DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Galatea

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-3
DROPS Design: Mynstur bs-161
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 1101, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með mynsturprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚRTAKA-1 (á við ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 6,25. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjun á umferð er á milli vinstri ermi og bakstykkis. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-84-84-96-96 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Kid-Silk og 1 þræði BabyAlpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 með 6 lykkjum), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2, A.3, 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 lykkjur (= 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3, 2 lykkjur sléttprjón, A.1, A.2, A.3, 1 lykkja sléttprjón.

Haldið svona áfram með mynstur, öll útaukning er teiknuð inn í A.1 og A.3. Aukið er út til skiptis í 8 og 16 lykkju í annarri hverri umferð. Í hvert skipti sem A.1 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á breidd. Aukið út í annarri hverri umferð, alls 18-20-20-22-24-26 sinnum = 288-312-324-348-384-408 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16-18-19-20-21-24 cm. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en prjónið nú án útaukningar í hlið á A.1 og A.3, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 21-23-26-28-32-35 cm frá prjónamerki í hálsmáli.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 75-81-87-93-105-111 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 69-75-75-81-87-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-81-87-93-105-111 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 69-75-75-81-87-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. Klippið þráðinn frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-180-192-204-228-240 lykkjur. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur, passið uppá að mynstrið passi yfir mynstur frá berustykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-25-24-24-22-21 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 69-75-75-81-87-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9 lykkjum undir ermi = 78-84-84-90-96-102 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 9 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með mynstur hringinn eftir A.2, passið uppá að mynstrið passi við mynstur frá berustykki. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 14-16-16-17-19-20 sinnum = 50-52-52-56-58-62 lykkjur. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, prjónið þær í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-32-31-26-24 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA-2 = 40-42-42-46-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-37-36-31-29 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Galatea

Bethany

Galatea

Bethany

Galatea

LeelooNile, France

Galatea

Anne Wirth, Switzerland

Galatea

Anne, Switzerland

Galatea

Fabienne, France

Galatea

tekeleet, Finland

Galatea

Tina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (84)

country flag Sandrine wrote:

Bonjour. Pourriez-vous m'expliquer plus clairement le système des augmentations tous les 2 tours. Si je lis le diagramme on augmente au 3ème et au 7ème tour et uniquement 8 mailles par rang. Je ne saisis pas comment augmenter tous les 2 tours. Merci pour vos explications

08.04.2024 - 23:08

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, on va augmenter 1 maille au 1er rang + au 5ème rang au début de A.1 et à la fin de A.3 ; et on va augmenter 2 mailles au 3ème + au 7ème rang, au début de A.1 et à la fin de A.3. Quand les diagrammes sont terminés, on a augmenté 6 mailes dans A.1 et 6 mailles dans A.3 (= suffisamment de mailles pour 2 motifs supplémentaires de A.2 entre A.1 et A.3 quand on recommence les diagrammes en hauteur). Bon tricot!

09.04.2024 - 09:01

country flag Nicole wrote:

Hallo, leider muss ich nochmals nachfragen, da ich die vorhergehende Erklärung nicht verstehe. Ich habe 324M und sollte nun ohne Zunahmen im Muster weiterarbeiten. Welche Umschläge werden weggelassen? Die Erklärungen scheinen sich von mal zu mal zu unterscheiden. In der 1. und 5.R lasse ich den 1. und letzten Umschlag von A.1 und A.3 weg, in der 3. und 7.R den 1., 2. und zweitletzten und letzten Umschlag von A.1 und A.3? Und wie stelle ich sicher, dass das Muster über das andere passt? Danke

08.04.2024 - 21:23

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, ja genauso stricken Sie, Sie könnne dann eine Markierung bei A.1/A.3 einsetzen, wo das Lochmuster beginnt/endet, die anderen Maschen stricken Sie einfach glatt rechts. Viel Spaß beim Stricken!

09.04.2024 - 08:39

country flag Nicole wrote:

Hallo Für mich sind zwei Sachen unklar, trotz der vorhandenen Fragen und Antworten: Welche Umschläge lasse ich weg, sobald ich mit den Raglanzunahmen fertig bin? Ist es jeweils der erste und letzte Umschlag von A.1 und A.3 oder ist es der schwarz hinterlegte Umschlag? Und wie stelle ich anschliessend sicher (beim Rumpfteil wie auch bei den Ärmeln), dass das Muster über das Muster der Passe passt? Vielen Dank für die Antwort!

20.03.2024 - 08:19

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, der 1. Umschlag am Anfang A.1/am Ende A.3 bei der 1. und 5. Reihe sowie die 2 Umschläge am Anfang A.1/am Ende A.3 sind die Zunahmen für den Raglan, diese Umschläge stricken Sie nicht mehr, wenn alle Zunahmen fertig sind. Viel Spaß beim Stricken!

20.03.2024 - 15:14

country flag Luci Harris wrote:

Hi, Do you have a size guide for this pattern? It says S-XXL but there are no actual measurements to tell what the finished garment will be in each size. There's also no gauge given so far as I can tell. Thanks

24.12.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Dear Luci, you can find the size chart after the pattern instructions, after the charts. You can read more information on the size charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. The gauge is the KNITTING TENSION indicated in the materials section. Happy knitting!

28.12.2023 - 23:03

country flag Luci Harris wrote:

Hi, Do you have a size guide for this pattern? It says S-XXL but there are no actual measurements to tell what the finished garment will be in each size. There's also no gauge given so far as I can tell. Thanks

24.12.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Dear Luci, you can find the size chart after the pattern instructions, after the charts. You can read more information on the size charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. The gauge is the KNITTING TENSION indicated in the materials section. Happy knitting!

28.12.2023 - 23:03

country flag Mieke Baras wrote:

Baby alpaca silk is uit het assortiment. Door welke andere kwaliteit kan ik die ook vervangen, liefst ook garencategorie A?

18.06.2023 - 20:35

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

In plaats daar van zou je DROPS Alpaca, DROPS Nord, DROPS Fabel of DROPS Flora kunnen gebruiken.

21.06.2023 - 20:55

country flag Holly wrote:

Hello. I'm confused as to how you continue the pattern without further increases. Which yarnovers do we omit on each round? Also when you say "Continue with A.2 over all stitches; make sure the pattern matches the pattern on the yoke" do you mean to knit every round as A.2. This goes for the sleeves as well. Thank you

29.05.2023 - 16:49

DROPS Design answered:

Dear Holly, note in the diagrams A.1 and A.3 which is the last stitch worked when all your increases are done, then just make sure to work A.1 and A.3 as before but with the same number of stitches decreased as yarn overs (don't make the extra yarn overs to increase as before). And work A.2 as before. After dividing piece, you will be able to work A.2 over all stitches in the round, just make sure to line up A.2 from yoke/sleeve. Happy knitting!

30.05.2023 - 11:50

country flag Anne-Lene Solberg wrote:

Etter at økningene er ferdig, så får jeg ikke maske antallet til å stemme. Hvilke kast er det ikke som skal være med på A1 og A3. Hvor mange rette blir det mellom A1 og A3 tilslutt. Er der bare A2 som skal strikkes videre for å få 26 cm lengde på bæresrykket. Jeg er en erfaren strikker men dette mønsteret er dårlig forklart. Har rekt opp så mange ganger.

24.05.2023 - 09:31

DROPS Design answered:

Hej Anne-Lene, alle økninger er tegnet ind i diagrammet, så alle raglanøkninger skal være med ifølge A.1 og A.3 til du har 324 m (gætter at du strikker M) og arb måler 19 cm. Ja mønster A.2 fortsættes ned over hele genseren, hvis du ikke har nok masker til A.2 i siderne, strikker du maskerne mod siden i glatstrik.

24.05.2023 - 14:07

country flag Pascale NORBLIN wrote:

Bonjour Très joli modèle, auriez-vous les explications du point fantaisie pour aiguilles droites, merci beaucoup

23.03.2023 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Norblin et merci. Tricotez le point fantaisie en allers et retours en commençant sur l'endroit (tous les rangs impairs se tricotent sur l'endroit) et en tricotant tous les rangs pairs à l'envers sur l'envers. Bon tricot!

24.03.2023 - 08:17

country flag C Krage wrote:

Hvorfor er der ikke lyd på YouTube videoerne?

04.01.2023 - 13:41

DROPS Design answered:

Hej, det er fordi vi har strikkere og hæklere fra hele verden, men husk at du kan justere så videoen vises langsommere og så skal du altid læse teksten som passer til :)

05.01.2023 - 10:16