188-192-208-216-228 lykkjur.
Haldið áfram án útaukningar fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir hvert A.1 (= alls 16 lykkjur færri) = 160-172-176-192-200-212 lykkjur.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 23-24-25-28-30-33 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 34-38-38-40-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 46-48-50-56-60-66 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-38-38-40-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23-24-25-28-30-33 lykkjur.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100-104-112-124-136-148 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, aukið út um 16-16-16-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 116-120-128-144-156-172 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 34-38-38-40-40-40 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-42-44-46-48-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-2-1 sinnum = 34-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 11-12-12-12-10-8 cm. Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3½-3½-4-4-4 cm millibili alls 8-6-6-5-5-5 sinnum = 50-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-4-4-6-0 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-48-56 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 20-20-24-24-24-28 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt
symbols = sleppið niður 2 uppsláttunum, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið (dragið í þessa lykkju þannig að hún verði 4,5 cm löng, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, sleppið niður 2 uppsláttunum, prjónið 1 lykkju slétt (dragið í þessa lykkju þannig að hún verði 4,5 löng), prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstrið frá umferð með ör
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Elżbieta wrote:

Czy wzór fantazyjny można robic na drutach pończoszniczych? Jak wtedy wyglada lewa strona robótki - pytam jak przerabiać

27.01.2024 - 13:13

DROPS Design answered:

Witaj Elu, wzór fantazyjny jak i cały sweter będzie przerabiany na okrągło, czyli zawsze na prawej stronie robótki - możesz przerabiać na drutach pończoszniczych, a gdy będzie więcej oczek zmienić na druty z żyłką. W nieparzystych rzędach schematu będą oczka prawe i narzuty (patrz legenda), a w parzystych przerabiasz tak jak na filmie video poniżej pt. Jak wykonać szeroki luźny warkocz. Pozdrawiamy!

29.01.2024 - 15:14

country flag Susanne wrote:

Hallo, bei der Strickschrift A1 habe ich in der ersten Reihe 8 rechte Maschen und 4 Umschläge, somit insgesammt 12 Maschen. In Reihe zwei habe ich eine rechte Masche, 2 Umschläge, 8 rechte Maschen, 2 Umschläge und eine rechte Masche. Das sind aber nur 10 gestrickte Maschen. Was mache ich falsch oder wo liegt mein Denkfehler.

15.10.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, bei der 2. Reihe stricken Sie 2 Umschläge + 1 Masche rechts, nicht nur 2 Umschläge - siehe 3. Symbolerklärung. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2023 - 10:01

country flag Sig-Britt Larsson wrote:

Hej! Är det omslagen i flätan som är ökningen av maskorna. Mvh Sig-Britt Larsson

11.11.2022 - 15:36

DROPS Design answered:

Hei Sig-Britt. Du strikker bare 1. rad av A.1 på 1. omgang. Da viser O at det gjøres et kast = 1 økning. Når du strikker 1. omgang strikkes A.1 4 ganger, slik at du øker med 16 masker på denne omgangen. Nå du så strikker videre etter diagram A.1 er det ingen flere økninger i diagrammet. Da økes det etter forklaringen under RAGLAN i oppskriften. mvh DROPS Design

14.11.2022 - 12:01

country flag Sig-Britt Larsson wrote:

Hej! Har en fråga angående mönster 222-29.Jag undrar hur man stickar mönstret på den tröjan.Vore bra med en video på det. Mvh Sig-Britt Larsson

17.10.2022 - 12:11

DROPS Design answered:

Hei Sig-Britt. Takk for din tilbakemelding. Vi setter opp ditt ønske på vår liste. mvh DROPS Design

17.10.2022 - 13:23

country flag Véronique Lille wrote:

Bonjour, je ne trouve pas où je dois faire les augmentations entre les A.1 de chaque épaule. Je suis rendu à mon 15 ième tour et je n’ai que 4 mailles entre mes deux motifs. Pourriez vous m’indiquer ce que j’ai oublié? Je vous remercie. Ps: La laine drop wish est super agréable à tricoter et le modèle est tellement beau!

05.01.2022 - 04:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lille, vous devez augmenter de chaque côté de chaque A.1 comme indiqué sous RAGLAN tous les 2 tours, autrement dit, tricotez jusqu'au premier A.1, faites 1 jeté, tricotez les 12 mailles de A.1, faites 1 jeté et répétez aux 3 autres A.1, vous allez ainsi augmenter 8 mailles au total; tricotez les jetés torse au tour suivant pour éviter les trous et augmentez ainsi tous les 2 tours 13 à 18 fois selon la taille. Bon tricot!

05.01.2022 - 08:06

country flag Natacha wrote:

Toutes mes excuses ,pas de problème avec A1 et le schéma de l'ouvrage. Merci.

27.02.2021 - 09:11

country flag Natacha wrote:

Bonjour , il semble que A1 n'apparait pas dans les explications, ainsi que le schéma de l'ouvrage.Merci .

27.02.2021 - 09:03

DROPS Design answered:

Bonjour, le diagramme A.1 se trouve a la la fin du modele, a droite du schema des mesures. Bon tricot!

28.02.2021 - 22:09

country flag Arndt wrote:

Evening stroll

09.01.2021 - 10:47

country flag Marta wrote:

Airy baloon

07.01.2021 - 21:51

country flag Anna wrote:

This sleeves are just asome

07.01.2021 - 19:36