DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Peaches and Cream

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-1
DROPS Design: Mynstur as-148
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200 g litur 20, bleikur sandur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem auka á út/fækka yfir (t.d. 70 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 8. og 9. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 7. og 8. hver lykkja og 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Handvegurinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 40-41-42-43-45-46 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjurnar í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 4 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið inn hægri og vinstri öxl á sama hringprjón þannig að 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmái verða mitt í umferð = 60-62-62-64-66-68 lykkjur.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Prjónið mynstur frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 14-15-14-15-15-16 lykkjur, garðaprjón yfir næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-15-14-15-15-16 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð, alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm og 12-13-14-15-16-17 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið jafnframt út um 8-8-9-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 78-84-93-102-114-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjurnar og fitjið upp 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 40-41-42-43-45-46 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að framan.

HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Fitjið upp 20-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-8-9-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 27-28-29-30-30-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 25-26-27-28-28-28 lykkjum (þ.e.a.s. prjónið bæði í fremri og aftari lykkjubogann), 1 lykkja slétt = 52-54-56-58-58-58 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir handveg og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-5-6 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 88-92-96-100-104-110 lykkjur.
Tengið stykkið saman og prjónið síðan í hring á hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið var sett saman (= mitt undir ermi).
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA -2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 3-3-4-4-5-6 sinnum = 82-86-88-92-94-98 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 51-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-45-46-46-47-47 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Saumið ermar við fram- og bakstykki með því að leggja inn ermarnar undir kant í garðaprjóni meðfram handvegi og saumið lítil spor frá réttu (það á ekki að vera laus kantur þegar saumað er og saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, þannig að kantur í garðaprjóni liggur fallega utan á ermi).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Brigitte RAPPENEAU wrote:

Ou trouver nombre de pelotes à commander pour la taille choisie ? Merci !

08.12.2023 - 18:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rappeneau, vous trouverez la quantité nécessaire au poids pour chaque taille dans l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille S par exemple 125 g Brushed Alpaca Silk / 25 g la pelote = 5 pelotes. Pour trouver votre taille mesurez un vêtement similaire dont vous aimez la forme et comparez les mesures à celles du schéma, retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

11.12.2023 - 07:20

country flag Michelle wrote:

Just finished this jumper for myself and I love it. Pattern instructions were easy to follow . Thank you Drops.

27.11.2023 - 11:46

country flag Olga wrote:

Buongiorno, questo modello è adatto alla stagione invernale?

03.07.2023 - 11:00

DROPS Design answered:

Hi Olga, I live in Poland and I wear this sweater in cold Polish winter. It is very warm. Happy knitting!

05.07.2023 - 11:09

country flag Anne wrote:

How to I create the creases in the sleeves that are show in the picture? Do I fold it when attaching the sleeve to the garment?

31.12.2022 - 21:12

DROPS Design answered:

Dear Anne, this video shows how to work the increases to make th puff-sleeve - you can then shape the top of sleeve nicely along armhole before sewing. Happy knitting!

02.01.2023 - 14:01

country flag Mary wrote:

Er staat ronde hals maar die van mij is vierkant hoe krijg ik hem rond

20.12.2022 - 20:24

DROPS Design answered:

Dag Mary,

Je hebt gelijk, er staat bij de trefwoorden een ronde hals, maar het is een vierkante hals. Ik zal het doorgeven, want dit trefwoord hoort er niet bij.

20.12.2022 - 21:41

country flag Maraili wrote:

Hej igen, det er i bunden af ryggen, lige inden ribben. 8 udtagninger fra vrangen jævnt fordelt. Det eneste sted man skal tage ud fra vrangen. Det giver huller. Mvh. Maraili

20.12.2022 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Maraili, hvis du strikker omslaget drejet på næste pind, vil hullerne ikke kunne ses.... MEN du kan også tage ud ved at strikke 2 masker i én maske, hvis du synes det bliver finere :)

21.12.2022 - 14:42

country flag Maraili wrote:

Hej strikkere, jeg har samme spørgsmål som Ch. Kristensen, da der opstår huller ved udtagningerne lavet på vrangen. Dem ser man ikke på billedet. Desuden forstår jeg ikke formålet med udtagningerne. Tak! Mvh. M

19.12.2022 - 21:37

DROPS Design answered:

Hej Maraili, vi vil gerne hjælpe, men skriv hvor du er i opskriften? Hvilke huller og hvilke udtagninger?

20.12.2022 - 14:37

country flag Maraili wrote:

Hej Drops, tak for en fin opskrift. vedr. bagstykket. Hvordan kan man tage ud på hver 4. pind, når det skal ske fra retsiden? Skal det så ikke være hver 5. pind? Måske har jeg misforstået noget. Mvh. Maraili

25.11.2022 - 22:29

DROPS Design answered:

Hej Maraili, hvis din første pind er fra retsiden, så tager du ind på pind 1,5,9,13 osv (da bliver det hver 4.pind :)

30.11.2022 - 14:17

country flag Emma wrote:

When knitting the front piece, am I supposed to make the additions to both sides immediately after knitting the 8 cm shoulder pieces? The back piece required an additional 4 cm after the shoulder pieces that were 4 cm, so I am a bit concerned I might have made the front piece too long.

06.05.2022 - 06:49

DROPS Design answered:

Dear Emma, yes correct, the neck on back piece is shorter, so that you join both shoulders together after 4 cm, while the neck on front piece will be deeper, reason why you join both shoulders together after 8 cm (in 3rd and 4th size). Happy knitting!

06.05.2022 - 07:50

country flag Jacqueline wrote:

Vraag gaat over meerdering eind achterpand voordat het boord begint, 8 steken meerderen verdeel over 68 steken, zonder de kantsteken, zou inhouden tussen 8e en 9e steek zoals in het voorbeeld. Nu tel ik vanaf steek 2 en dan maak ik een lus tussen 8e en 9e steek maar het komt niet uit. Het moet ik het dan wel doen? Graag advies! Dank

27.02.2022 - 19:18

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline,

Als je 68 deelt door 8 dan kom je op 8,5, dus je zou om de 8,5 steken moeten meerderen. Dat kan natuurlijk niet, dus je meerdert afwisselt steeds na 8 en 9 steken.

28.02.2022 - 07:25