Hvernig á að auka eða fækka lykkjum jafnt yfir

Þarftu að auka eða fækka lykkjum jafnt yfir? Við sýnum þér hvernig á að gera það í einföldum skrefum hér að neðan. Mundu að DROPS hefur einnig sína eigin reikninvél fyrir útaukningu/úrtöku sem reiknar þetta út fyrir þig.

Aukið út lykkjur jafnt yfir

Dæmi: Aukið út um 21 lykkju jafnt yfir 140 lykkjur. Útkoma: 161 lykkja á prjóninum.

Liður 1: Reiknaðu fjarlægðina á milli útaukninganna
Notaðu reiknivél og deilið fjölda lykkja (140) með fjölda útaukninga (21): 140 / 21 = 6,66

Liður 2: Námundaðu í heilar eða hálfar lykkjur
Útreikningurinn sýnir að auka eigi út lykkju fyrir hverja 6,66 lykkjur. Þessi tala er námunduð niður í 6,5, sem er tala sem er auðveldari í notkun. Til að komast eins nálægt þessari tölu og mögulegt er, skiptist á að auka út lykkjur á eftir 6. og 7. hverja lykkju.

Liður 3: Útaukning
Aukið út lykkjur þannig:

  • Prjónið 6 lykkjur, aukið út 1 lykkju á undan næstu lykkju (t.d. sláið 1 sinni upp á prjóninn eða takið upp þráðinn á milli lykkjanna).
  • Prjónið 7 lykkjur, aukið út 1 lykkju á undan næstu lykkju.
  • Haltu áfram að prjóna til skiptis 6 og 7 lykkjur á milli hverrar útaukningar þar til lykkjum hefur verið aukið út 21 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 4 lykkjur eftir á prjóninum. Þessar lykkjur eru prjónaðar án þess að auka út lykkjum.

Fækkið lykkjum jafnt yfir

Dæmi: Fækkið um 21 lykkju jafnt yfir 140 lykkjur. Útkoma: 119 lykkjur á prjóninum.

Liður 1: Reiknaðu fjarlægðina á milli úrtökunnar
Notaðu reiknivél og deilið fjölda lykkja (140) með fjölda úrtöku (21): 140 / 21 = 6,66

Atriði 2: Námundaðu í heilar eða hálfar lykkjur
Útreikningurinn sýnir að fækka eigi lykkjum fyrir hverja 6,66 lykkjur. Þessi tala er námunduð niður í 6,5, sem er tala sem er auðveldari í notkun. Til að komast eins nálægt þessari tölu og mögulegt er, skiptist á að fækka lykkjum með 6. og 7. lykkja fresti.

Liður 3: Úrtaka
Fækkið lykkjum þannig:

  • Prjónið 4 lykkjur, 2 lykkjur saman.
  • Prjónið 5 lykkjur, 2 lykkjur saman.
  • Haltu áfram að prjóna til skiptis 4 og 5 lykkjur á milli hverrar úrtöku þar til lykkjum hefur verið fækkað 21 sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 4 lykkjur eftir á prjóninum. Þessar lykkjur eru prjónaðar án þess að fækka lykkjum.