Hvernig á að hekla fastalykkju

Hvernig á að hekla fastalykkju

Nú hefur þú heklað loftlykkjuröð, þá getur þú haldið áfram, fram og til baka meðfram röðinni með mismunandi lykkjum. Hér getur þú lært hvernig hekla á fastalykkjur. Sjá hér!

Mynd 1: Oddi heklunálarinnar er stungið í aðra loftlykkju á heklunálinni. Þræðinum á vísifingri er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp í gegnum lykkjuna.

Mynd 2: Nú hefur þú tvær lykkjur á heklunálinni. Þræðinum á vísifingri er brugðið um heklunálina.

Mynd 3: Notaðu krókinn á heklunálinni til þess að draga þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni.

Mynd 4: Nú hefur þú heklað eina fastalykkju og ein lykkja er á heklunálinni.

Mynd 5: Byrjaðu aftur að hekla og oddi heklunálarinnar er stungið í næstu loftlykkju í röðinni.

Mynd 6: Fastalykkja er oftast hekluð í gegnum báða lykkjubogana frá fyrri röð. Þú færð mismunandi áferð eftir því hvort þú heklir einungis í aftari lykkjubogann, fremri lykkjubogann eða þá í báða. Ef ekkert er sagt til um þetta í uppskrift er oftast heklað í gegnum báða lykkjubogana.

Þú getur einnig skoðað þetta myndband